Sauðárkrókur

Sauðárkrókur

Hættumat var staðfest af umhverfis- og auðlindaráðherra 3. mars 2016

Hættumat vegna ofanflóða á Sauðárkróki var unnið af Veðurstofu Íslands á vegum hættumatsnefndar Skagafjarðar. Umhverfisráðherra skipaði nefndina í samræmi við 3. gr. reglugerðar 50... með breytingum í reglugerð 49... um hættumat vegna ofanflóða og flokkun og nýtingu hættusvæða.

Vinna við hættumat fyrir Sauðárkrók hófst á Veðurstofunni árið 2013 og vettvangskönnun fór fram í maí það ár. Halldór G. Pétursson á Náttúrufræðistofnun Íslands á Akureyri hafði áður skoðað hrun- og skriðuhættu undir Nöfunum og tekið saman um það skýrslu. Niðurstöður hættumatsins voru kynntar með opnu húsi 12. nóvember 2015 og lágu síðan frammi til kynningar á skrifstofu Skagafjarðarsveitar til 18. desember 2015, sbr. 5. gr. framannefndrar reglugerðar, jafnframt því að vera aðgengilegar á heimasíðu Veðurstofu Íslands. Engar athugasemdir bárust við hættumatið og var það staðfest með undirritun Umhverfis- og auðlindaráðherra þann 3. mars 2016.

Matsvinna

  • Eiríkur Gíslason (verkefnisstjóri), verkfræðingur.
  • Tómas Jóhannesson, jarðeðlisfræðingur.

Hættumatsnefnd Skagafjarðar

  • Gunnar Guðni Tómasson (formaður), verkfræðingur.
  • Jón Örn Berndsen, skipulags- og byggingarfulltrúi.
  • Vernharð Guðnason, slökkvuliðsstjóri.
  • Fjóla Guðrún Sigtryggsdóttir, verkfræðingur.

Skýrslur og kort

Skjöl eru vistuð á pdf-formi.

Hættumatskort (VÍ 2016) (pdf 1,8 Mb)

Mat á hættu vegna ofanflóða á Sauðárkróki (kynningarbæklingur, hættumatsnefnd Skagafjarðar, 2015) (pdf 1,7 Mb)

Ofanflóðahættumat fyrir Sauðárkrók. Greinargerð með hættumatskorti (Veðurstofa Íslands og hættumatsnefnd Skagafjarðar , 2015) (pdf 6.9 Mb)

Hættumat vegna snjóflóða úr lágum brekkum (VÍ minnisblað TóJ-2009/02) (pdf 0,3 Mb)







Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica