Forsíða Veðurstofu Íslands

Veðurspá

Horfur næsta sólarhringinn

Austan 5-13 m/s og rigning eða súld, hvassast við norður- og austurströndina, en hægari á Suður- og Vesturlandi. Víða rigning eða skúrir og sums staðar talsverðar dembur síðdegis. Hægari suðvestlæg átt í kvöld.
Breytileg átt 3-10 á morgun og víða skúrir, einkum síðdegis.
Hiti 7 til 15 stig, svalast á Austfjörðum í dag, en Vestfjörðum á morgun.

Spá gerð 26.06.2025 04:00

Úrkomuspá Hitaspá Vindaspá

Spá fyrir veðurstöð - 1

Spá fyrir veðurstöð - 2

Spá fyrir veðurstöð - 3

Spá fyrir veðurstöð - 4

Spá fyrir veðurstöð - 5

Allt Ísland

Fréttir

Áframhaldandi landris í Svartsengi - 18.6.2025

Uppfært 18. júní

Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi. Þó heldur áfram að draga jafnt og þétt úr hraða kvikusöfnunarinnar sé miðað við hraðann í apríl og fyrri hluta maí. Ef kvikusöfnun heldur áfram á svipuðum hraða og undanfarnar vikur má áfram gera ráð fyrir því að líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi fari að aukast þegar líða fer á haustið. Breytingar á hraða landriss, og þar með kvikusöfnunar undir Svartsengi, geta þó haft áhrif á þetta mat.



Lesa meira

Vetrarafkoma Hofsjökuls mældist óvenju rýr - 16.6.2025

Fjórir starfsmenn Veðurstofu Íslands mældu vetrarafkomu Hofsjökuls í árlegum vorleiðangri dagana 4.–8. maí síðastliðinn. Mældir voru 20 punktar á ísasviðum Sátujökuls, Þjórsárjökuls, Blágnípujökuls og Blautukvíslarjökuls (sjá myndir 1 og 2), sem samtals ná yfir rúman helming af flatarmáli Hofsjökuls. Á hverjum punkti var borað í gegnum snjólag vetrarins, eðlisþyngd og hitastig snævarins mæld og lagskipting skráð. Einnig var snjósjá notuð til að mæla samfelld snjóþykktarsnið milli mælipunktanna. Lesa meira

Tíðarfar í maí 2025 - 3.6.2025

Óvenjuleg hlýindi voru á landinu öllu í maí. Á landsvísu var þetta hlýjasti maímánuður frá upphafi mælinga. Mesta hitabylgja sem vitað er um hér á landi í maímánuði stóð yfir dagana 13. til 22. og sett voru ný meðal- og hámarkshitamet fyrir maímánuð á flestum veðurstöðvum landsins. Tíð var einmuna góð í mánuðinum, það var sólríkt, hægviðrasamt og allur gróður var óvenjulega snemma á ferð. Töluverðir vatnavextir voru í ám á Norðurlandi í byrjun mánaðar vegna leysinga í hlýindunum. 

Lesa meira

Norræna vatnafræðiráðstefnan haldin í Reykjavík - 3.6.2025

„Við getum ekki lengur hugsað um vatn sem sjálfsagðan hlut… Með þessum orðum setti Hildigunnur H. H. Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofu Íslands, Norrænu vatnafræðiráðstefnuna 2025 sem hófst í dag í Reykjavík. 

Lesa meira

Hitabylgjan 13. til 22. maí 2025 - 23.5.2025

Dagana 13. til 22. maí 2025 var óvenjuleg hitabylgja á landinu sem orsakaðist af langvarandi hæð við Færeyjar sem færðist síðan smám saman yfir Ísland. Hæðin beindi hlýju lofti úr suðri til landsins dögum saman. Þrátt fyrir að dæmi séu til um svipuð veðurskilyrði, er hitabylgjan þessa daga óvenjuleg og það er merkilegt hversu snemma árs hún átti sér stað, hversu lengi hún stóð og hversu útbreidd hún varð.


Lesa meira

Tíðarfar í apríl 2025 - 2.5.2025

Apríl var óvenjulega hlýr á landinu öllu, sérstaklega fyrstu tíu dagar mánaðarins. Á landsvísu var þetta 5. hlýjasti aprílmánuður frá upphafi mælinga. Tíð var góð, það var hægviðrasamt og tiltölulega þurrt um stóran hluta landsins. Gróður tók vel við sér.

Lesa meira

Eldri fréttir


Fróðleikur

kirkjuturn ber við glitský

Fleiri glitský í desember 2011

Glitský sjást aldrei á nóttunni, heldur í ljósaskiptunum. Þau sjást best í tvær og hálfa klukkustund í kringum sólarupprás og sólarlag en í svartasta skammdeginu er það aldrei seinna en um kl. sex að kvöldi.

Lesa meira
 

Fleiri greinar um skylt efni


Útgáfa og rannsóknir

Ný útgáfa

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica