Fréttir

Tíðarfar í maí 2025

Stutt yfirlit

3.6.2025


Óvenjuleg hlýindi voru á landinu öllu í maí. Á landsvísu var þetta hlýjasti maímánuður frá upphafi mælinga. Mesta hitabylgja sem vitað er um hér á landi í maímánuði stóð yfir dagana 13. til 22. og sett voru ný meðal- og hámarkshitamet fyrir maímánuð á flestum veðurstöðvum landsins. Tíð var einmuna góð í mánuðinum, það var sólríkt, hægviðrasamt og allur gróður var óvenjulega snemma á ferð. Töluverðir vatnavextir voru í ám á Norðurlandi í byrjun mánaðar vegna leysinga í hlýindunum. 

Hiti

Meðalhiti í Reykjavík mældist 9,0 stig í maí. Það er 2,3 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 og líka 2,3 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Maímánuður var einstaklega hlýr á  Akureyri. Þar var meðalhitinn 10,1 stig, sem er 3,9 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020, en 3,5 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var meðalhiti mánaðarins 8,7 stig og 8,5 stig á Höfn í Hornafirði.

Á flestum veðurstöðvum landsins var þetta hlýjasti maímánuður frá upphafi mælinga. Á þeim stöðvum sem hafa mælt samfellt í yfir 100 ár var þetta hlýjasti maí á Akureyri (af 145 árum), Grímsey (af 152 árum), Grímsstöðum á Fjöllum (af 119 árum ), Lambavatni á Rauðasandi (af 103 árum), Reykjavík (af 155 árum), Stykkishólmi (af 180 árum) og Teigarhorni (af 153 árum). Á Norðaustur- og Austurlandi eru ný maímánaðahitamet miklu hærri en gömlu metin. Á Grímsstöðum á Fjöllum var meðalhitinn í maí 8,6 stig sem er 1,8 stigum hærri en fyrra met frá 2017.  Á Egilsstöðum var meðalhitinn nú 1,6 stigum hærri en fyrra met frá maí 1991, í Grímsey var maíhitinn 1,4 stigum hærri en fyrra met frá 1939, og á Akureyri er nýja maímánaðarhitametið 0,7 stigum hærra en eldra met frá árinu 1933.  Munurinn var ekki eins afgerandi á sunnan- og vestanverðu landinu.

Meðalhiti í byggðum landsins var 8,4 stig sem er 3,0 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á landsvísu var þetta líkt og á flestum veðurstöðvum landsins, hlýjasti maímánuður frá upphafi mælinga. Fyrra met var frá maí 1935, þegar landsmeðalhitinn var 7,6 stig.

Tafla 1: Meðalhiti og vik (°C) í maí 2025.

stöð meðalhiti °C vik 1991-2020 °C röð af vik 2015-2024 °C
Reykjavík 9,0 2,3 1 155 2,3
Stykkishólmur 8,7 3,0 1 180 2,9
Bolungarvík 7,8 3,1 2 128 2,8
Grímsey 7,3 3,6 1 152 3,1
Akureyri 10,1 3,9 1 145 3,5
Egilsstaðir 9,9 4,4 1 71 3,9
Dalatangi 6,9 2,7 1 87 2,3
Teigarhorn 7,5 2,2 1 153 2,0
Höfn í Hornaf. 8,5


2,1
Stórhöfði 7,9 1,7 5 149 1,9
Hveravellir 5,1 3,5 1 62 3,4
Árnes 8,7 2,3 2 146 2,3

Sérlega hlýtt var á landinu dagana 13. til 22. Hitabylgjan þessa daga náði yfir allt landið og er sú mesta sem vitað er um hér á landi maímánuði. Það var merkilegt hversu snemma árs hitabylgjan átti sér stað, hversu lengi hún stóð og hversu útbreidd hún var. Þessi samfelldi 10 daga hlýindakafli náði hámarki dagana 17. og 18. þegar hitinn mældist 20 stig eða meira á um helmingi allra veðurstöðva landsins. Nýtt hámarkshitamet fyrir maí var sett á nánast öllum veðurstöðvum landsins, auk þess sem nýtt maíhámarkshitamet fyrir landið var sett þegar hitinn fór í 26,6 stig á Egilsstaðaflugvelli þ. 15. Fyrra met var 25,6 stig sem mældist á Vopnafirði þ. 26. maí 1992. Ítarlegri umfjöllun um hitabylgjuna má finna hér.

Mánaðarhitinn í maí var langt yfir meðallagi á öllu landinu. Að tiltölu var hlýjast á hálendinu norðaustan- og austanlands þar sem meðalhitinn var um fimm stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára (sjá mynd 1). Hitavikin voru minnst við suður- og suðausturströndina, en þar var hitinn samt um tveimur stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Jákvætt hitavik var mest 5,4 stig á Brúaröræfum, en minnst 1,5 stig í Seley við Reyðarfjörð.


Mynd 1: Hitavik (°C) sjálfvirkra stöðva í maí miðað við síðustu tíu ár (2015 til 2024).

Meðalhiti mánaðarins var hæstur á Akureyri 10,1 stig. Það er jafnframt hæsti mánaðarhiti sem mælst hefur á Íslandi í maí. Meðalhiti mánaðarins náði einnig tíu stigum á Torfum í Eyjafirði og í Hallormsstaðaskógi. Lægstur var meðalhitinn 2,8 stig við Setur sunnan Hofsjökuls. Á láglendi var meðalhitinn lægstur í Seley 5,6 stig.

Hæsti hiti mánaðarins mældist, eins og áður kom fram, 26,6 stig á Egilsstaðaflugvelli þ. 15. sem er nýtt maíhámarkshitamet fyrir landið. Nýtt hámarkshitamet fyrir maí var sett á nánast öllum veðurstöðvum landsins eða á 94% allra sjálfvirka stöðva sem hafa starfað í 20 ár eða meira. Á mönnuðu stöðvunum sem hafa flestar mun lengri mælisögu, mældist hæsti hiti í maí frá upphafi mælinga í Stykkishólmi (20,5 stig), Grímsstöðum á Fjöllum (24,0 stig), Litlu-Ávík (23,3 stig), Keflavíkurflugvelli (21,4 stig), en sá næsthæsti í Reykjavík (20,3 stig, hæst 20,6 stig í maí 1960) og á Akureyri (24,2 stig, hæst 24,6 stig í maí 1980). Hiti mældist 20 stig eða meiri einhvers staðar á landinu 11 daga í maí, þar af 10 daga í röð (13. til 22.maí). Slíkir dagar hafa verið 2 til 3 að meðaltali í maí síðastliðin ár, og í raun er ekkert algilt að slíkir dagar komi í maí.

Lægsti hiti í mánuðinum mældist -8,0 við Setur þ. 11. Í byggð mældist lægsti hitinn -4,3 stig í Tungudal á Ísafirði.

Á mynd 2 má sjá landsmeðalhita hvers dags það sem af er ári 2025, sem vik frá meðalhita síðustu tíu ára. Þar sjást hlýindi maímánaðar vel. Hiti var vel yfir meðallagi alla daga í maí, fyrir utan dagana 9., 10. og 31. þegar hiti var lítillega undir meðallagi. Myndin sýnir líka vel að það hefur að mestu verið hlýtt á landinu það sem af er ári.


Mynd 2: Landsmeðalhiti hvers dags það sem af er ári 2025, miðað við síðustu tíu ár (2015 til 2024).

Úrkoma

Úrkoma maímánaðar var nærri meðallagi í Reykjavík. Þar mældust 48,5 mm sem er um 92% meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist úrkoma mánaðarins 37,6 mm, eða um 56% yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Þar féll mestur hluti úrkomunnar í lok mánaðar. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 51,1 mm.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri í Reykjavík voru 10 sem eru jafnmargir og í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri 8 daga, eða þremur dögum fleiri en í meðalári.

Snjór

Jörð var alauð allan mánuðinn bæði í Reykjavík og á Akureyri. Óvenju snjólétt var á hálendinu miðað við árstíma.

Sólskinsstundafjöldi

Sérlega sólríkt var á Akureyri í mánuðinum. Þar mældust 255,5 sólskinsstundir, eða 84,5 stundir umfram meðallag áranna 1991 til 2020. Aðeins þrisvar sinnum hafa mælst fleiri sólskinsstundir í maí á Akureyri frá upphafi sólskinsstundamælinga þar, en það var árin 1968 (290,8), 2012 (287,4) og 1975 (259,4). Í Reykjavík mældust sólskinsstundirnar 264,7 í maí. Það er 55,7 stundum yfir meðallagi.

Vindur

Mánuðurinn var tiltölulega hægviðrasamur. Vindur á landsvísu var um 0,5 m/s undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á nokkrum sjálfvirkum stöðvum sem hafa 20 ára mælisögu eða lengri, hefur meðalvindur maímánaðar aldrei mælst eins lágur. Hvassast var dagana 7. til 9. (sunnanáttir).

Loftþrýstingur

Í Reykjavík mældist meðalloftþrýstingur maímánaðar 1012,5 hPa sem er 0,5 hPa undir meðallagi maímánaða árin 1991 til 2020.

Hæsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 1035,8 hPa á Stjórnarsandi við Kirkjubæjarklaustur þ. 18. Loftþrýstingur mældist lægstur 982,4 hPa á Gufuskálum á Snæfellsnesi þ. 9.

Fyrstu fimm mánuðir ársins

Meðalhiti fyrstu fimm mánaða ársins var 4,1 stig í Reykjavík sem er 1,6 stigi yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Meðalhiti janúar til maí í Reykjavík raðast í 3. hlýjasta sæti á lista 155 ára. Fyrstu fimm mánuðir ársins voru hlýrri árin 1964 þegar meðalhitinn mældist 5,0 stig og 1929 þegar hann var 4,5 stig. Á Akureyri mældist meðalhiti mánaðanna fimm 3,1 stig sem er 1,7 stigum yfir meðallagi janúar til maí 1991 til 2020. Þar raðast meðalhiti fyrstu fimm mánaða ársins í 4. hlýjasta sæti á lista 145 ára.

Heildarúrkoma mældist 433,0 mm í Reykjavík fyrstu fimm mánuði ársins. Það er um 20% umfram meðalúrkomu sama tímabils árin 1991 til 2020. Á Akureyri mældist heildarúrkoman 257,5 mm sem er einnig ríflega 20% yfir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Vorið (apríl og maí)

Nýliðið vor var það hlýjasta á landsvísu frá upphafi mælinga. Tíð var einstaklega góð og gróður tók óvenju snemma við sér. Það var sérlega hlýtt í aprílbyrjun og um miðjan maí var 10 daga löng hitabylgja yfir öllu landinu sem er sú mesta sem vitað er um hér á landi í maímánuði.

Í Reykjavík mældist meðalhiti apríl og maí 7,4 stig sem er 2,2 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri var meðalhitinn einnig 7,4 stig sem er 3,0 stigum yfir meðalvorhita þar árin 1991 til 2020. Meðalhiti vorsins mældist 6,9 stig í Stykkishólmi (2,7 yfir meðallagi) og 7,0 stig á Egilsstöðum (3,2 stigum yfir meðallagi). Á öllum þessum stöðum var vorið það hlýjasta frá upphafi mælinga. Áður var vorið 1974 það hlýjasta á öllum þessum stöðvum og á landsvísu.

Vorúrkoma í Reykjavík mældist 79,3 mm, eða um 71% meðallags voranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældust 76,4 mm sem er um 43% umfram meðalúrkomu voranna 1991 til 2020.

Vorið var sólríkt bæði í Reykjavík og á Akureyri. Nýliðið vor var 7. sólríkasta vorið í Reykjavík frá upphafi sólskinsstundamælinga þar árið 1911 og það næstsólríkasta frá upphafi samfelldra sólskinsstundamælinga á Akureyri árið 1928. Aðeins mældust fleiri sólskinsstundir að vori á Akureyri árið 1968. Sólskinsstundir umfram meðallag voranna 1991 til 2020 mældust 88,6 í Reykjavík og 133,0 á Akureyri.

Skjöl fyrir maí

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í maí 2025 (textaskjal).

Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica