Jarðskjálftayfirlit - júlí 2026
Rúmlega 2000 skjálftar mældust á landinu í júlí, þar af eru yfir 1900 skjálftar yfirfarnir. Skjálftarnir dreifðust vítt og breitt um landið og þeir þrír stærstu voru 3,8 í Mýrdalsjökli 15. júlí, 4,1 á Nesjavöllum 27. júlí sem fannst vel á SV-horni landsins, og 5,2 í Bárðarbungu 28. júlí. Smáhrinur urðu á Reykjaneshrygg 25. júlí og úti fyrir Reykjanestá 10. júlí og 30. júlí. Önnur virkni var með hefðbundnu móti.
Nánar má skoða yfirfarna skjálfta á Skjálfta-Lísu Veðurstofunnar
Reykjanesskagi
Á Reykjanesskaga mældust tæplega 600 skjálftar í júlí, þar af eru um 500 yfirfarnir. Skjálftarnir eru nokkuð dreifðir um skagann og engar hrinur í mánuðinum sem vert er að minnast á. Stærsti skjálftinn í mánuðinum mældist 2,0 að stærð 25 júlí NV við Kleifarvatn. Í kvikuganginum við Grindavík mældust um 30 skjálftar í mánuðinum.
Reykjaneshryggur
Á Reykjaneshrygg mældust um 250 skjálftar í mánuðinum. Tvær hrinur bera ábyrgð á þeim flestum, 25. júlí við Eldeyjarboða annars vegar og 30.-31. júlí við Reykjanestá hinsvegar. Stærsti skjálftinn varð í fyrrnefndri hrinunni, 3,5 að stærð.
Bárðarbunga
Bárðarbunga var með þöglara móti í júlí þar sem mældust 45 skjálftar. Stærsti skjálfti mánaðarins varð í Bárðarbungu 28. júlí og var 5,2 að stærð.
Grjótárvatn
Við Grjótárvatn mældust 116 skjálftar í júlí, sem er ekki ósvipað og undanfarna mánuði. Stærsti skjálftinn þar mældist 2,1 að stærð þann 14. júlí.
Vesturgosbeltið
Hengill
Í Henglinum mældust rúmlega 100 skjálftar í mánuðinum, en þar ber helst að nefna skjálfta á Nesjavöllum 27. júlí sem mældist 4,1 að stærð og er stærsti skjálftinn á Nesjavöllum síðan 1998 þegar varð skjálfti þar 4,6 að stærð. Skjálftinn fannst vel á SV horni landsins og vakti marga á Höfuðborgarsvæðinu og annars staðar í grennd við skjálftann, sem varð um hálf 1 að nóttu.
Langjökull
Um 100 skjálftar mældust í og við Langjökul í júlí, en áfram var megnið af þeim að mælast við Þórisjökul þar sem hefur verið aukin skjálftavirkni síðan í júní. Þó hefur dregið talsvert úr virkninni þar sem tæplega 1000 skjálftar mældust þar í júní.
Austurgosbeltið
Katla
Í Mýrdalsjökli mældust 185 skjálftar í mánuðinum. Jarðhitaleki hefur verið viðvarandi í Múlakvísl og Jökulsá á Sólheimasandi í júlí en engin hlaup orðið, sem er eðlilegt að fá að sumarlagi í Mýrdalsjökli. Stærsti skjálftinn varð 15. júlí og mældist 3,8 að stærð.
Torfajökull
Torfajökull var fremur hæglátur þennan mánuðinn og þar mældust 35 skjálftar. Helst ber að nefna skjálfta sem varð 28. júlí skammt frá Landmannalaugum og mældist 2,9 að stærð, en hann fannst vel á Fjallabaki.
Hekla
Í Heklu og nágrenni mældust 20 skjálftar þennan mánuðinn, allir þeirra smáskjálftar. Þetta er svipuð virkni og hefur verið undanfarna mánuði.
Norðurgosbeltið
Askja
Um 30 skjálftar mældust i Öskju í júlí, en virknin var að mestu leiti bundin við austanverða öskjubrúnina.
Suðurlandsbrotabeltið
Á Suðurlandsbrotabeltinu mældust um 140 skjálftar í mánuðinum, með nokkuð jafnri dreifingu yfir svæðið.
Tjörnesbrotabeltið
Um 200 skjálftar mældust á Tjörnesbrotabeltinu undanfarinn mánuð. Þeir dreifðust vítt og breitt um svæðið og urðu jafnt og þétt yfir mánuðinn.



