Fréttir
hvítur jökull, sprungur svartar af ösku
Eyjafjallajökull við sólarupprás 9. október 2010. Fyrsti snjórinn fallinn en sprungurnar eru svartar af ösku.

Haustþing Veðurfræðifélagsins 2010

15.10.2010

Haustþing Veðurfræðifélagsins verður haldið í Orkugarði, Grensásvegi 9, miðvikudaginn 20. október. Þingið er ókeypis og opið öllum er áhuga hafa á veðri og veðurfari. Að þessu sinni fjallar stór hluti þingsins um veður og eldgos.

Dagskrá

  • 13:00 Inngangur
  • 13:05 Theodór F. Hervarsson: Eldgosavöktun: Hlutverk Veðurstofu Íslands
  • 13:20 Ingibjörg Jónsdóttir: Fjarkönnun á eldgosum og tengdum fyrirbærum
  • 13:35 Haraldur Ólafsson: Öskumælingar yfir Íslandi og SGN
  • 13:50 Þórður Arason: Hvað veldur eldingum í eldgosum?
  • 14:05 Almennar umræður og spurningar

14:20 Kaffihlé

  • 14:50 Guðrún Nína Petersen: Með gosmökk á radarnum
  • 15:05 Kristján Jónasson: Vindhraði og vindorka á Íslandi
  • 15:20 Emil H. Valgeirsson: Veðurdagbók fyrir Reykjavík
  • 15:35 Ólafur Rögnvaldsson: SARWeather
  • 15:50 Kristján Jónasson: Ný langtímaspá fyrir öldina
  • 16:05 Þingi slitið

Stutt ágrip hluta erindanna má finna á vefsíðu félagsins.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica