Jarðskjálftayfirlit - júní 2026
Reykjaneshryggur
Tæplega 360 skjálftar mældust í júní á Reykjaneshrygg, þar af var virkni að mestu bundin við tvær jarðskjálftahrinur. Fyrri hrinan varð rétt utan við Reykjanestá aðfaranótt 10. júní og mældust þá tæplega 80 skjálftar, þar af var stærsti skjálftinn 2.1 að stærð. Seinni hrinan varð um 20 km SV af Eldey aðfaranótt 22. júní og mældust þá tæplega 60 skjálftar þar af var stærsti skjálftinn 3.1 að stærð. En okkur stöðug virkni hefur annars verið við Reykjanestá og SV af Eldey þennan mánuðinn.
Reykjanesskagi
Um 1120 skjálftar mældust á Reykjanesskaga í júní. Mesta virknin er áfram í Móhálsadal og við Kleifarvatn en einnig var töluverð virkni í Vífilsfeli 1. til 4. júní og mældust um 240 skjálftar á því tímabili. Þann 15. júní var lítil skjálftahrina við Víkur sunnan Eldvarpa og mældust tæplega 60 skjálftar þá og var stærsti skjálftinn 2.8 að stærð, en um 90 skjálftar hafa mælst í júní sem er töluvert meira en síðustu mánuði. Rúmlega 30 skjálftar hafa mælst við Grindavík og Sundhnúksgíga og eru allir undir 0.5 að stærð. Nokkuð hefðbundin dreifð virkni hefur verið í Fagradalsfjalli og Brennisteinsfjöllum.
Bárðarbunga
Um 650 skjálftar mældust í Bárðabungu í júní. Frá 1. til 13. júní var virkni í Bárðabungu frekar jafndreifð yfir öskjuna, en þó helst í austan og sunnanverðiri öskjunni, og mældust að meðaltali 15 skjálftar á dag. Að kvöldi 13. júní varð skjálfti 4.8 að stærð í norðanverðri öskjunni og hófst skjalftahrina í kjölfar hans. Hrinunni lauk um hádegi þann 14. júní og höfðu þá mælst um 440 skjálftar. Skjálftarnir dreifðust einna helst um norðan og vestanverða öskjuna. Í kjölfar hrinunnar hefur dregið töluvert úr virkni í Báðabungu.
Grjótárvatn
Um 100 skjálftar mældust við Grjótárvatn í júní, sem er aðeins minni virkni er fyrri mánuði en um 200 skjálftar mældust í maí en mánuðina fyir það hafa þeir verið á bilinu 110-170 talsins. Flestir skjálftana eru um eða undir 1.0 að stærð en 8 skjálftar voru yfir 1.5 að stærð og þar af sá stærsti 2.0 að stærð þann 21. júní. Dýpi skjlaftanna helst nokkuð stöðugt.
Vesturgosbeltið
Hengill
Að morgni 31. maí hófst jarðskjálftahrina vestur af Húsmúla í Henglinum. Skjálftinn sem hrundi hrinunni af stað mældist 2,8 að stærð og fram til miðnættis 1. júní höfðu mælst um 300 skjálftar. Þann 1. júní mældist stærsti skjálfti hrinunnar en hann var 4.5 að stærð og frá 1. júní og fram til loka hrinunnar þann 4. júní mældust um 1500 skjálftar. Skjálftahrina á þessum stað hefur ekki sést áður. Fjölmargar tilkynningar bárust um að skjálftinn hefði fundist í byggð, allt frá Akranesi og austur undir Eyjafjöll. Brotlausnir stærstu skjálftanna og dreifing eftirskjálfta benda til þess að um sniðgengisskjálfta sé að ræða á N-S misgengi á brotabelti Suðurlands og Reykjaness.
Fyrir utan hrinuna mældust um 100 skjálftar á Hengil svæðinu
Langjökull
Rúmlega 990 skjálftar mældus í og við Langjökul í júní en all flestir þeirra eða tæplega 960 skjálftar mældust við Þórisjökul. Sá stærsti mældist 3,9 að stærð við Þórisjökul þann 3. júní. Þetta er mesta mælda virknin á þessu svæði og mældust flestir skjálftanna í tveimur hrinum sú fyrri 3. til 5. júní þá mældust um 230 skjálftar og sú seinni 23. til 25. júní en þá mældust um 120 skjálftar en þess má geta að það hefur verið stöðug virkni við Þórisjökul þennan mánuðinn.
Austurgosbeltið
Katla
Um 150 skjálftar mældust í Mýrdalsjökli í júní, sem er í meðallagi miðað við síðustu mánuði, og dreifðust þeir um alla Kötluöskjuna. Allir nema 3 skjálftar voru undir 2.5 að stærð en þeir voru 2.5 og 2.6 þann 9. júní og 2.8 30. júní.
Hekla
Hefðbundin virkni var í og við Heklu í maí, en þá mældust tæplega 30 skjálftar sem er á pari við síðustu mánuði síðan SeisComp var tekið í notkun. Stærsti skjálftinn mældist 1.4 að stærð þann 7. júní.
Norðurgosbeltið
Askja
Tæplega 50 skjálftar mældust við og í Öskju í júní og var mesta virknin í austanverðri öskjunni. Nánast allir skjálftarnir voru undir 1.5 að stærð nema einn sem var 1.8 að stærð þann 17. júní.
Suðurlandsbrotabeltið
Tæplega 140 skjálftar mældust á Suðurlandsbrotabeltinu í júní en virknin dreifðist nokkuð jafnt yfir svæðið og mánuðinn. Langflestir skjálftarnir eru um eða undir 1.0 að stærð en einn skjálfti var 2.1 að stærð þann 12. júli við Geldingafjöll. Engar hrinur voru í Þrengslum þennan mánuðinn líkt og þá fyrri.
Tjörnesbrotabeltið
Rúmlega 190 skjálftar mældust á Tjörnesbrotabeltinu í júní sem er nokkuð hefðbundin virkni og svipar til fyrri mánuða þessa árs, ef frá er talinn apríl þegar tæplega 600 skjálftar mældust. Virknin dreifðist nokkuð jafnt um svæðið og yfir mánuðinn. Stærstu skjálftarnir voru 2.1 að stærð og voru þeir báðir um 10 km N af Grímsey sá fyrri 1. júni og seinni 5. júní.




