Suðaustlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s. Bjartviðri norðaustan- og austanlands, en þokubakkar við ströndina. Hiti 18 til 26 stig, en svalara þar sem þokan nær inn á land. Skýjað en úrkomulítið í öðrum landshlutum, hiti 12 til 20 stig.
Víða skúrir á morgun, en þurrt og bjart á Austurlandi. Hiti 12 til 24 stig, hlýjast norðaustantil.
Spá gerð 16.07.2025 07:44
Textaspáin gildir ef munur er á textaspá og sjálfvirkum spám!
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Óyfirfarnar frumniðurstöður
Stærð | Tími | Gæði | Staður |
---|---|---|---|
3,9 | 14. júl. 23:30:18 | Yfirfarinn | 31,1 km ASA af Grímsey |
3,1 | 16. júl. 01:03:40 | 36,0 | 278,0 km SSV af Eldeyjarboða á Rneshr. |
2,6 | 16. júl. 01:58:26 | Yfirfarinn | 1,0 km ANA af Stóra-Skógfelli |
Eldgos hófst á Sundhnúkagígaröðinni NA af Stóra Skógfelli um kl 03:54 16 júlí. Mikil gasmengun mælist nú í Reykjanesbæ, þeir sem hafa tök á haldi sig innandyra. Reynið að anda eingöngu gegnum nef. mælst er til þess að loka gluggum og að slökkt sé á loftræstingu.
14. júlí kl 23:30 mældist skjálfti af stærð 3,9 um 30 km SA af Grímsey. Veðurstofu hafa borist tilkynninar um að hann hafi fundist í byggð, m.a. í Þórshöfn, á Akureyri og á Húsavík. Lítil eftirskjálftavirkni hefur fylgt. Skjálftar eru algengir á svæðinu, 14. maí sl. mældist þar skjálfti af stærð 5.
Skrifað af vakthafandi jarðvísindamanni 16. júl. 08:22
Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það. Meira
Vatnsfall | Staður | Rennsli | Vatnshiti |
---|
Jökulhlaupi í Leirá Syðri og Skálm er lokið.
Búist er við töluverðu afrennsli af jöklum næstu daga vegna hlýinda. Ferðalangar eru beðnir um að sýna aðgát við jökulár og að hafa í huga að vöð geta vaxið og orðið ófær þegar líður á daginn.
Vegna bilunar höfum við þurft að slökkva á þjónustunni sem birtir gögn frá vatnamælistöðvum á kortinu. Í staðinn er hægt að nálgast gögnin í Rauntímavöktunarkerfi.
Skrifað af vakthafandi sérfræðingi 15. júl. 14:18
Spáin gildir fyrir stór landsvæði og þarf því ekki að vera lýsandi fyrir byggð.
Landshluti | Barst ekki | Barst ekki | Barst ekki |
---|---|---|---|
Suðvesturhornið
|
![]() |
![]() |
![]() |
Norðanverðir Vestfirðir
|
![]() |
![]() |
![]() |
Tröllaskagi utanverður
|
![]() |
![]() |
![]() |
Eyjafjörður innanverður (tilraunaverkefni)
|
![]() |
![]() |
![]() |
Austfirðir
|
![]() |
![]() |
![]() |
Hraunrennsli heldur áfram og berst bæði til austurs og vesturs.
Mikil gasmengun mælist í Reykjanesbæ en hefur farið minnkandi. Íbúum er ráðlagt að halda sig innandyra, loka gluggum og slökkva á loftræstingu. Best er að anda um nef.
Lesa meiraÓskar Jakob Sigurðsson helgaði nær allt sitt líf veðurathugunum og mengunarmælingum á Stórhöfða. Hann hóf störf árið 1952 og vann af trúmennsku og þrautseigju í yfir sex áratugi við erfiðar aðstæður þar sem stormar voru tíðir og strangir. Óskar hlaut fjölda viðurkenninga fyrir störf sín og við minnumst hans með þökk og virðingu.
Lesa meiraUppfært 15. júlí 2025
Landris og jarðskjálftavirkni í Svartsengi halda áfram og hafa verið stöðug síðustu vikur. Um 10 smáskjálftar mælast að jafnaði á dag, flestir norðan við Grindavík og suður af Stóra Skógfelli. Kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram.
Ekki hafa orðið breytingar sem gefa tilefni til að endurskoða hættumat. Ef kvikusöfnun heldur áfram gætu líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi aukist með haustinu.
Sérlega hlýtt var víða um land í dag og dagshitamet féllu á fjölmörgum veðurstöðvum. Hæsti hiti dagsins mældist á Hjarðarlandi, 29,5°C, sem er nýtt staðarmet. Í Reykjavík fór hitinn í fyrsta sinn á þessu ári yfir 21 gráðu. Á stöðum eins og Þingvöllum, Skálholti, Kálfhóli og Bræðratunguvegi fór hitinn yfir 28°C, sem er óvenjulegt jafnvel að sumri. Á sumum stöðvum var nýja metið meira en 8°C hærra en það fyrra.
Lesa meiraSíðustu daga hefur truflunar orðið vart í merkjum á GPS mælistöðvum Veðurstofunnar. Sambærileg truflun sést á öllum stöðvum mælakerfisins. Truflunin lýsir sér sem stökk í lóðréttum hreyfingum líkt og um skyndilegt landris væri að ræða. Þar sem sambærilegt „stökk“ sést á öllum stöðvum er ekki um landris að ræða.
Lesa meiraÍ upphafi næstu viku gera spár ráð fyrir að hlýr loftmassi berist yfir landið. Í stuttu máli má segja að útlit sé fyrir að hlýindi í neðri helmingi veðrahvolfsins verði með því sem mest verður hér á okkar góða landi.
Lesa meiraUm áramótin 2009/2010 var stillt og kalt í veðri og aðstæður til hrímmyndunar því eins og best er á kosið.
Lesa meira