Jarðskjálftavirkni í apríl 2026
Samantekt
Um 3000 skjálftar mældust í apríl 2026. Af þeim hafa um 2500 skjálftar hafa verið yfirfarnir. Óyfirfarin virkni er m.a. í lítlli skjálftahrinu úti fyrir Reykjanestá 25. apríl, smáskjálftavirkni í Bárðarbungu og einnig í Mýrdalsjökli, sem dreifðist yfir mánuðinn, og í smáskjálftahrinu í Axarfirði 18. og 19. apríl, auk dreifðrar virkni víðar um landið. Skjálftafjöldi í aprílmánuði er svipaður og í mars. Hrinuvirkni var m.a í Flóanum, rétt sunnan við Hestfjall 12. og 13. apríl. Einnig mældist hrina rétt úti fyrir Reykjanestá um miðnætti aðfaranótt 26. apríl. Að auki var nokkuð kviðukennd skjálftavirkni úti á Reykjaneshrygg, tæpa 20km úti fyrir Eldey. Síðan má einnig telja til smá hrinu á Grímseyjarbrotabeltinu, um 18km ASA af Grímsey. Stærstu skjálftar mánaðarins voru skjálftar tæplega 250km úti á Reyjaneshrygg 26. apríl - 3.0-3.5 að stærð, en einnig mældist 3.3 um 20km úti fyrir Eldey 27. apríl og 3.2 í Bárðarbungu 25. apríl.
Reykjaneshryggur
Um 200 skjálftar mældust í mánuðinum á Reykjaneshrygg, þar af var virkni að mestu bundin við jarðskjálftahrinu rétt úti fyrir Reykjanestá um miðnætti aðfaranótt 26. apríl. Þá mældust um 70 skjálftar á skömmum tíma, þar af var stærsti skjálftinn af stærð 3.0. Einnig var nokkur skjálftavirkni að mælast um 5km austar og að auki var lítil hrina um 20km úti fyrir Eldey 27. apríl þar sem mældist skjálfti af stærð 3.3. Síðan má nefna skjálfta sem mældust um 250km úti á hrygg 26. apríl þar sem 3 skjálftar mældust 3.0-3.5.
Reykjanesskagi
Tæplega 500 skjálftar mældust á Reykjanesskaga í apríl. Nokkur skjálftavirkni hefur verið við Víkur, sunnan Eldvarpa, einnig hafa ríflega 30 skjálftar mælst í kvikugangi eða rétt við Grindavík. Nokkuð hefðbundin dreifð virkni hefur verið í Fagradalsfjalli og í kringum Krísuvík og Kleifarvatn. Nokkrar þyrpingar hafa raða sér upp í Þrengslum og nágrenni.
Vatnajökull
Alls mældust um 450 skjálftar í og við Vatnajökul. Þar af var helsta virknin í Bárðarbungu eða tæplega 300 skjálftar. Þó nokkur smáskjálftavirkni hefur verið í Bárðabungu undanfarið en þetta er ríflega tvöföldun á fjölda skjálfta í Bárðarbungu m.v. mars þegar 120 skjálftar mældust. Stærsti skjálftinn var 3.2 að stærð 25. apríl. Nokkuð minni virkni hefur verið á djúpa svæðinu í þessum mánuði m.v. marsmánuð en aðeins mældust 16 skjálftar þar samanborið við 64 í mars.
Nokkuð hefðbundin virkni mældist í Grímsvötnum, Hamrinum og Öræfajökli samanborið við síðustu mánuði.
Grjótárvatn
Um 110 skjálftar mældust við Grjótárvatn í mánuðinum. Þessi fjöldi stemmir við áframhaldandi fækkun skjálfta mánaðarlega á svæðinu, en þeir voru 180 í febrúar og 130 mars. Skjálftarnir voru yfirleitt á 15-20km dýpi, stærsti skjálftinn mældist 2.0 en flestir mældust um eða undir 1.0 að stærð.
Vesturgosbeltið
Hengill
Þó nokkur skjálftavirkni hefur mælst á Nesjavallaleið, sunnan við Grímansfell. Virknin hér hófst um miðjan mánuð, en náði mestum krafti 21.-25. apríl. Alls mældust tæplega 70 skjálfta í þessari þyrpingu.
Um 20 skjálftar mældust við Nesjavallavirkjun 1. apríl, þar af var stærsti skjálftinn af stærð 2.3. Önnur virkni í og við Hengilinn var nokkuð dreifð og hefðbundin.
Langjökull
Áframhaldandi skjálftavirkni hefur verið í Langjökli og nágrenni í aprílmánuði þar sem alls mældust tæplega 30 skjálftar, sér í lagi í Geitlandsjökli og Þórisjökli þar sem mældust rúmlega 20 skjálftar í mánuðinum sem er á pari við mars og febrúar. Að auki mælast áfram nokkrir sjálftar á Kili, við upptök Blöndu, líkt og í marsmánuði og einnig á svæði um 10km í NA þar sem mældust nú 15 skjálftar líkt og í febrúar. Einn skjálfti mældist rétt austan við Arnarvatnsheiði.
Mið-Íslandsgosbeltið
Hofsjökull
15 skjálftar mældust í Hofsjökli í mánuðinum sem er jafn samanlögðum fjölda skjálfta í jan, feb og mars. Virkni er á hefðbundnum stöðum í vestanverðum jöklinum.
Austurgosbeltið
Katla
Mjög dreifð og hefðbundin virkni var í Mýrdalsjökli, tæplega 150 skjálftar mældir. Það er aðeins minna en í mars þegar um 200 skjálftar mældust en svipað og í febrúar. Flestir skjálftanna voru innan Kötluöskju.
Torfajökull
Um 70 skjálftar mældust í og við Torfajöklusöskjuna í mánuðinum, sem er á pari við virkni mars mánaðar, ef frá er talin virknin við Brennisteinsöldu í mars. Eins og hefðbundið er þá var helsta viknin mæld í vestanverðri öskjunni.
Hekla
Virkni í Heklu var hefðbundin í apríl, aðeins 6 skjálftar mældir. Það er töluvert minna en í mars þegar um 20 skjálftar mældust.
Vestmannaeyjar
Þrír skjálftar mældust SV af Surtsey 6. apríl.
Norðurgosbeltið
Askja og Herðubreið
Hefðbundin virkni var við Öskju og að mestu bundin við austurhluta öskjunnar. Við Herðubreið og Herðubreiðartögl var einnig nokkuð eðlileg virkni, en eitthvað er vert að nefna má benda á smá þyrpingu skjálfta 24.-27. apríl rétt austan við töglin.
Suðurlandsbrotabeltið
Um 200 skjálftar mældust á Suðurlandsundirlendinu í apríl, þar af flestir í hrinu í Flóanum sem taldi um 125 skjálfta 12.-13. apríl.
Tjörnesbrotabeltið
Um 600 skjálftar mældust á Tjörnesbrotabeltinu í mánuðinum sem er ríflega tvöfalt magn þeirra skjálfta sem mældust í mars og fleiri en allir mældir skjálftar í jan, feb og mars samanlagt. Má þar helst nefna aukna virkni á Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu og hrinuvirkni í Axarfirði og í 18km ASA af Grímsey. Um 15 skjálftar mældust á Kolbeinseyjahrygg.
Breiðafjörður
Áhugaverður skjálfti í Breiðafirði. Tengist líklega gamalli eldstöð, Flateyjareldstöðinni. Samskonar skjálfti í janúar.




