Drangsnes

Drangsnes úrelt

((( ath úrelt síða )))

Hættumat vegna ofanflóða á Drangsnesi við Steingrímsfjörð var unnið af Veðurstofu Íslands á vegum hættumatsnefndar Kaldrananeshrepps. Umhverfisráðherra skipaði nefndina í samræmi við ákvæði reglugerða nr. 505/2000 og nr. 495/2007 um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða.

Vinna við hættumat fyrir Drangsnes hófst á Veðurstofunni árið 2008 og vettvangskönnun fór fram í febrúar það ár. Niðurstöður hættumatsins verða kynntar með opnu húsi 15. september 2009 og munu síðan liggja frammi til kynningar á hreppsskrifstofunni í fjórar vikur.

Matsvinna

  • Tómas Jóhannesson (verkefnisstjóri), jarðeðlisfræðingur.
  • Jón Gunnar Egilsson, tæknifræðingur.
  • Þórður Arason, jarðeðlisfræðingur.

Hættumatsnefnd Kaldrananesshrepps

  • Gunnar Guðni Tómasson (formaður), forseti tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík.
  • Jón Hörður Elíasson rekstrarstjóri, Drangsnesi.
  • Halldór Höskuldsson stýrimaður, Drangsnesi.
  • Snjólfur Ólafsson, prófessor í viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands.

Skýrslur og kort

Skjöl eru vistuð á pdf-formi.


Tillaga að hættumatskorti (VÍ 2009) (pdf 0,4 Mb)


Mat á hættu vegna ofanflóða á Drangsnesi (kynningarbæklingur, hættumatsnefnd Kaldrananeshrepps, 2009) (pdf 3,2 Mb)


Hættumat fyrir Drangsnes. Greinargerð með hættumatskorti. DRÖG með tillögu að hættumatskorti (Veðurstofa Íslands og hættumatsnefnd Kaldrananeshrepps, 2009) (pdf 2,3 Mb)

 

Hættumat vegna snjóflóða úr lágum brekkum (VÍ minnisblað TóJ-2009/02)(pdf 0,3 Mb)



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica