Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það.
Um 1260 skjálftar mældust í vikunni, þar af hafa um 1000 verið yfirfarnir. Sex skjálftar mældust um og yfir stærð M3. Mikil skjálfavirkni mældist víða á Reykjanesskaganum. Á sunnudag hófst hrina við Geitafell, sunnan Bláfjalla, og urðu þar þrír skjálftar sem mældust M3-M3,3 og bárust tilkynningar um að þeirra hafi orðið vart á höfuðborgarsvæðinu. Enn mældist skjálftavirkni við Skjaldbreið, þar varð skjálfti af stærð M3,0 18. september. Þá mældust tveir skjálftar úti á Kolbeinseyjarhrygg með stærðir M3,1-M3,2.
Rúmlega 960 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í vikunni sem leið, þar af hafa um 520 verið handvirkt yfirfarnir. Þetta er nokkuð meira en frá síðustu viku þegar tæplega 800 skjálftar mældust.
Jarðskjálftavirknin var vel dreifð um virkustu svæðin og má þar m.a. nefna Reykjanes, Skjaldbreið, Mýrdalsjökul, vestanverðan Vatnajökul og Grímseyjarbrotarbeltið.
Stærsti skjálfti vikunnar yfir 3 að stærð mældist við Kolbeinseyjarhrygg, 3,8 að stærð þann 13. september sl. en í hrinunni við Eldey þann 11. september mældist skjálfti af stærð 3,2. Fimm skjálftar mældust í og við Heklu í vikunni.
Nánar má skoða skjálftavirkni hér: Skjálftalisti viku 37
Lesa meiraUm 820 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í vikunni sem leið, þar af hafa um 660 verið handvirkt yfirfarnir. Þetta er nokkur aukning frá síðustu viku þegar tæplega 500 skjálftar mældust.
Jarðskjálftavirknin var vel dreifð um virkustu svæðin og má þar m.a. nefna Reykjanes, Skjaldbreið, Mýrdalsjökul, vestanverðan Vatnajökul og Grímseyjarbrotarbeltið.
Stærsti og eini skjálfti vikunnar yfir 3 að stærð mældist 2 km vestur af Kleifarvatn þann 9. september og mældist hann 3.8 að stærð. Í kjölfar skjálftans mældust yfir 100 smáskjálftar. Skjálftinn fannst í byggð.
Nánar má skoða skjálftavirkni hér: Skjálfta Lísa
Tæplega 500 skjálftar mældust á landinu í vikunni sem leið. Það er fremur rólegt m.v. virkni síðustu vikna, og má þar að einhverjum hluta um kenna fyrstu haustlægðinni sem gekk yfir aðfaranótt laugardags. Jarðskjálftavirknin var vel dreifð um virkustu svæðin og má þar m.a. nefna Reykjanes, Mýrdalsjökul, vestanverðan Vatnajökul og Grímseyjarbrotabeltið.
Í vikunni hljóp einnig úr eystri Skaftárkatli sem hafði áhrif á virkni vikunnar og sást m.a. á óróapúlsum sem mældust í vestanverðum Vatnajökli og má tengja suðu í katlinum.
4 sjálftar mældust yfir 3 að stærð í vikunni, tveir M3.1 þann 1. sept , annar á Kolbeinseyjarhrygg og hinn á Reykjanestá, einn M3.7 í Mýrdalsjökli 29. ágúst og einn M3.9 í Bárðarbungu 3. sept.
Nánar má skoða skjálftavirkni hér: Skjálfta Lísa
Lesa meiraTæplega 700 skjálftar mældust á landinu í siðustu viku, miðað við 1000 í vikunni á undan. Jarðskjálftavirknin var mest á Reykjanesskaga og úti fyrir Norðurlandi við Grímsey.
Stærsti skjálfti í vikunni varð þann 22. ágúst kl. 14:57, um 13 km austur af Grímsey og var hann 3,1 að stærð.
Skjálfti varð í Bárðarbungu, 3,0 að stærð, þann 23. ágúst, kl. 17:30.
Tveir smáskjálftar mældust við Heklu í vikunni.
Lesa meiraTæplega 1,000 skjálftar mældust á landinu vikuna 14.-20. ágúst. Jarðskjálftavirknin dreifðist nokkuð jafn yfir landið, allt frá Reykjaneshrygg og norður á Kolbeinseyjarhrygg. Um 650 skjálftar hafa verið handvirkt yfirfarnir. Sex skjálftar mældust yfir 3,0 að stærð en aðeins einn af þeim var á landi en það var skjálfti af stærð 3,2 í Bárðarbungu. Hinir voru á Reykjaneshrygg og Kolbeinseyjarhrygg. Heldur hefur hægt á virkni á Reykjanesskaga en þar mældust um 270 skjálftar alla vikuna. Stærsti skjálftinn var við Keili, 2,9 að stærð laugardaginn 19. ágúst.
Lesa meiraUm 1255 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðinni viku, þar af hafa um 885 verið handvirkt yfirfarnir. Stutt hrina varð 13-14.ágúst um 35 km SV af Reykjanestá. Alls mældust um 250 skjálftar í hrinunni. Stærsti skjálftinn reyndist 4.4 að stærð og var það jafnframt stærsti skjálfti vikunnar. Alls mældust 16 skjálftar yfir 3 að stærð á Reykjaneshryggnum. Áframhaldandi virkni var SA of Skjaldbreið en alls mældust um 190 skjálftar í vikunni. Engin virkni hefur verið í gígnum við Litla-Hrút. Af þeim 1255 skjálftum mældust um 450 af þeim á Reykjanesskaganum. Skjálfti 3 að stærð mældist þann 12.ágúst í Hofsjökli, skjálftinn fannst í Kerlingafjöllum.
Nánar má skoða skjálftavirkni hér: SkjálftaLísa
Lesa meiraUm 900 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðinni viku, þar af hafa um 585 verið handvirkt yfirfarnir. Af þeim 900 skjálftum sem mældust í vikunni voru rúmlega 295 skjálftar á Reykjanesi, en þeir voru nokkuð dreyfðir um skagann. Þann 5.ágúst fór óróinn við eldgosið við Litla-Hrút að minnka og sömuleiðis virknin í gígnum. Um klukkan 15 sama dag hætti virknin alveg í gígnum. Áfram haldandi virkni var SA af Skjaldbreið og mældust rúmlega 160 skjálftar mældust suðaustur af Skjaldbreið. Stærsti jarðskjálfti vikunnar mældist þann 6.júlí um 65 km norður af Kolbeinsey, hann mældist 3.5 að stærð.
Nánar má skoða skjálftavirkni hér: SkjálftaLísa
Um 840 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðinni viku, þar af hafa um 610 verið handvirkt yfirfarnir. Af þeim 840 skjálftum sem mældust í vikunni voru rúmlega 280 skjálftar á Reykjanesi, en þeir voru nokkuð dreyfðir um skagann. Smáhrina hófst á Torfajökulssvæðinu þann 30.júlí og hafa um 75 skjálftar mælst á svæðinu. Stærsti skjálftinn mældist 30.júlí og reyndist hann 3.2 að stærð. Skjálftinn fannst í Hrauneyjum, Landmannalaugum og fleiri stöðum á Fjallabaki nyðra. Stærsti jarðskjálfti vikunnar mældist í Bárðarbungu þann 28.júlí og reyndist hann 3.6 að stærð. Áfram haldandi virkni var SA af Skjaldbreið og mældust tæplega 150 skjálftar þar í vikunni.
Lesa meira
Um
1100
jarðskjálftar
mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðinni viku,
þar af hafa riflega
500
verið handvirkt yfirfarnir. Af
þeim 1100
skjálftum sem mældust í vikunni voru tæplega
540
skjálftar á Reykjanesi, flestir yfir kvikuganginum sem liggur milli
Litla Hrúts og Keilis og
við
Kleifarvatn.
Stærsti
jarðskjálfti vikunnar mældist í
suðvestur Mýrdalsjökli af stærð 3,5
þann
23.
júlí
kl. 23:17
og
fanns hann vel m.a. í Þórsmörk, á Skógum og Hvolsvelli.
Áfram haldandi
virkni
var SA af Skjaldbreið í vikunni
og
jókst skjálftavirknin
til muna þann
20. júlí. Alls mældust um
270
skjálftar í vikunni SA
af Skjaldbreið og
var stærsti skjálftinn 3,0 að stærð þann 20. júlí.
Nánar má skoða skjálftavirkni hér: Skjálfta Lísa
Lesa meiraAf annarri virkni er frá því að segja áframhaldandi skjálftavirkni var um 6 km suðaustan við Skjaldbreið sem hófst fyrir 3 vikum og utan Reykjanesskaga var helsta virkni vikunnar á Tjörnesbrotabelti, þar af ríflega 30 skjálftar um 10 km norðaustur af Grímsey.
Nánar má skoða skjálftavirkni hér: Skjálfta Lísa
Um 1500 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðinni viku, þar af hafa rúmlega 700 verið yfirfarnir. Talsvert fleiri jarðskjálftar mældust en í vikunni á undan þegar um 715 jarðskjálftar mældust. 12 jarðskjálftar mældust yfir stærð 3.0, þar af 11 í Mýrdalsjökli og einn við Þórðarhyrnu í Vatnajökli. Stærsti skjálftinn var af stærð 4,4 í Mýrdalsjökli þann 30. júlí. Mest virkni var við Vífilsfell, þar sem hrina hóft 1. júlí, eða um 700 jarðskjálftar.
Nánar má skoða skjálftavirkni hér: Skjálfta
Lísa
Rúmlega
715
jarðskjálftar
mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðinni viku,
þar af hafa um 694
verið handvirkt yfirfarnir. Jarðskjálftavirknin er aukin frá í
vikunni á undan (viku 24)
þegar um 660
jarðskjálftar voru staðsettir. Stærsti jarðskjálfti vikunnar
mældist þann
24. júní kl 11:50, af stærð 3,8
og
var staðsettur í miðri öskjunni í Kötlu.
Skjálftavirkni
í Mýrdalsjökli hefur verið talsverð í þessari viku þar
sem 177 skjálftar mældust og
8 skjálftar voru
af
stærð 2.5 eða stærri. Að auki var skálfti í Bárðarbungu af
stærð 2.6 og skjálfti við Fagradalsfjall af
stærð 2.6. Mikil
smáskjálfta virkni var á Reykjanesskaga í vikunni sérstaklega á
milli Fagradalsfjalls og Keilis þar sem tæplega 140
smáskjálftar
voru staðsettir flestir minni en 1,5 að stærð. Einnig
voru minni hrinur við Reykjanestá og Krýsuvík.
Yfirlit
Rúmlega 660 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðinni viku, þar af hafa um 600 verið handvirkt yfirfarnir. Jarðskjálftavirknin er aukin frá í vikunni á undan (viku 23) þegar um 550 jarðskjálftar voru staðsettir. Stærsti jarðskjálfti vikunnar mældist 3,1 að stærð í Bárðarbungu. Við Geitlandsjökul mældist skjálfti af stærð 2,9. Mikil smáskjálfta virkni var á Reykjanesskaga í vikunni sérstaklega á milli Fagradalsfjalls og Keilis þar sem tæplega 130 smáskjálftar voru staðsettir flestir minni en 1,5 að stærð.
Nánar má skoða skjálftavirkni hér: Skjálfta Lísa
Lesa meiraÍ viku 23 mældust ríflega 550 jarðskjálftar með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands, sem er aðeins minna en í síðustu viku þegar 584 skjálftar mældust. Stærsti skjálfti vikunnar mældist 3,4 að stærð í Bárðarbungu rétt eftir miðnætti 5. júní og annar um 3 að stærð á sömu slóðum þann 9. júní. Virkni við Surtsey tók sig upp og mældist stærsti skjálftinn þar einnig 3 að stærð. Töluverð virkni var í Mýrdalsjökli samanborið við fyrri viku og mældist stærsti skjálftinn 2,5 að stærð kl. 15:40 þann 10. júní. Einnig mældust um 20 skjálftar vestan Merkurjökuls í lítilli hrinu þann 8. júní.
Fjórir skjálftar mældust í og við Heklu. Annars var nokkuð hefðbundin jarðskjálftavirkni við helstu eldstöðvar landsins og við þekkt sprungusvæði og brotabelti.
Nánar
má skoða skjálftavirkni hér: Skjálfta
Lísa
Nánar má skoða skjálftavirkni hér: Skjálfta Lísa
Lesa meiraUm 310 jarðskjálftar mældust á mælakerfi Veðurstofu Íslands í vikunni sem leið. Það er nokkrir færra en í vikunni á undan, þegar um 350 mældust. Stærsti skjálfti vikunnar var 2,7 að stærð og varð hann 21. maí í Bárðarbúngu. Fimm skjálftar mældust í Heklu, sá stærsti 1,5 að stærð.
Lesa meiraUm 350 jarðskjálftar mældust á mælakerfi Veðurstofu Íslands í vikunni sem leið. Það er heldur færra en í vikunni á undan og enn færri en vikuna þar á undan. Stærsti skjálfti vikunnar var aðeins 2,8 að stærð og varð hann þriðudaginn 9. maí við Kolbeinsey. Aðeins þrír aðrir skjálftar mældust yfir tveimur í vikunni, í Öskju og á Tjörnesbrotabeltinu. Skjálftavirkni við Grímsvötn hefur róast, en þar mældust aðeins 12 skjálftar í vikunni samanborið við 30 vikuna á undan. Tveir litlir skjálftar mældust í Heklu.
Lesa meiraUm 570 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðinni viku, sem er svipaður fjöldi og í vikunni á undan þegar þeir voru um 560 talsins. Stærsti jarðskjálfti vikunnar mældist 2,9 að stærð við Eldey suðvestur af Reykjanestá. Við Grímsvötn mældust rúmlega 20 skjálftar þessa vikuna og áfram má því greina aukna smáskjálftavirkni þar á svæðinu. Norðan við Þorbjörn á Reykjanesskaga var einnig talsverð smáskjálftavirkni en þar mældust tæplega 150 jarðskjálftar í tveimur hrinum þann 25. og 26. apríl. 30 skjálftar mældust í Mýrdalsjökli og nokkrir smáskjálftar mældust við Heklu.
Lesa meiraUm 560 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðnni viku, færri en vikuna á undan þegar þeir voru um 620 talsins. Mest var virknin á Tjörnesbrotabeltinu en hrina var í Eyjafjarðarál í vikunni og þar mældust um 90 skjálftar og jafnframt stærsti skjálfti vikunnar, M4,2 að stærð, þann 18. apríl kl. 07:59. Fannst hann í byggð á Siglufirði. Einnig var nokkur virkni í Vatnajökli og var hún nokkuð drefið um jökulinn. Þann 23. apríl mældist skjálfti af stærð M3,2 í Bárðarbunguöskjunni og sama dag mældust 3 skjálftar í Grímsvötnum yfir 2,5 að stærð, þeirra stærstur var af stærð M3,3.
Minni virkni var í Öskju og við Herðubreið en í fyrri viku en þrír skjálftar mældust í Geitlandsjökli og einn skjálfti í Fljótum í Skagafirði sem mældist 2,8 að stærð en þar hafa mælst skjálftar áður þó fátíðir séu.
Virkni á Reykjanesskaga var nokkuð minni en í fyrri viku og var hún nokkuð dreifð um skagann en áfram mælast skjálftar norðan við Hlíðarvatn, sá stærsti M2,7 þann 17. apríl. Einn skjálfti mældist í Heklu og nokkur virkni var á Hengilssvæðinu við Húsmúla.
Lesa meiraUm 620 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðnni viku, fleiri en vikuna á undan þegar þeir voru um 450 talsins. Allir skjálftar á og við land mældust undir þremur að stærð en stærstu skjálftarnir mældust 3,0 að stærð um 230km norður á Kolbeinseyjahrygg. Um sextíu skjálftar mældust í hrinu sem hófst 15 apríl um 7 km suðvestur af Reykjanestá, þar mældist stærsti skjálftinn 2,6 að stærð. Um 140 skjálftar mældust í smáskjálftahrinu sem hófst 5. apríl rétt vestur af Herðubreið. Rúmlega fjörtíu skjálftar mældust um 1,5 km norður af Hlíðarvatni á Reykjanesskaga, stærsti skjálftinn mældist þar 2,7 að stærð. Önnur virkni var hefbundin
Um 450 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðinni viku, aðeins fleiri en í síðustu viku en á pari við fjölda skjálfta vikuna þar áður. Stærstu skjálftar vikunnar voru tæpa 70 km norður af Siglufirði í smá jarðskjálftahrinu sem stóð yfir 4. til 6. apríl og mældust 3 skjálftar yfir 3 að stærð, sá stærsti 3,5 þann 5. apríl. Annar skjálfti af stærð 3,5 mældist einnig tæpa 200 km SV af Jan Mayen.
Um 390 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðinni viku, færri en vikuna á undan þegar þeir voru um 470 talsins. Enginn skjálfti mældist yfir þremur að stærð í liðinni viku en stærsti skjálftinn varð rétt norðaustur af Grímsey þann 29. mars og mældist sá skjálfti 2,9 að stærð, alls hafa um 50 skjálftar mælst þar í nágrenni í síðustu viku. Smáskjálftahrina hófst við Högnarhöfða að kvöldi 31. mars og stendur enn yfir, alls hafa um fimmtíu skjálftar mælst þar á svæðinu.
Lesa meiraRúmlega 470 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðinni viku, sem er nokkuð fleiri en mældust í vikunni á undan eða um 360 skjálftar. Stærsti skjálfti vikunnar mældist 2.8 að stærð í Mýrdalsjökli þann 22. mars. Skjálftavirkni í Mýrdalsjökli færðist aftur í aukana í liðinni viku en rúmlega 50 skjálftar mældust sem er svipaður fjöldi og í viku 10 en í viku 11 mældust aðeins 19 skjálftar. Smá hrina hófst þann 23.mars um 1.5 km norður af Hlíðarvatni á Reykjanesskaganum enalls mældust um 130 skjálftar.
Rúmlega 360 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðinni viku, sem er nokkuð færri en mældust í vikunni á undan þegar um 500 skjálftar mældust. Stærsti skjálfti vikunnar mældist 3,1 í Bárðarbungu þann 19. mars. Skjálftavirkni í Mýrdalsjökli hefur farið dvínandi frá því í vikunni á undan en þar mældust 19 skjálftar í viku 11 í samanburði við 50 skjálfta í viku 10. Við Herðubreið og Herðubreiðartögl mældust um 50 jarðskjálftar. Nokkuð var um skjálfta á Reykjanesskaga og Reykjaneshrygg þar sem rúmlega 165 skjálftar mældust sem dreifðust víða um sniðreksbeltið. Einn skjálfti að stærð 0.7 að stærð mældist í Heklu.
Rúmlega 500 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðinni viku, sem eru talsvert fleyri skjálftar en mældust í fyrri viku þegar um 390 skjálftar mældust. Stærsti skjálfti vikunnar mældist 3,8 austnorðaustan við Grímsey í jarðskjálftahrinu þar 10 og 11. mars er taldi rúmlega 100 jarðskjálfta. 4 jarðskjálftar yfir 3,0 að stærð mældust í Mýrdalsjökli en þar var fremur mikil virkni þessa vikuna og mældust þar rúmir 50 jarðskjálftar. Við Herðubreið og Herðubreiðartögl mældust um 70 jarðskjálftar. Við Húsmúla, í suðvestanverðum Henglinum mældust rúmir 4 tugir skjálfta. Suðvestur af Reykjanestá mældust einnig um 20 jarðskjálftar í þyrpingu þann 6. mars.
Um 390 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðinni viku, sem eru töluvert færri skjálftar en mældist í fyrri viku þegar um 440 skjálftar mældust. Stærsti skjálfti vikunnar varð norðan við Herðubreið þann 5. mars en hann mældist 3.4 að stærð. Nokkur virkni var í Mýrdalsjökli og var hún frekar lotubundin en stærsti skjálftinn þar mældist 3,2 að stærð þann 27. febrúar. Einn skjálfti mældist í Hofsjökli og annar í Tungnafellsjökli auk þess sem einn skjálfti mældist í Heklu.
Um 370 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðinni viku, sem er svipaður fjöldi og í vikunni á undan þegar um 400 skjálftar mældust. Stærsti skjálfti vikunnar á landinu mældist 3,5 að stærð við Herðubreið þann 17. febrúar. Þann 14. febrúar mældist jarðskjálftahrinu norður af Kolbeinsey þar sem 10 skjálftar á bilinu 2,3 –3,6 að stærð. Athygli vakti að gervitunglamyndum sást að ísinn á Öskjuvatni var að miklu leyti búinn að bráðna, sem er að gerast óvenjusnemma á árinu. Síðast gerðist það svo snemma árið 2012, en þá brotnaði ísinn upp í mars. Nánar er farið yfir þennan atburð í frétt á vefsíðu Veðurstofunnar.
230 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðinni viku, aðeins færri en í vikunni á undan þegar um 260 skjálftar mældust. Engin skjálfti mældist yfir 3 að stærð í vikunni en stærsti skjálftinn var 2,7 að stærð í Mýrdalsjökli. Svipuð eða minni virkni var á öllum svæðum í samanburði við vikuna á undan. Líkt og síðustu vikur hafa mælst um 3 tugir jarðskjálfta í Mýrdalsjökli. Sjö skjálftar mældust í Grímsvötnum sem er heldur fleiri en vikunni á undan, en enginn skjálfti mældist í Heklu.
Lesa meiraUm 260 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðinni viku og hafa þeir allir verið yfirfarnir. Þetta er svipaður fjöldi og í viku 2. Líkt og undanfarnar vikur hafa mælst um 3 tugir jarðskjálfta í Mýrdalsjökli. Stærsti skjálfti vikunnar mældist 2,9 að stærð í Bárðarbungu.
Lesa meiraRúmlega 240 skjálftar mældust á SIL mælakerfi Veðurstofunnar í liðinni viku og hafa allir verið yfirfarnir. Þetta eru aðeins færri skjálftar en í vikunni á undan, en þá mældust um 350 skjálftar. Mest virkni var við Reykjanestá, í Mýrdalsjökli og á Grímseyjarbrotabeltinu. Stærstu skjálftar vikunnar mældust 2,8 og 2,9 á Kolbeinseyjarhrygg en annars mældist skjálfti við Kleifarvatn sá stærsti á landi 2,8 að stærð þann 11. janúar. Virkni við Grjótárvatn hélt áfram í vikunni. Áhugaverður skjálfti mældist langt úti fyrir Langanesi og var 3,5 að stærð þann 10. janúar sl. Enginn skjálfti mældist í Heklu.
Lesa meiraUm 350 skjálftar mældust á SIL mælakerfi Veðurstofunnar í liðinni viku og hafa allir verið yfirfarnir. Þetta eru aðeins færri skjálftar en í vikunni á undan, en þá mældust um 425 skjálftar. Mest virkni var við Reykjanestá, í Mýrdalsjökli, í Bárðarbungu og á Grímseyjarbrotabeltinu. Þrír skjálftar mældust 3,0 að stærð eða stærri: á Reykjaneshrygg 3. janúar en það var jafnframt stærsti skjálfti vikunnar (3,3 að stærð), á Reykjanestá 6. janúar og í Bárðarbungu 8. janúar.
Lesa meira