Jarðskjálftayfirlit viku 19, 6. maí – 12. maí 2024
Reykjanesskagi og Reykjaneshryggur
Rúmlega 600 skjálftar mældust á Reykjanesskaganum í vikunni, sem er aukning frá siðasti vika, þegar um 500 skjálftar mældust. Virknin var nokkuð dreifð um skagann en mest var virknin við Sundhnúksgýgaröðina, milli Grindavíkur og Þorbjörns, við Fagradalsfjall, milli Trölladyngju og Kleifarvatns og svo við Reykjanestá.
Úti á Reykjaneshrygg mældust tæplega 30 skjálftar, stærsti skjálftinn mældist 2,8 að stærð rétt vestan við Eldey en þar hófst smá hrina þann 6. maí.
Suðurlandsbrotabeltið og Hengilssvæðið
Tæplega 30 skjálftar mældust á Hengilssvæðinu, nokkuð dreift um svæðið, sá stæsti 1,7 að stærð í smáhrinu norðan við Innstadal og nokkrir mældust í Húsmúla. Aðrir skjálftar mældust um og undir einum.
Þá mældust rúmlega 25 skjálftar á Suðurlandsbrotabeltinu nokkuð jafndreift um svæðið.
Einn skjálfti mældist í Heklu í vikunni.
Vesturgosbeltið og Mið-Íslandsgosbeltið
Fjórir skjálftar mældust á vestra gosbeltinu, tveir í Hofsjökli, einn í Langjökli og annar við Þjófadali.
Austurgosbeltið
Mýrdalsjökull
og Torfajökulssvæði
Um
5
skjálftar
mældust í Mýrdalsjökli, flestir
innan
öskjunnar
en
um 20 mældust þar í fyrri viku.
Stærsti skjálfti var 1,4
að stærð. Í
Eyjafjallajökli mældist einn skjálfti og á
Torfajökulssvæðinu mældust
3
smáskjálftar, stæsti
1,7
að stærð rétt
við Löngusátu.
Vatnajökull
Rúmlega
30
skjálftar mældust í Vatnajökli þessa viku, sem eru færri
enn vikuna á undan, þegar 40
skjálftar mældust. Einn
skjálfti mældist í Bárðarbungu (1,9
að stærð)
og um
6
mældust á djúpa svæðið suðaustur af Bárðarbungu. Tíu
skjálftar
mældust
í Grímsvötnum í vikunni, stærsti
1,6 þann 9. maí.
Nokkrir
skjálftar við austanverðan Skeiðarárjökul en önnur
virkni var dreyfð.
Norðurgosbeltið
Askja og Herðubreið
Við Öskju mældust rúmlega 20 smáskjálftar, sem er færri en í síðustu viku, þegar rúmlega 30 mældust. Flestir þeirra eru austan megin við Öskjuvatn en einnig nokkrir við norðanverðan öskjubarminn, þar mældist sá stærsti í Öskju í vikunni, sem mældist 1,9 að stærð. Um 40 skjálftar mældust við Herðubreið og Herðubreiðartögl, flestir undir einni af stærð en stæsti 1,4 að stærð.
Krafla og Þeistareykir
Þrír skjálftar mældust við Kröflu og við Bæjarfjall mældust 2 smáskjálftar.
Tjörnesbrotabeltið
Rúmlega
50 skjálftar
mældust á Tjörnesbrotabeltinu, svipaður
fjöldi og í fyrri viku.
Flestir
mældust í hrinu í Öxarfirði og þar mældist stærsti skjálftinn
2,5 að stærð þann 7. maí.
Tæplega
10 skjálftar mældust á
Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu
og um
6
skjálftar mældist austur
af Grímsey.
Einn
skjálfti, af stærð 1,4 mældist í Flateyjardal.