Þingeyri

Þingeyri

Hættumat var staðfest af umhverfisráðherra 30. ágúst 2005

Tillögur að hættumati vegna ofanflóða á Þingeyri voru unnar af Veðurstofu Íslands á vegum hættumatsnefndar Ísafjarðarbæjar. Náttúrufræðistofnun Íslands, Akureyrarsetur, vann að þeim hluta verkefnisins sem varðar hættumat vegna skriðufalla. Umhverfisráðherra skipaði nefndina í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 505/2000 um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats.

Vinna við hættumat fyrir Þingeyri hófst árið 2003. Niðurstöður hættumatsins voru kynntar á opnum borgarafundi 9. mars 2005 og lágu síðan frammi til kynningar í fjórar vikur. Engar athugasemdir bárust.

Matsvinna

  • Kristján Ágústsson (verkefnisstjóri), jarðeðlisfræðingur
  • Hörður Þór Sigurðsson, verkfræðingur
  • Halldór G. Pétursson, jarðfræðingur
  • Höskuldur Búi Jónsson, jarðfræðingur
  • Þorsteinn Sæmundsson, jarðfræðingur
  • Oddur Pétursson, snjóathugunarmaður
  • Tómas Jóhannesson, jarðeðlisfræðingur
  • Svanbjörg Helga Haraldsdóttir, jarðeðlisfræðingur

Hættumatsnefnd Ísafjarðarbæjar

  • Snjólfur Ólafsson (formaður), prófessor í viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands.
  • Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar..
  • Jóhann Birkir Helgason, bæjartæknifræðingur Ísafjarðarbæjar.
  • Gunnar Guðni Tómasson, aðstoðarframkvæmdastjóri á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf.

Skýrslur og kort

Skjöl eru vistuð á pdf-formi. Í fellivalsgluggum er hægt að sækja ýmis skjöl og kort er tengjast hættumatinu.


Hættumatskort (VÍ 2005) (pdf 0,1 Mb)


Mat á hættu vegna ofanflóða á Þingeyri (kynningarbæklingur, hættumatsnefnd Ísafjarðarbæjar, 2005) (pdf 0,2 Mb)


Mat á hættu vegna ofanflóða á Þingeyri í Dýrafirði. Greinargerð með hættumatskorti (hættumatsnefnd Ísafjarðarbæjar, 2005) (pdf 0,3 Mb)


Hættumat fyrir Þingeyri í Dýrafirði (VÍ greinargerð 04024, 2004) (pdf 0,5 Mb)


Hættumat vegna skriðufalla á Þingeyri (NÍ skýrsla 04003, 2004) (pdf 0,5 Mb)



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica