Jarðskjálftayfirlit

Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í yfirliti sem birt er mánaðarlega á vefnum (frá september 2024). Náttúruvársérfræðingur skrifar yfirlitið sem birt er í annari viku hvers mánaðar. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það.

Mánaðaryfirlit
jarðskjalftar

Jarðskjálftayfirlit - maí 2026

Í maí mældust yfir 4000 skjálftar sem er mun meiri fjöldi og síðastliðna þrjá mánuði þegar mældust um 3000 skjálftar að meðaltali, í janúar hinsvegar mældust aðeins um 1900 skjálftar. Til hrinuvirkni telst hrina á Reykjaneshrygg sem hófst þann 23. maí þegar samtals um 400 skjálftar mældust. Þá mældust um 100 skjálftar í Þrengslum við Raufarhólshelli á milli 19. og 22. maí. Skjálfti af stærðinni 3,6 mældist á Mosfellsheiði þann 13. maí og fylgdu þá nokkrir minni á eftir. Við Nesjavallavirkjun mældust um 35 skjálftar á milli 8. og 10. maí. Áhugaverð virkni hefur svo verið við Þórisjökul þennan mánuðinn, en þar hafa um 220 skjálftar mælst, meginþorrinn milli 9. og 24. maí. Virkni milli Blöndulóns og Hofsjökuls hefur haldið áfram í maí, yfir 20 skjálftar, og um 12 skjálftar mældust í NV-verðum Hofsjökli. Virkni við Herðubreið og Upptyppinga hefur aðallega komið fram í um 6-7 þyrpingum yfir mánuðinn og mældust yfir 200 skjálftar. Að morgni 31. maí hófst skjálftahrina vestur af Húsmúla í Henglinum með skjálfta upp á 2,8 að stærð. Fram til miðnættis 1. júní höfðu um 300 skjálftar mælst og hélt hrinan áfram eftir það. Stærsti skjálfti maímánaðar var 3,8 í Bárðarbungu þann 28. maí, en fjöldi skjálfta þar hefur verið óvenjulega mikill.

Nánar má skoða skjálftavirkni í  Skjálfta-Lísu

Reykjaneshryggur

Um 560 skjálftar mældust á Reykjaneshrygg í maí, flestir þeirra, eða um helmingur, í hrinu 23.-26. maí um 10 km VSV af Reykjanesvita. Stærsti skjálftinn í þeirri hrinu mældist 3,5 að stærð og er jafnframt stærsti skjálftinn á svæðinu þennan mánuðinn. Afgangur skjálftanna mældist í fjórum til fimm smærri þyrpingum á svæði sem spannar um 75 km frá ströndu.

Reykjanesskagi

Um 560 skjálftar mældust á Reykjanesskaga í maí. Mesta virknin er áfram í Móhálsadal og við Kleifarvatn. Við Grindavík og Sundhnúksgíga mældust 55 skjálftar, sá stærsti 1,2 að stærð rétt sunnan við Þorbjörn, en á því svæði hafa flestir skjálftarnir mælst. Þetta er svipaður fjöldi skjálfta og hafa mælst undanfarna mánuði. Virkni á sprungusvæðinu við Víkur sunnan Eldvarpa heldur áfram og mældust þar um 40 skjálftar, sem er svipaður fjöldi og síðustu mánuði en í febrúar mældust þeir þó talsvert fleiri, eða um 80 talsins.

Þrír stærstu skjálftar mánaðarins voru á bilinu 1,8 og 1,9 að stærð í Brennisteinsfjöllum í byrjun mánaðar, en á milli 60 og 70 skjálftar mældust á því svæði í maí.

Vatnajökull

Um 780 skjálftar mældust í og við Vatnajökul þennan mánuðinn, en meginþorri þeirra mældist í Bárðarbungu. Þetta er talsverð aukning í skjálftum frá því sem gerist venjulega, en Bárðarbunga hefur verið sérstaklega virk þennan mánuðinn. Virkni annars staðar er hefðbundin, þó má merkja örlitla aukningu í skjálftum í Kverkfjöllum. Þar mældust tæplega 15 skjálftar í maí en hafa yfirleitt mælst um 5 talsins.

Bárðarbunga

Tæplega 560 skjálftar mældust í Bárðarbungu í maí og er þeim frekar jafndreift yfir öskjuna en voru þeir þó helst til í henni sunnanverðri. Flestir skjálftarnir eru um eða undir 2 að stærð en stærstu skjálftarnir mældust 3,7 og 3,8 að stærð þann 25. maí. Dreifing virkninnar er hefðbundin en fjöldinn verður að teljast óvenjulegur. Þegar horft er aftur til janúar 2020 sést að aðeins einu sinni nær fjöldinn rétt yfir 200 skjálfta, í apríl í fyrra. Um 130 skjálftar mældust í febrúar í fyrra en yfirleitt var fjöldinn undir 100 skjálftum.

65 skjálftar mældust á djúpa svæðinu milli Bárðarbungu og Kverkfjalla, flestir í hviðum 7. maí og 25.-26. maí. Fjöldi skjálfta er almennt misjafn milli mánaða og mælast yfirleitt um og undir 20 en dýpið er stöðugt um 15-20 km.

Grjótárvatn

Tæplega 200 skjálftar mældust við Grjótárvatn þennan mánuðinn sem eru ívið fleiri skjálftar en síðustu mánuði sem hafa verið á bilinu 110-170 talsins. Dýpi og stærð skjálftanna helst óbreytt en stærsti skjálftinn mældist 1,7 þann 19. maí en flestir skjálftanna voru undir 1 að stærð.

Vesturgosbeltið

Hengill

Fyrir 31. maí mældust um 150 skjálftar á Hengilssvæðinu, helst til í um fjórum litlum þyrpingum. Við Nesjavallavirkjun mældust um 35 skjálftar á milli 8. og 10. maí. Á Mosfellsheiði þann 13. maí mældist skjálfti upp á 3,6 og 20 minni eftirskjálftar í kjölfarið.

Að morgni 31. maí hófst jarðskjálftahrina vestur af Húsmúla í Henglinum. Skjálftinn sem hrundi hrinunni af stað mældist 2,8 að stærð og fram til miðnættis 1. júní höfðu mælst um 300 skjálftar. Hrinan hélt áfram eftir það og var ekki lokið 2. júní þegar mánaðaryfirlitsfundurinn var haldinn. Fram að miðnætti 2. júní höfðu mælst yfir 1000 skjálftar og stærsti skjálftinn þangað til mældist 4,5 að stærð þann 1. júní. Skjálftahrina á þessum stað hefur ekki sést áður. Fjölmargar tilkynningar bárust um að skjálftinn hefði fundist í byggð, allt frá Akranesi og austur undir Eyjafjöll. Brotlausnir stærstu skjálftanna og dreifing eftirskjálfta benda til þess að um sniðgengisskjálfta sé að ræða á N-S misgengi á brotabelti Suðurlands og Reykjaness.

Langjökull

Um 250 skjálftar mældust á svæðinu í maí, flestir þeirra, eða yfir 220, við Þórisjökul frá 9. maí. Sá stærsti mældist 3,0 að stærð við Þórisjökul þann 11. maí.

Hofsjökull

Í NV-verðum Hofsjökli mældust um 15 skjálftar, af þeim voru 10 sem mældust 17.-18. maí.

Önnur svæði

Mitt á milli Hofsjökuls og Blöndulóns, á svæði sem mætti kenna við Ásgeirstungur, mældust tæplega 25 skjálftar. Á þessu svæði og öðru um 10 km SV af, við upptök Blöndu, hafa verið að mælast reglulega skjálftar, en virknin er misjöfn milli mánaða og svæðanna tveggja, það suðvestara er ekki eins virkt.

Austurgosbeltið

Mýrdalsjökull

Í Mýrdalsjökli mældust tæplega 170 skjálftar í maí, sem er í meðallagi miðað við síðustu mánuði, og dreifðust um alla Kötluöskjuna, þó er að finna litlar þyrpingar hér og þar. Allir voru undir 2,5 að stærð en þeir stærstu mældust 2,3 þann 7. maí og 14. maí. Eins og venjulega eru flestir þeirra fastir í og rétt undir yfirborði, en aðrir hafa mælst niður á um 15 km dýpi.

Torfajökull

Skjálftar í Torfajökli mældust um 80 talsins í maí sem er sambærilegt við síðustu mánuði og dreifðust þeir nokkuð jafnt yfir mánuðinn, þó var hviða skjálfta 19. maí og nokkur fjöldi skjálfta mældist upp úr 28. maí. Eins og venjulega voru þeir flestir í vestanverðri öskjunni, en stærsti skjálftinn mældist 1,5 að stærð þann 30. maí í henni sunnanverðri.

Hekla

Hefðbundin virkni var í og við Heklu í maí, en þá mældust tæplega 20 skjálftar sem er á pari við síðustu mánuði. Stærsti skjálftinn mældist 1,6 að stærð þann 22. maí, en skjálfti upp á 1,5 mældist 30. maí.

Norðurgosbeltið

Askja

Rúmlega 50 skjálftar mældust í og við Öskju í maí og flestir þeira í einni þyrpingu í henni austanverðri en þó ekki í hrinu. Allir skjálftarnir voru undir 1 að stærð.

Herðubreið og Upptyppingar

Um 215 skjálftar mældust við Herðubreið, Herðubreiðartögl og rétt austan Upptyppinga í maí. Það sem af er þessu ári hafa um 50-140 skjálftar mælst á þessi svæði og má því tala um aukna virkni. Virknin kom fram í sex til sjö litlum þyrpingum, hver með um 10-40 skjálftum. Stærsti skjálftinn mældist 2,3 að stærð rétt austan við nyrðri enda Herðubreiðartagla þann 12. maí. Flestir voru skjálftarnir á um 4-11 km dýpi en grynnstu skjálftarnir voru á um 1-4 km dýpi og mældust flestir í austanverðum Upptyppingum.

Suðurlandsbrotabeltið

Um 190 skjálftar mældust á Suðurlandsbrotabeltinu í maí, en flestir þeirra, eða um 120, mældust í hrinu í Þrengslum 19.-22. maí. Á þeim slóðum hafa orðið hrinur í hverjum mánuði síðan í febrúar. Þær hafa þó verið misstórar en sú minnsta taldi um 35 skjálfta í febrúar og sú stærsta um 300 í mars. Virkni í maí hefur annars dreifst nokkuð jafnt bæði í tíma og rúmi.

Tjörnesbrotabeltið

Nokkuð hefðbundin virkni hefur verið á Tjörnesbrotabeltinu í maímánuði og mældust um 215 skjálftar, sem er svipað og síðustu mánuði, ef frá er talinn apríl þegar ríflega 600 skjálftar mældust. Engin sérstök hrinuvirkni varð á tímabilinu en um 20 skjálftar mældust í einni þyrpingu rétt norðan við Flatey 6. og 7. maí og um 10 í annarri þyrpingu um 20 km SA af Grímsey. Stærstu skjálftarnir mældust 2,7 að stærð um 60 km NV af Grímsey þann 5. maí og um 20 km N af Hofsósi þann 31. maí.







Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica