Óvenju mikill fjöldi snjóflóða
Óvenjulegt að þetta öflugar snjóflóðahrinur séu í gangi í svona mörgum landshlutum á sama tíma
Mörg snjóflóð hafa fallið í snjóflóðahrinum á norðanverðum Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum síðustu daga. Alls hefur ofanflóðavakt Veðurstofunnar skráð á þessum tímapunkti 122 snjóflóð í gagnagrunn undanfarna 10 daga. Þar eru þó aðeins skráð þau flóð sem ofanflóðavaktin fær tilkynningar um. Ljóst er að mun fleiri flóð hafa fallið án þess að þau hafi verið skráð. Mörg flóð falla utan alfaraleiðar, önnur fennir yfir án þess að þau sjáist og ekki eru öll flóð tilkynnt til Veðurstofu.
Mörg þeirra snjóflóða sem fallið hafa í hrinunni hafa komið úr hefðbundnum snjóflóðafarvegum og eru ekki óvenjulega stór. Sum flóðanna hafa þó verið óvenjuleg. “Það er til dæmis ekki algengt að snjóflóð falli yfir þjóðveginn á Öxnadalsheiði, það er þó ekki óþekkt. Nú fóru snjóflóð yfir veginn á fimm stöðum á heiðinni“, segir Harpa Grímsdóttir, hópstjóri ofanflóðavöktunar á Veðurstofu Íslands. „Einnig er óvenjulegt að þetta öflugar snjóflóðahrinur séu í gangi í svona mörgum landshlutum á sama tíma“, segir Harpa.
Snjóflóðahættan og snjóflóðin hafa valdið talsverðu raski og tjóni
Snjóflóð féll á skíðasvæðið í
Skarðsdal á Siglufirði þann 20. janúar og olli miklu tjóni. Skíðaskálinn er
ónýtur og flóðið féll einnig á búnaðargáma á svæðinu og ýtti þeim á nýjan
troðara. Það snjóflóð var óvenjulega stórt og féll snemma í hrinunni. Snjóflóð
féll úr Hólmgerðarfjalli inn af Oddsskarði við Eskifjörð 25. janúar. Það olli
tjóni á skotæfingasvæði og virðist hafa eyðilagt aðstöðuhús á svæðinu. Snjóflóð
sem féll í Harðskafa á Eskifirði er það stærsta sem vitað er um á þeim stað.
Það stöðvaðist þó langt ofan byggðar og ógnaði henni ekki. Innarlega í
Fnjóskadal féll svo stórt flóð sem braut mikið af skógi. Til viðbótar við þetta
hefur mælabúnaður Veðurstofunnar orðið fyrir tjóni í snjóflóðum á a.m.k.
tveimur stöðum, og víða hefur orðið tjón á girðingum. Síðustu flóð sem vitað er
um í þessari hrinu féllu í Kirkjubólshlíð við Skutulsfjörð í morgun 26. janúar.
Snjóflóð eyðilagði skálann í Skarðsdal, skíðasvæði Siglfirðinga, þann 20. janúar. (Ljósmynd: Sigurður Þór Helgason)
Mikilvægt að útivistarfólk sé meðvitað um snjóflóðahættu
Snjóflóðahrinurnar nú eru afleiðing
langvarandi snjókomu, éljagangs og skafrennings í norðan- og norðaustlægum
áttum. Ekki hefur verið aftakaveður en óstöðugleiki er í snjóalögum og sum
flóðanna hafa fallið í skaplegu veðri. „Ástæða er til þess að benda sérstaklega
á að talsverð hætta er nú á því að fólk á ferð í brattlendi til fjalla setji af
stað flóð. Vélsleðafólk, skíðamenn og aðrir sem stunda útivist í fjalllendi að
vetrarlagi ættu að forðast það að vera í eða undir bröttum hlíðum þar sem snjór
hefur safnast undanfarna daga“, segir Harpa.
Á snjóflóðasíðu Veðurstofunnar er hægt að fylgjast með snjóflóðaskráningum, svæðisbundinni snjóflóðaspá fyrir valin svæði og helstu fréttum af ofanflóðum.