Skjálftahrina í norðvesturhluta Öskju í gær
Áframhaldandi landris
Í gær varð skjálftahrina í norðvesturhluta Öskju og mældust tæplega 30
skjálftar frá kl. 8 um morguninn til hádegis. Stærsti skjálftinn mældist 3,5 að
stærð og varð á um 5 km dýpi. Einnig mældust þrír skjálftar frá 2,0 til 2,5 að
stærð, en aðrir skjálftar voru minni. Jarðskjálftavirkni hefur lítið breyst á
milli mánaða og verið nokkuð stöðug undanfarið þar til í gær. Síðast mældust
skjálftar yfir 3 að stærð í janúar 2022 og október 2021.
Kortið sýnir staðsetningu skjálftanna í gær 25. Mars, á norðvesturbrún Öskju. Bláir ferningar sýna staðsetningar á GPS mælistöðvum.
Aflögun í Öskju hefur verið stöðugt í gangi í um tvo ár frá því í lok sumars
2021. Síðasta haust dró þó verulega úr hraða þess eins og greint var frá í
frétt. Mælingar
frá því í lok síðasta árs sýna hinsvegar að hraði aflögunarinnar hefur aftur
aukist en er þó minni en hann var fyrir haustið 2023. Mælingar næstu daga og
vikur á aflögun munu leiða það í ljós hvort hraðinn hafi aukist aftur og verður
áfram fylgst náið með þróun mælinga á svæðinu.
Grafið
sýnir gögn frá GPS mælistöðinni Tanna sem staðsett er á norðurbrún Öskju. Efsta
grafið sýnir hreyfingu í norður, grafið í miðjunni sýnir austur hreyfingu og
neðsta grafið lóðrétta hreyfingu.
Gervitunglamynd frá 19. Mars sýnir að hefðbundið vetrarástand ríkir á
svæðinu og er vatnið þakið ís að utan skildum tveimur svæðum sem eru ætíð opin
vegna jarðhitavirkni. Í febrúar fyrir um ári síðan varð Öskjuvatn íslaust sem
var óvenjulegt svo snemma árs. Undir lok síðasta árs setti Veðurstofan upp
vefmyndavél inni í Öskju sem horfir á suðurhluta hennar. Myndavélin sendir
myndir á 10 mínútna fresti sem sýna aðstæður inni í Öskju. Nýleg mynd tekin á
góðviðrisdegi þar sem umhverfið sést vel fylgir fréttinni.
Gervitunglamynd sem sýnir aðstæður í Öskju 19. mars 2024. Sjá má íslaus svæði við vesturströnd Öskjuvatns þar sem er þekkt jarðhitasvæði.
Nánari upplýsingar um Öskju má finna í Íslensku Eldfjallavefsjánni.