Erindi um jökla á loftslagsráðstefnunni í París
Streymi af viðburðum í norræna skálanum
Veðurstofa Íslands stendur að hliðarviðburði í Norræna skálanum á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París (COP21) miðvikudaginn 9. desember 2015 í samstarfi við umhverfis- og auðlindaráðuneytið.
Streymi verður af viðburðinum yfir netið kl. 10:30 - 11:45 að íslenskum tíma. Allt efni norræna skálans verður í boði sem upptökur í einn mánuð eftir flutning og þar er íslenska efnið vistað sem dagskrárliður að staðartíma (Dec 09 2015, 11:30 - 12:45); því miður vantar hljóðið til að byrja með en það dettur inn á 14. mínútu upptökunnar (13'20").
Retreating Arctic Glaciers: Monitoring and adaptation efforts
Fundarstjóri Bergþóra Njála Guðmundsdóttir. Dagskrá að íslenskum tíma:
- 10:30 Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra opnar fundinn
- 10:35 – 10:55 Jórunn Harðardóttir, Veðurstofu Íslands: Joint Nordic Efforts in Climate and Renewable Energy Projects
- 10:55 – 11:15 René Forsberg, DTU: Monitoring of the acceleration mass loss of Arctic glaciers: The SVALI Nordic Centre of Excellence
- 11:15 – 11:35 Halldór Björnsson, Veðurstofu Íslands: Iceland, glaciers and climate. Challenges for adaptation
- 11:35 – 11:45 SVALI, heimildamynd um þetta öndvegisverkefni
Áherslan verður á norrænt rannsóknasamstarf um loftslagsbreytingar og aðlögun að þeim; einnig á öndvegisverkefninu SVALI. Sérstök áhersla verður á íslenska jökla og áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi, ásamt nauðsynlegri aðlögun. Norrænir jöklar eru náttúruleg rannsóknastofa þar sem kanna má hvernig freðhvolf jarðarinnar bregst við loftslagsbreytingum. Fjallað verður um:
- Hraðvaxandi rýrnun íss á Norður-Atlantshafssvæðinu
- Staðbundna aðlögun sveitarfélaga og ríkisstjórna að líklegum breytingum
- Norrænar rannsóknir á staðbundnum og hnattrænum afleiðingum breytinga á freðhvolfinu
Sjá nánar í auglýsingu um viðburðinn en þar má sjá ljósmynd úr heimsókn Frakklandsforseta til Íslands 16. okt. síðastliðinn: François Hollande og Ólafur Ragnar Grímsson við Sólheimajökul ásamt fylgdarliði.
Grein um íslensku jöklana
Þess má geta, að í rafrænu sérhefti tengdu ráðstefnunni er grein eftir sérfræðinga Veðurstofunnar, þá Árna Snorrason, Tómas Jóhannesson og Þorstein Þorsteinsson er nefnist Glaciers and ice caps: Vulnerable water resources in a warming climate.