Jarðskjálftayfirlit

Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í yfirliti sem birt er mánaðarlega á vefnum (frá september 2024). Náttúruvársérfræðingur skrifar yfirlitið sem birt er í annari viku hvers mánaðar. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það.

Mánaðaryfirlit

Jarðskjálftayfirlit 28. viku - 10. – 16. júlí 2023

Reykjanesskagi og Reykjaneshryggur 

Ríflega 2400 skjálftar mældust á Reykjanesskaga í vikunni, um 1600-1700 skjálftar voru yfir eða í grennd við kvikugang sem myndaðist 4.-10. júlí milli Litla Hrúts og Keilis, flesta þeirra má telja til gikkskjálfta . Einnig mældust um 300 skjálftar við Kleifarvatn og um þriðjungi minna vestan megin á skaganum. Einungis hefur tekist af yfirfara brot af þeim skjálftum sem mældust en áhersla hefur verið lögð á að yfirfara stærri skjálfta á skaganum. Einnig mældust um 20 skjálftar á Reykjaneshrygg og úti fyrir Reykjanestá.



Vesturgosbeltið

 Um 60 skjálftar mældust á Vesturgosbeltinu. Nærri Henglinum má nefna smá smáskjálftavirkni við Húsmúla, nokkrir ofan við Hveragerði og þrír við Dyrfjöll. Tæplega 40 skjálftar mældust suðaustur af Skjaldbreið þar sem skjálftavirkni hefur verið síðustu vikur. Þrír skjálftar mældust við Geitlandsjökul og einn ofan við Grjótárvatn.

Suðurlandsbrotabeltið  

Tiltölulega hefðbundin virkni var á Suðurlandsbrotabeltinu en helsta virknin var við ósa Ölfusár.

 

Austurgosbeltið 

Mýrdalsjökull og Torfajökulssvæði.
13 skjálftar mældust í Mýrdalsjökli í vikunni, allir smáir. 6 skjálftar voru á Torfajökulssvæðinu.

Vatnajökull
6 skjálftar mældust í Bárðarbungu í vikunni, allir smáir. 10 skjálftar mældust í Öræfajökli.



Norðurgosbeltið  

Tiltölulega fáir skjálftar mældust á gosbeltinu, flestir í Öskju, en aðrir voru við Herðubreið eða Bæjarfjall.

Askja
Í Öskju mældust tæplega 30 skjálftar, nær allir austan megin við Öskjuvatn. Einn skjálfti mældist norðaustur af Öskju á 24 km dýpi.

Tjörnesbrotabeltið 

Um 90 skjálftar mældust á Tjörnesbrotabeltinu, mest á Grímseyjarbrotabeltinu og þar af flestir um 10 km austur af Grímsey.



  Skjálftalisti viku 26





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica