Fundur um þróun mála við Öskju
Veðurstofa Íslands fundaði mánudaginn 25. Júlí með vísindamönnum
frá Jarðvísindastofnun HÍ ásamt fulltrúum
almannavarna. Fundarefnið var þróun mála í Öskju síðustu mánuði þar sem
landbreytingar og jarðskjálftagögn voru rædd. Land hefur risið frá
því í ágúst í fyrra. Skýrari mynd hefur nú fengist á
landrisið á svæðinu með úrvinnslu og túlkun gervitunglamynda eftir að snjóa
hefur leyst á svæðinu. Landrisið mælist nú mest
um 35 cm og er miðja þess skammt vestan við Öskjuvatn. Landrisið stafar
af þrýstiaukningu í rótum eldstöðvarinnar og er ástæða þess talin
vera söfnun kviku grunnt í
jarðskorpunni. Líkanreikningar benda til þess að dýpi kvikusöfnunarinnar sé um 2 km og að kvikan dreifi sér þar lárétt í jarðskorpunni í miðju eldstöðvarinnar. Rishraðinn er óvenjumikill sé m.v. sambærileg eldfjöll í
heiminum. Skjálftavirkni hefur ekki verið mikil samfara þessu,
hugsanlega vegna þess að áður en núverandi ristímabil hófst þá var
viðvarandi landsig í Öskju síðastliðna áratugi. Einnig getur hluti
aflögunar orðið á öskjusprungum sem geta hreyfst að hluta án skjálftavirkni.
Sviðsmyndir eru óbreyttar. Ef kvikustreymi verður viðvarandi kann risferlið að halda áfram
með svipuðum hætti í nokkurn tíma. Búist er við að aukin skjálftavirkni verði
skýr aðdragandi að frekari kvikuhreyfingum neðanjarðar eða eldgosi. Líklegasta sviðsmynd ef til eldgoss
kemur er sprungugos í nærumhverfi öskjunnar.
Mælingar á eldfjöllum með þroskuðum öskjum, eins og í
tilfelli Öskju, sýna að þar geta orðið miklar
jarðskorpuhreyfingar án þess að til eldgoss komi, jafnvel þannig að hreyfingar
nemi meir en einum metra áður en til eldgoss komi. Ekki er þó hægt
að útiloka að í tilfelli Öskju verði fyrirvarinn verði
stuttur, jafnvel talinn í nokkrum klukkustundum.