Akureyri

Akureyri

Hættumat var staðfest af umhverfisráðherra 23. ágúst 2010

Hættumat vegna ofanflóða á Akureyri er unnið af Veðurstofu Íslands á vegum hættumatsnefndar Akureyrarbæjar í samvinnu við Náttúrufræðistofnun Íslands á Akureyri. Umhverfisráðherra skipaði nefndina í samræmi við 3. gr. reglugerðar 50... með breytingum í reglugerð 49... um hættumat vegna ofanflóða og flokkun og nýtingu hættusvæða.

Vinna við hættumat fyrir Akureyri hófst á Veðurstofunni vorið 2008 með fundi starfsmanna Veðurstofunnar með hættumatsnefnd og vettvangsferð um Akureyrarbrekkur. Niðurstöður hættumatsins voru kynntar með opnu húsi þann 8. apríl 2010 og lágu frammi til kynningar á bæjarskrifstofunni í fjórar vikur. Frestur til að koma athugasemdum á framfæri rann út 14. maí og engar athugasemdir bárust.

Matsvinna

  • Eiríkur Gíslason, verkfræðingur.
  • Tómas Jóhannesson (verkefnisstjóri), jarðeðlisfræðingur.
  • Halldór G. Pétursson á Náttúrufræðistofnun Íslands á Akureyri vann með starfsmönnum VÍ við mat á aurskriðuhættu og skráningu ofanflóðasögu.

Hættumatsnefnd Akureyrarbæjar

  • Gunnar Guðni Tómasson (formaður), forseti tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík.
  • Sigrún Björk Jakobsdóttir, formaður bæjarráðs og forseti bæjarstjórnar Akureyrar.
  • Helgi Már Pálsson, deildarstjóri framkvæmdadeildar Akureyrar.
  • Snjólfur Ólafsson, prófessor í viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands.

Skýrslur og kort

Skjöl eru vistuð á pdf-formi.

Hættumatskort (VÍ 2010) (pdf 1,3 Mb)

Mat á hættu vegna ofanflóða á Akureyri (kynningarbæklingur, hættumatsnefnd Akureyrarbæjar, 2010) (pdf 0,3 Mb)

Ofanflóðahættumat fyrir Akureyri. Greinargerð með hættumatskorti (Veðurstofa Íslands og hættumatsnefnd Akureyrarbæjar, 2010) (pdf 7.6 Mb)

Hættumat vegna snjóflóða úr lágum brekkum (VÍ minnisblað TóJ-2009/02) (pdf 0,3 Mb)







Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica