Jarðskjálftayfirlit - janúar 2026
Í janúar mældust tæplega 1940 jarðskjálftar á landinu, sem er nokkuð undir meðaltali. Virknin var að mestu hefðbundin en nokkrir skjálftar urðu á óalgengum stöðum utan gos- og brotabelta, á Víðistaðatunguheiði norðan Langjökuls, í Ásgeirstungum milli Langjökuls og Hofsjökuls, og á Búðarhálsi. Skjálftar 3 að stærð og stærri voru 11 talsins ef meðtaldir eru þrír skjálftar á Reykjaneshrygg og þrír skjálftar á þverbrotabeltunum á Kolbeinseyjarhrygg við Spar og Eggvinbanka. Stærsti skjálfti mánaðarins var rétt tæplega 5,3 að stærð í Bárðarbungu 31. janúar. Tveir skjálftar mældust að auki yfir 4 að stærð, en þeir voru 4,2 og 4,1 í Bárðarbungu 1. og 22. janúar. Tvær tilkynningar bárust um að jarðskjálfti hefði fundist í byggð þann 28. janúar þegar hrina við Lambafell var yfirstandandi. Þá mældist skjálfti upp á 2,9 sem fannst í Mosfellsbæ. Tvær tilkynningar bárust um að jarðskjálfti hefði fundist í Hveragerði þann 30. janúar, en þá mældist skjálfti 1,7 að stærð rétt um 1 km norðaustan við bæinn.
Reykjanesskagi og Reykjaneshryggur
Tæplega 700 skjálftar mældust á Reykjanesskaga í janúar og um 170 skjálftar á Reykjaneshrygg sem gerir um 870 skjálfta samtals. Fjórar jarðskjálftahrinur urðu á svæðinu í mánuðinum, sú fyrsta var framhald af hrinu við Sandfell sem hófst á Gamlársdag, en rúmlega 70 jarðskjálftar bættust við þá hrinu, allir undir tveimur að stærð. Önnur hrina var' þann 11. janúar um 85 km SSV af Reykjanestá þegar um 80 skjálftar mældust, sá stærsti 3,4 að stærð, sú þriðja þann 27. janúar vestan í Lambafelli í Þrengslum þegar um 240 skjálftar mældust, sá stærsti 2,9 að stærð og sú fjórða 29. janúar þegar rúmlega 30 skjálftar mældust um 33 km suðvestur af Reykjanestá, sá stærsti 3,1 að stærð. Stærstu skjálftarnir í þessum hrinum voru jafnframt þeir stærstu á hvoru svæði fyrir sig. Milli Selfjalls og Sandfells hófst hrina þann 1. janúar sem varði til þess 4., en rúmlega 70 skjálftar mældust þar og voru þeir allir undir 2 að stærð. Einnig urðu minni hviður á Reykjaneshrygg 6., 19. og 26. janúar.
Af þeim 700 skjáftum sem mældust á Reykjanesskaga var mesta virknin bundin við svæðið í kringum Kleifarvatn og norður fyrir Trölladyngju, en rúmlega 220 skjálftar mældust þar. Það eru talsvert færri skjálftar en hafa mælst á svæðinu á seinni mánuðum síðasta árs, en í sumum mánuðum mældust um og yfir 900 skjálftar þar.
Í Fagradalsfjalli mældust 14 skjálftar en þeir náðu allt að 12 km dýpi. Um 30 skjálftar mældust í kvikuganginum við Sundhnúksgíga en svipaður fjöldi skjálfta mældist SV af Grindavík í Berghrauni, en það svæði var mjög virkt á seinni hluta ársins 2020 þegar landrisið var að hefjast undir Svartsengi. Dreifð virkni var í Brennisteinsfjöllum og mældust um 30 skjálftar þar.
Grjótárvatn
Nokkuð hefðbundin virkni á svæðinu en einungis rúmlega 120 skjálftar mældust þennan mánuð sem eru heldur færri en í meðalmánuði, en að meðaltali mældust um 240 skjálftar á mánuði á síðasta ári.
Vesturgosbeltið
Hengill
Virkni á Hengilssvæðinu var frekar hefðbundin en einungis tæplega 90 skjálftar mældust á víð og dreif, allir undir 2 að stærð.
Langjökull
Á Langjökulssvæðinu voru 13 skjálftar á víð og dreif við syðri enda jökulsins, allir undir 2 að stærð. Af þeim voru 5 í Skjaldbreið 9. janúar og þrír norðvestur af Sandfelli.
Önnur svæði
Á Víðidalstunguheiði sem liggur mitt á milli Blönduóss og Langjökuls mældust 4 skjálftar 21. janúar, sá stærsti var 2,1 að stærð. Í maí og júlí á síðastliðnu ári mældust 3 skjálftar á svipuðum slóðum, eins mældust nokkrir skjálftar á svæðinu á árunum 2012-2014.
Hofsjökulsgosbeltið
Í Hofsjökli mældust 2 skjálftar í mánuðinum, báðir undir 2 að stærð. Hinsvegar, á milli Hofsjökuls og Langjökuls mældust tveir skjálftar í Ásgeirstungum sem verður að teljast frekar óvenjulegt þótt skjálftar hafi mælst þar af og til ef litið er aftur til aldamóta. Lítil hrina mældist litlu norðar árið 2009 og einhverju vestar voru þrjár hrinur í mars, september og október árið 2004, samtals mældust þá 128 skjálftar.
Austurgosbeltið
Katla
Rúmlega 70 skjálftar mældust í Kötlu í janúar. Stærsti skjálftinn var 3.0 að stærð, þann 28. janúar. Einn skjálfti mældist í Eyjafjallajökli þann 1. janúar, 2,3 að stærð.
Torfajökull
Á Torfajökulssvæðinu mældust tæplega 40 skjálftar, sá stærsti 2,9 þann 17. janúar. Meginþorri skjálftanna var í vestanverðri öskjunni.
Hekla
Aðeins einn smáskjálfti mældist í Heklu í janúar.
Norðurgosbeltið
Tæplega 200 skjálftar mældust á Norðurgosbeltinu í janúar, flestir þeirra í hrinu SV af Herðubreið 26.-27. janúar. Í Ódáðahrauni varð skjálfti 2,6 að stærð þann 14. janúar og nokkrir eftirskjálftar fylgdu. Við Kröflu mældust yfir 15 skjálftar og við Bæjarfjall við Þeistareyki mældust 9 skjálftar. Eins mældust 4 skjálftar á svæði Fremri-Náma.
Askja
Í Öskju mældust 25 skjálftar í janúar, sá stærsti 2,3 að stærð.
Herðubreið
Um 130 skjálftar mældust við Herðubreið og Herðubreiðartögl í janúar og af þeim mældust 45 skjálftar í hrinu SV af Herðubreið 26.-27. janúar þar sem stærsti skjálftinn var 2,3 að stærð. Tveir stærstu skjálftar mánaðarins voru 2,8 og 3,1 að stærð, báðir þann 12. janúar.
Vatnajökull
Bárðarbunga
Um 130 skjálftar mældust í Bárðarbungu og stærsti skjálftinn var tæplega 5,3 að stærð þann 31. janúar og var hann jafnframt stærsti skjálfti mánaðarins. Tveir aðrir skjálftar mældust yfir 4 að stærð, 1. og 22. janúar og voru 4,2 og 4,1 að stærð. Meginþorri skjálftanna voru í austurhelmingi öskjunnar. Nítján skjálftar mældust á djúpa svæðinu austan Bárðarbungu allt niður á 22 km dýpi og voru þeir allir 1,5 að stærð og undir.
Hamarinn
Við Hamarinn mældust 9 skjálftar í janúar, þar af einn rétt suðvestur af vestari Skaftárkatli þann 7. janúar.
Grímsvötn
Í Grímsvötnum og sprungusveimi þeirra mældust um 30 skjálftar í janúar, þar af 11 skjálftar í skammlífri hrinu rétt VSV af Þórðarhyrnu þann 24. janúar, sá stærsti var 2,8 að stærð.
Öræfajökull
Í Öræfajökli mældust 25 skjálftar undir 2 að stærð, þar af 14 skjálftar í stuttri hrinu 14. og 15. janúar.
Önnur svæði
Í og við Kverkfjöll mældust 5 skjálftar, sá stærsti 1,3 að stærð.
Þrír skjálftar í Esjufjöllum, sá stærsti 2 að stærð.
Níu smáskjálftar mældust innan jökuls á milli Grímsvatna og Öræfajökuls, og einn í Skeiðarárjökli.
Suðurlandsbrotabeltið
Rúmlega 130 skjálftar mældust á Suðurlandsbrotabeltinu í janúar, flestir á víð og dreif um svæðið en tvær hrinur mældust 3. og 16. janúar með 24 og 14 skjálftum hvor. Tvær tilkynningar bárust um að jarðskjálfti hefði fundist í Hveragerði þann 30. janúar, en þá mældist skjálfti 1,7 að stærð rétt um 1 km norðaustan við bæinn.
Tjörnesbrotabeltið
Um 160 skjálftar mældust á Tjörnesbrotabeltinu á víð og dreif í mánuðinum. Engar hrinur áttu sér stað.
Utan gos- eða brotabelta
Þann 18. janúar mældist skjálfti á Búðarhálsi, 2 að stærð. Þessi skjálfti er inni á miðri Hreppaplötu sem er óalgengt en kemur þó fyrir, nokkrum sinnum á ári.
Sjá frekar: Skjálftalísa




