Ólafsfjörður
Hættumat var staðfest af umhverfisráðherra 13. maí 2005. Endurskoðað hættumat liggur frammi til kynningar.
Hættumat til kynningar 2026
Hættumat vegna ofanflóða á Ólafsfirði var unnið af Veðurstofu Íslands fyrir Fjallabyggð í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 505/2000 um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats með breytingum í reglugerð nr. 495/2007 með síðari breytingum.Endurskoðað hættumat fyrir Ólafsfjörð eftir byggingu varnarvirkja var kynnt á íbúafundi 26. ágúst 2026 og liggur síðan frammi til kynningar í fjórar vikur.
Athugasemdafrestur er 30. september. Athugasemdir sendist til Fjallabyggðar, Gránugötu 24, 580 Siglufirði, eða með tölvupósti til fjallabyggd@fjallabyggd.is.
Matsvinna
- Tómas Jóhannesson (verkefnisstjóri), jarðeðlisfræðingur
- Magni Hreinn Jónsson, verkfræðingur
- Alexander H. Jarosch, jarðeðlisfræðingur
Skýrslur og kort
Drög að hættumatskorti (VÍ 2026) (pdf 4 Mb)
Endurskoðun á ofanflóðahættumati fyrir Ólafsfjörð eftir byggingu leiðigarðs ofan Hornbrekku. Drög með tillögu að hættumatskorti (pdf 43 Mb)Staðfest hættumat 2002
Tillögur að hættumati vegna ofanflóða í Ólafsfirði voru unnar af Veðurstofu Íslands á vegum hættumatsnefndar Ólafsfjarðarbæjar. Umhverfisráðherra skipaði nefndina í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 505/2000 um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats.
Vinna við hættumat fyrir Ólafsfjörð hófst árið 2001. Niðurstöður hættumatsins voru kynntar á opnum borgarafundi 25. október 2004 og lágu síðan frammi til kynningar í fjórar vikur. Engar athugasemdir bárust.
Matsvinna
- Kristján Ágústsson (verkefnisstjóri), jarðeðlisfræðingur
- Esther Hlíðar Jensen, jarðfræðingur
- Hörður Þór Sigurðsson, verkfræðingur
- Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur
- Tómas Jóhannesson, jarðeðlisfræðingur
Hættumatsnefnd Ólafsfjarðarbæjar
- Gunnar Guðni Tómasson (formaður), yfirverkfræðingur á þróunar- og umhverfissviði Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf.
- Stefanía Traustadóttir, bæjarstjóri Ólafsfjarðarbæjar.
- Sveinbjörn Steingrímsson, bæjartæknifræðingur í Ólafsfjarðarbæ.
- Snjólfur Ólafsson, prófessor í viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands.
Skýrslur og kort
Skjöl eru vistuð á pdf-formi. Í fellivalsgluggum er hægt að sækja ýmis skjöl og kort er tengjast hættumatinu.
Hættumatskort (VÍ 2005) (pdf 2,9 Mb)
Mat á hættu vegna ofanflóða í Ólafsfirði (kynningarbæklingur, hættumatsnefnd Ólafsfjarðarbæjar, 2004) (pdf 0,5 Mb)
Mat á hættu vegna ofanflóða í Ólafsfirði. Greinargerð með hættumatskorti (hættumatsnefnd Ólafsfjarðarbæjar, 2005) (pdf 0,2 Mb)
Hættumat fyrir Ólafsfjörð (VÍ greinargerð 04021, 2004) (pdf 0,7 Mb)
Skriðuhættumat fyrir Ólafsfjörð (VÍ greinargerð 04018, 2004) (pdf 0,7 Mb)
Results of the 2D avalanche model SAMOS for Ólafsvík and Ólafsfjörður (VÍ greinargerð 04008, 2004 ) (pdf 0,04 Mb)
Keyrsluskrár SAMOS líkanreikninga (PowerPoint)
Ofanflóð í Ólafsfirði (VÍ greinargerð 04015, 2004) (pdf 0,7 Mb)



