Náttúruvárvöktun við Öræfajökul hefur verið bætt umtalsvert síðan í haust þegar skjálftavirkni jókst í eldstöðinni og töluverðrar jarðhitavirkni varð vart í miðri öskjunni.
Nóvember var kaldur og sker sig nokkuð úr öðrum mánuðum ársins, sem flestir hafa verið hlýir. Norðanhvassviðri gekk yfir landið dagana 21. til 24. nóvember sem olli þó nokkru fannfergi norðan og austanlands. Færð spilltist víða.
Lesa meiraÍ veðrinu sem gekk yfir norðurhluta landsins í síðustu viku féllu mörg snjóflóð, einkum á norðanverðum Vestfjörðum og á Tröllaskaga. Snjóflóð lokuðu vegum og nokkuð stórt snjóflóð féll á varnargarðinn Stóra-Bola sem er leiðigarður undir Strengsgili á Siglufirði.
Lesa meiraVeðurstofan hefur tekið saman nokkuð af upplýsingum um Öræfajökul og gert aðgengilegar hér á vefnum. Um er að ræða stutta umfjöllun um eldstöðina og kynningu á nýlegum rannsóknum ásamt algengum spurningum og svörum við þeim.
Lesa meiraEnn er verið að vinna úr gögnum og sýnum sem safnað var um helgina vegna breytinganna á yfirborði Öræfajökuls. Áætlað er að setja upp síritandi mælitæki næstu daga.
Lesa meiraÍ kvöld, laugardag 18. nóvember, var haldinn stöðufundur á Veðurstofunni um Öræfajökul. Vísindamenn Jarðvísindastofnunar Háskólans og Veðurstofunnar ásamt fulltrúum almannavarna flugu yfir Öræfajökul í dag.
Lesa meiraNýlegar gervihnattamyndir af Öræfajökli sýna að nýr ketill hefur myndast í öskjunni síðastliðna viku. Svo virðist sem jarðhitavatn hafi lekið hægt undan katlinum og komið fram undan Kvíárjökli.
Lesa meiraVeðurstofa Íslands og Íslenska vatnafræðinefndin munu fagna 70 ára afmæli kerfisbundinna vatnamælinga fimmtudaginn 23. nóvember á málþingi um vatnamælingar og tengd málefni. Málþingið verður haldið í sal Veðurstofunnar að Bústaðavegi 7. Það hefst kl. 14:30 og stendur til kl. 17:00.
Lesa meiraTöluvert vatn kemur undan Dyngjujökli í hefðbundinn farveg Jökulsár á Fjöllum vestan Kverkfjalla. Sennilega á jarðhitavatnið, sem mælst hefur í ánni undanfarnar vikur, upptök vestar í Vatnajökli, hugsanlega í Bárðarbungu þar sem jarðhiti hefur aukist undanfarin misseri.
Lesa meiraUndanfarnar vikur hefur rafleiðni í Jökulsá á Fjöllum farið hækkandi. Handmælingar staðfesta sjálfvirk mæligildi. Sérfræðingar Veðurstofunnar funduðu í morgun, 8. nóvember, með fulltrúum Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra og fóru yfir stöðuna.
Lesa meiraTíðarfar var hagstætt í október. Óvenju hlýtt var og hiti vel yfir meðallagi í öllum landshlutum. Fremur þurrt var á vestanverðu landinu en úrkomumeira á Austfjörðum og Suðausturlandi. Vindur var hægur.
Lesa meiraÞrjár nýjar jarðskjálftamælistöðvar voru settar upp við Öræfajökul í október til þess að efla eftirlit með auknum fjölda skjálfta undir jöklinum. Þessi fjölgun mæla eykur næmni jarðskjálftakerfisins. Þetta þýðir að nú mælast fleiri skjálftar en áður á stærðarbilinu 0 til 1. Ennfremur minnkar óvissa í staðsetningum skjálftanna.
Lesa meiraÞann 1. nóvember mun Veðurstofan taka í notkun nýtt viðvörunarkerfi. Með því er leitast við að auka þjónustu við almenning og hagsmunaaðila. Helstu breytingar í útgáfu viðvarana verða þær að nýja kerfið tekur meira tillit til aðstæðna hverju sinni. Kerfið hefur verið kynnt helstu hagsmunaaðilum og verður kynnt fjölmiðlum á morgun, 1. nóvember.
Lesa meiraLokaskýrsla ICEWIND verkefnisins er komin út, samnorræns verkefnis um vindorku á köldum svæðum 2010–2014, sem styrkt var af Norræna orkusjóðnum. Því var stýrt af vindorkudeild danska tækniháskólans DTU og íslenskir þátttakendur voru Veðurstofa Íslands, Háskóli Íslands, Landsvirkjun og Landsnet. Íslenski hlutinn fjallaði um ísingu og kortlagningu svæða þar sem gera mætti ráð fyrir ísingarvanda, og um kortlagningu vindauðlindarinnar og samþættingu vindorku og vatnsorku.
Lesa meiraRáðstefnan „Arctic Circle 2017“ var haldin í Hörpu síðastliðna helgi (13.-15. okt.). Um 2000 þátttakendur frá 50 löndum sóttu þetta árlega þing, sem nú var haldið í Reykjavík í fimmta sinn. Veðurstofan var þar með málstofu um helstu niðurstöðum nýrrar skýrslu um áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi.
Lesa meiraÞessi mynd af Gunnlaugsskarði í Esju tekin í dag af svölum Veðurstofuhússins. Gránað hefur í Esjuna og farið að fjúka í litla skafla í efstu brúnum. Engu að síður sést enn móta fyrir gömlum snjósköflum efst í Gunnlaugsskarði.
Lesa meiraAðalritari Alþjóðaveðurfræði-stofnunarinnar, Dr. Petteri Taalas heimsótti Veðurstofuna 12. október, en hann var á landinu til þess að taka þátt í ráðstefnunni Arctic-Circle 2017 í Reykjavík. Dr. Taalas var forstjóri finnsku veðurstofunnar um nokkurt árabil og tók við núverandi starfi árið 2016. Hann hefur verið leiðandi í norrænu samstarfi veðurstofanna, NORDMET og hefur haldið mikilvægi starfs okkar hátt á lofti á alþjóðavísu.
Lesa meiraÁrið 1989 tilnefndu Sameinuðu Þjóðirnar 13. október Dag hamfaraminnkunar (International Day for Disaster Reduction). Þetta er í 28. sinn sem þessi dagur er nýttur til þess að vekja athygli á aðgerðum, aðferðum og viðbúnaði til að draga úr áhrifum hamfara á jarðarbúa og því sem er hægt að gera til þess að auka getu samfélaga til að takast á við hamfarir.
Lesa meiraSeptember var hlýr og úrkomusamur mánuður, óvenju hlýtt og blautt var á austanverðu landinu. Mjög hlýir dagar voru í byrjun mánaðarins og svo aftur um hann miðjan, þá sérstaklega norðaustan- og austanlands þar sem hiti fór víða vel yfir 20 gráður og allmörg hitamet voru slegin. Sunnan- og austanáttir voru ríkjandi. Mikil úrkoma í lok mánaðar og hlýindi til fjalla ollu miklum vatnavöxtum á Suðaustur- og Austurlandi. Mikið tjón hlaust af flóðum og skriðuföllum á þessum svæðum.
Lesa meiraUndanfarna daga hefur rignt mikið á Suðausturlandi og Austurlandi og flóð hafa valdið vandræðum víða. Skriður hafa fallið á nokkrum stöðum. Spáð er áframhaldandi rigningu á svæðinu fram á laugardagskvöld. Jafnvel þótt úrkoma sé ekki eins mikil og síðustu daga er hætt við að fleiri jarðvegsskriður falli vegna þess hversu blautur jarðvegurinn er fyrir.
Lesa meiraSpáð er áframhaldandi rigningu með hléum á Austurlandi næstu daga. Við þessar aðstæður getur jarðvegur orðið gegnsósa sem eykur líkur á skriðum, jafnvel utan hefðbundinna skriðusvæða.
Lesa meiraVatnshæð og rennsli í ám á Suður- og Austurlandi náði hámarki í gær. Mælar við Lagarfljóti sýna hins vegar að hæg bylgja gengur niður fljótið og vatnsborðið er en að hækka þar. Því er hætt er við að flæði yfir veginn milli Egilsstaða og Fellabæjar.
Lesa meiraMiklir vatnavextir eru nú í ám og lækjum á Austurlandi og Suðausturlandi og hækkað vatnsborð í Fljótsdal. Starfsmenn Veðurstofunnar vinna að því að skrá og safna upplýsingum um atburðinn.
Lesa meiraHiti var í svalara lagi á landinu í ágúst. Veður var þó almennt gott. Hægviðrasamt var um land allt og úrkoma var minni en í meðallagi að Norðurlandi undanskildu. Sólskinsstundir voru vel yfir meðallagi suðvestanlands.
Lesa meiraNýlega kom út bókin Undrið litla: Stokkhólmssamningurinn og baráttan gegn POPs – sköpunarsaga eftir Davíð Egilson. Hún fjallar um átta ára samningaviðræður sem snerust um að alþjóðasamfélagið dragi úr losun þrávirkra lífrænna efna. Íslendingar áttu þar drjúgan hlut að máli.
Lesa meiraTíðarfar var almennt hagstætt í júlí. Hlýtt var um meginhluta landsins, helst að svalt þætti suðvestanlands fram eftir mánuði. Úrkoma var víðast hvar minni en í meðalári.
Lesa meiraJökulhlaupið í Múlakvísl á Mýrdalssandi er yfirstaðið. Rafleiðni hefur lækkað og er við eðlileg mörk, en fólk er hvatt til þess að sýna aðgát við upptök árinnar vegna mögulegs gasútstreymis.
Lesa meiraUndanfarna daga hefur rafleiðni í Múlakvísl á Mýrdalssandi hækkað jafnt og þétt og náði 580 μS/cm aðfararnótt 29. júlí. Mikið rennsli er í ánni samkvæmt viðbragðsaðilum á vettvangi og vatnamælar við jökulinn gefa skýrt til kynna að hlaup stendur yfir. Veðurstofan fylgist grant með þróuninni.
Lesa meiraTíðarfar var nokkuð hagstætt í júní. Hiti var þó í svalara lagi miðað við meðaltal síðustu 10 ára en yfir meðallagi á flestum stöðum sé miðað við tímabilið 1960-1990. Úrkoma var vel yfir meðallagi á Austurlandi. Sólskinstundir voru mjög fáar norðanlands og hafa sólskinstundir ekki verið færri í júní á Akureyri síðan 1972, þá voru þær jafnfáar og nú en enn færri 1968.
Lesa meiraNokkuð hefur verið rætt um berghlaup á Íslandi í kjölfar flóðbylgju sem gekk yfir þorp á vesturströnd Grænlands eftir að stórt berghlaup féll í sjó fram 17. júní sl. Talið er að stór skriða eða berghlaup falli í sjó fram einu sinni til tvisvar á hverju árþúsundi hér á landi þótt ekki séu heimildir um það á sögulegum tíma. Ofanflóðavakt Veðurstofunnar fylgist með ofanflóðahættu í byggð og gefur út viðvaranir eða tilkynningu um rýmingu ef hætta er talin geta skapast. Á nokkrum stöðum á landinu er fylgst með hreyfingu jarðlaga eða sprungum í berggrunni.
Lesa meiraSkriða féll úr Þófalæk á Seyðisfirði síðastliðna nótt og lenti á tveimur húsum. Þófalækurinn er þekktur skriðufarvegur og þar varð mannskætt slys árið 1950 þegar 5 manns fórust er skriða lenti á húsi ofan við veg. Skriðan sem féll í nótt átti upptök ofarlega í fjallinu og flutti með sér stór björg.
Lesa meiraBúast má við hvassviðri eða stormi austan Öræfa og á sunnanverðum Austfjörðum undir hádegi á morgun, föstudag, með mjög hvössum vindhviðum við fjöll (30-35 m/s). Því er ekki ráðlegt fyrir hjólreiðafólk og farartæki sem taka á sig mikinn vind að ferðast á þessu svæði á morgun.
Lesa meiraVeðurstofan tók á dögunum við vísindagögnum frá Dr. Richard S. Williams, Jr., jarðfræðingi, sem munu koma að notum við rannsóknir á ýmsum sviðum náttúruvísinda. Dr. Oddur Sigurðsson jarðfræðingur tók á móti sendinunni, sem kom á fjórum vörubrettum.
Lesa meiraMeistaranema býðst styrkur til rannsókna sem felast í að bætta reikninga á orsökum sand- og öskufoks í dreifingarlíkönum. Verkefnið er hluti af stærra verkefni sem kallast "Changes in the health effects impact of aerosol particles and natural source material following volcanic eruptions" og er unnið í samvinnu Háskóla Íslands, Veðurstofu Íslands og UK Met Office.
Lesa meiraStarfsmenn Veðurstofu Íslands mældu nýverið vetrarákomu á Hofsjökul. Að þessu sinni var um tímamótaleiðangur að ræða því nú var farið til mælinga á þykkt vetrarsnævar á jöklinum í þrítugasta sinn. Oft er miðað við 30 ára meðaltöl í veðurfars- og vatnafræðirannsóknum og einnig þegar kannaðar eru langtímabreytingar á afkomu jökla. Mæliröðin frá Hofsjökli er sú fyrsta hér á landi sem nær þeirri tímalengd.
Aprílmánuður var úrkomusamur á landinu, sérstaklega þó vestan- og norðvestanlands þar sem úrkoma var meiri en um áratugaskeið. Hiti var aftur á móti nærri meðallagi. Veður var lengst af meinlítið og tíð fremur hagstæð þó gróðri færi lítt fram.
Lesa meiraTíð var lengst af hagstæð og samgöngur greiðar. Hiti var nærri meðallagi, en úrkoma heldur minni en venja er í flestum landshlutum nema sums staðar austanlands. Vindar voru talsvert hægari en oftast er í marsmánuði.
Lesa meiraÁrsfundur Veðurstofunnar verður haldinn á fimmtudaginn 30. mars. Þema fundarins er áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi. Áhrifa loftslagsbreytinga gætir víða á Íslandi. Í hafinu, í lífríkinu, á jöklunum og víðar greinum við breytingar, þó ekki í veðrinu segir Halldór Björnsson, hópstjóri veðurs og loftslagsrannsókna á Veðurstofunni og einn ræðumanna.
Lesa meiraÁr hvert heldur Alþjóðaveðurfræðistofnunin (WMO) alþjóðlega veðurdaginn. Árið 2017 er dagurinn tileinkaður skýjum og skilningi okkar á þeim.
Í dag gefur Alþjóðaveðurfræðistofnunin út nýjan Skýjaatlas. Síðast kom út ný útgáfa af þessu merka riti WMO árið 1987 en atlasinn á sér rætur allt til 19. aldar þegar Luc Howard sendi frá sér ritgerðina „An essay on the modification of clouds“ árið 1803.Hinn 22. mars er alþjóðlegur dagur vatnsins, tileinkaður umræðu um vatn og verndun vatnsauðlindarinnar. Vatn er ómetanleg auðlind, forsenda lífs og þeirra lífsskilyrða. Í ár er dagurinn helgaður fráveituvatni og í dag birtir Menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) ástandsskýrslu um vatn.
Lesa meiraFebrúarmánuður var hlýr og vætusamur. Einkum var hlýtt á norðan- og austanverðu landinu og vætusamt um sunnan- og vestanvert landið. Úrkoma var flesta daga á sunnan- og vestanverðu landinu og snjólétt um allt land þar til kyngdi niður snjó við Faxaflóa aðfaranótt þ. 26.
Lesa meiraVeðurstofa Íslands og King‘s College í London standa nú sameiginlega að könnun á viðhorfi til eldfjalla. Verkefnið er hluti af samvinnuverkefni þessara stofnana og hefur tvíþætt markmið: að kanna skoðanir Íslendinga og ferðamanna á gosinu í Holuhrauni 2014–2015 og meta almennt viðhorf til eldfjalla og eldvirkni á Íslandi.
Lesa meiraVeðurstofa Íslands vekur athygli á að mjög slæmu veðri er spáð á morgun, föstudaginn 24. febrúar. Búast má við að vindhraði nái víða 20-28 m/s á sunnan- og vestanverðu landinu eftir hádegi á morgun, ásamt mjög hvössum vindhviðum, allt að 40 m/s.
Lesa meiraÍ september 2015 tilkynntu Bandaríkjamenn að þeir stefndu að smíði landlíkans fyrir allt yfirborð lands norðan 60°N. Verkefnið fékk nafnið ArcticDEM og skyldi því lokið á meðan Bandaríkjamenn færu fyrir Norðurskautsráðinu. Verkefnið byggist á samstarfi margra bandarískra stofnana og ytri samstarfsaðila, þar á meðal Veðurstofuna. Fyrstu afurðirnar sem þekja Ísland eru nú aðgengilegar á netinu án endurgjalds.
Lesa meiraÍ kjölfar slyss sem varð í Esju um helgina hefur verið fjallað um mat Veðurstofunnar á snjóflóðaaðstæðum til fjalla. Spurt er af hverju Veðurstofan meti ekki aðstæður og spái fyrir um snjóflóðahættu á fleiri stöðum en nú er gert, t.d. fyrir nágrenni höfuðborgarsvæðisins þar sem flestir búa og margir eru á ferð í fjalllendi.
Lesa meiraTíð var lengst af hagstæð og samgöngur greiðar. Fremur hlýtt var í veðri og með snjóléttara móti á láglendi. Úrkoma var ekki fjarri meðallagi. Minna var um illviðri en venjulegt er á þessum tíma árs.
Lesa meiraSaga samfelldra veðurathugana í Stykkishólmi nær 171 ár aftur í tímann eða til haustsins 1845. Mæliröðin er lengsta órofa mæliröð á Íslandi. Með því að nota slitróttari mælingar annarsstaðar af landinu má meta hver árshiti í Stykkishólmi var líklega á tímabilinu 1798 til 1845. Slíkt mat er auðvitað óáreiðanlegra en mæligögn frá staðnum, en áhugavert til samanburðar.
Lesa meiraVefsjá með upplýsingum um íslensk eldfjöll verður kynnt opinberlega fimmtudaginn 2. febrúar n.k. Kynningin fer fram á Veðurstofunni, Bústaðavegi 7 í Reykjavík, í samstarfi Veðurstofunnar, Jarðvísindastofnunar Háskólans og Almannavarna Ríkislögreglustjóra.
Lesa meiraDanadrottning nefndi traust milli stofnana á Íslandi og í Danmörku og ofurtölvu dönsku veðurstofunnar (DMI) í ræðu sinni í veislu með Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands. Tölvan er hýst hjá Veðurstofunni.
Lesa meiraAfkomumælingar Jarðvísindastofnunar Háskólans og Veðurstofunnar sýna að íslenskir jöklar hafa hopað og þynnst jafnt og þétt síðan 1995 sem nemur um 10 km³ íss á ári að meðaltali. Þessi rýrnun veldur aflögun þyngdarsviðs jarðar nærri Íslandi sem kemur fram í mælingum þýsk/bandarískra gervihnatta.
Lesa meiraÁrið 2016 var sérlega hlýtt hér á landi. Við Breiðafjörð og á Vestfjörðum var það hlýjasta ár frá því að mælingar hófust og í hópi þeirra hlýjustu í öðrum landshlutum. Hiti fyrstu tvo mánuðina var þó nærri meðallagi en haustið sérlega hlýtt. Vindar voru með hægara móti. Fremur þurrt var um tíma, frá því síðla vetrar og fram á sumar, en haustið óvenjuúrkomusamt, sérstaklega um landið sunnanvert.
Lesa meiraTíð var lengst af hagstæð og samgöngur greiðar nema fáeina daga undir lok mánaðar. Óvenjuhlýtt var í veðri og um austanvert landið var mánuðurinn sums staðar sá hlýjasti frá upphafi mælinga og í hópi þeirra hlýjustu um land allt. Úrkomusamt var og dimmt.
Lesa meira