Um ofanflóðastarfsemi

Ofanflóð

Margþætt viðfangsefni

Kynning

Kynningarmyndskeið um ofanflóðastarfsemi Veðurstofunnar var gert fyrir Vísindavöku 2013. Myndskeiðið fjallar um snjó í víðasta skilningi. Þar er  komið inn á snjóflóð, jökla, samgöngur og margt fleira.

Viðvaranaþjónusta

Veðurstofan sinnir daglegu eftirliti með snjóalögum í námunda við þéttbýlisstaði þar sem snjóflóðahætta er yfirvofandi. Veðurstofan gefur einnig út viðvaranir um snjóflóðahættu og tekur þátt í ákvörðunum um rýmingu húsa í samvinnu við heimamenn. Gerðar hafa verið rýmingaráætlanir og rýmingarkort fyrir helstu þéttbýlisstaði landsins sem búa við ofanflóðahættu. Rýmingaráætlanirnar eru unnar í samvinnu við almannavarnanefndir staðanna og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Hættumat

Ofanflóðahættumat hefur verið unnið fyrir þéttbýli í snjóflóðabyggðum á grundvelli reglugerðar 505/2000 um hættumat vegna ofanflóða og flokkun og nýtingu hættusvæða með síðari breytingum í reglugerð nr. 495/2007. Mat á ofanflóðahættu í einstökum húsum eða byggingarreitum utan þéttbýlis þar sem staðfest hættumat liggur ekki fyrir er gert með staðbundnu hættumati. Vegna hættumatsins þurfa að fara fram ýmsar grundvallarrannsóknir á eðli snjóflóða hérlendis. Samvinna er mikil við erlenda sérfræðinga og stofnanir. Á vefsíðum hættumats er að finna skýrslur og aðrar upplýsingar um hættumat fyrir helstu þéttbýlisstaði landsins sem búa við snjóflóðahættu. Fyrir hvern stað kemur fram hversu langt vinna við hættumatið er komin og á sérstökum vefsíðum staðanna má nálgast gögn með nánari upplýsingum.

Snjóflóðaannálar

Ritaðir hafa verið snjóflóðaannálar þéttbýlisstaða og nokkurra dreifbýlishéraða.

Varnarvirki

Veðurstofan gegnir ráðgefandi hlutverki við hönnun varnarvirkja auk þess að standa fyrir vettvangstilraunum með ýmsar gerðir varnarvirkja. Gerð hefur verið yfirlitsskýrsla um þörf fyrir varnarvirki á Íslandi.

Aurskriður

Unnið er að rannsóknum og skráningu aurskriðna í samvinnu við Náttúrufræðistofnun Íslands.

Heimildir

Haldin er heimildaskrá yfir snjóflóð og skriðuföll, bæði í ártalsröð og höfundaröð, þ.m.t. rit um hættumat, áhættu, björgun úr flóðum, varnarvirki o.fl.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica