Kirkjubæjarklaustur

Kirkjubæjarklaustur

Hættumat var staðfest af umhverfisráðherra 10. febrúar 2010

Hættumat vegna ofanflóða á Kirkjubæjarklaustri er unnið af Veðurstofu Íslands á vegum hættumatsnefndar Skaftárhrepps. Umhverfisráðherra skipaði nefndina í samræmi við ákvæði reglugerða nr. 50... og nr. 49... um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða.

Vinna við hættumat fyrir Klaustur hófst á Veðurstofunni árið 2008 og fór vettvangskönnun fram í mars það ár og í júní, september og nóvember 2009. Niðurstöður hættumatsins voru kynntar með opnu húsi 27. október 2009 og endurskoðað hættumat var kynnt á kynningarfundi 26. nóvember 2009. Hættumatið lá síðan frammi til kynningar á skrifstofu Skaftárhrepps til 30. desember 2009, sbr. 5. gr. framannefndrar reglugerðar, jafnframt því að vera aðgengilegt á heimasíðu Veðurstofu Íslands. Ekki bárust athugasemdir við endurskoðaða hættumatið.

Matsvinna

  • Tómas Jóhannesson (verkefnisstjóri), jarðeðlisfræðingur.
  • Jón Gunnar Egilsson, tæknifræðingur.
  • Þórður Arason, jarðeðlisfræðingur.

Hættumatsnefnd Skaftárhrepps

  • Gunnar Guðni Tómasson (formaður), forseti tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík.
  • Bjarni Daníelsson, sveitarstjóri Skaftárhrepps.
  • Jóna S. Sigurbjartsdóttir, oddviti Skaftárhrepps.
  • Snjólfur Ólafsson, prófessor í viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands.

Skýrslur og kort

Skjöl eru vistuð á pdf-formi.

Hættumatskort (VÍ 2009) (pdf 0,8 Mb)

Mat á hættu vegna ofanflóða á Kirkjubæjarklaustri (endurskoðaður kynningarbæklingur, hættumatsnefnd Skaftárhrepps, 2009) (pdf 0,2 Mb)

Hættumat fyrir Kirkjubæjarklaustur. Greinargerð með hættumatskorti (Veðurstofa Íslands og hættumatsnefnd Skaftárhrepps, 2009) (pdf 6 Mb)

Hættumat vegna snjóflóða úr lágum brekkum (VÍ minnisblað TóJ-2009/02) (pdf 0,3 Mb)







Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica