Fréttir
Skjamynd-2026-05-26-163157

EUMETNET fagnar 30 ára evrópsku samstarfi á sviði veðurfræði

28.5.2026

Árið 2026 eru 30 ár liðin frá upphafi samstarfs evrópskra veðurstofa innan EUMETNET. Frá árinu 1996 hefur EUMETNET gert aðildarstofnunum sínum kleift að vinna saman að sameiginlegum forgangsmálum, meðal annars að því að styrkja mæli- og athugunarkerfi, bæta gæði og aðgengi að gögnum, veita öfluga veður- og loftslagsþjónustu og efla nýsköpun. Afmælið undirstrikar mikilvægi evrópsks samstarfs, sem eflir starf aðildarstofnana í hverju landi og skilar áþreifanlegum sameiginlegum ávinningi til þeirra og samfélagsins alls. 

EUMETNET var upphaflega stofnað til að efla samstarf og gæta sameiginlegra hagsmuna evrópskra veðurstofa. Síðan þá hefur samstarfið þróast í takt við breyttar kröfur á sviði vísinda, reksturs og stefnumótunar. Það sem hófst sem frjálst samstarfsnet hefur vaxið og orðið að traustu og þroskuðu samstarfi sem byggir á langtímaskuldbindingu, sameiginlegum markmiðum og gagnkvæmu trausti. 

Stuðningur við aðildarstofnanir með sameiginlegum verkefnum 

Á undanförnum þremur áratugum hefur EUMETNET gert aðildarstofnunum sínum kleift að eiga samstarf á fjölmörgum sviðum og þannig stuðlað að aukinni skilvirkni, samræmi og nýsköpun í veðurfræði í Evrópu. Með sameiginlegum verkefnum geta aðildarstofnanir miðlað sérþekkingu, dregið úr óþarfa tvíverknaði og nýtt lausnir sem þróaðar eru í sameiningu. 

Samstarfið styður evrópskar veðurstofur við að sinna opinberu þjónustuhlutverki sínu, um leið og það styrkir sameiginlega getu Evrópu til að bregðast við breyttum þörfum notenda, tækniframförum og áskorunum á sviði umhverfis- og loftslagsmála. 

Sameiginlegur ávinningur yfir landamæri 

Frá stofnun hefur EUMETNET þróast frá því að vera vettvangur samhæfingar yfir í heildstæðan ramma fyrir fjölbreytt sameiginleg verkefni á sviði veðurfræði í Evrópu. 

Fyrstu samstarfsverkefnin beindust að því að draga úr gloppum í athugunum á svæðum þar sem gögn voru af skornum skammti og á afskekktum svæðum, svo sem á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Það var meðal annars gert með háloftaathugunum frá skipum og veðurathugunum úr flugvélum. Samhliða þessu hófst miðlun gagna frá veðurstöðvum á jörðu niðri og veðursjám, í því skyni að bæta gæði og aðgengi að gögnum. 

Þessi fyrstu verkefni leiddu til stofnunar EUMETNET Composite Observing System, sem var mikilvægur áfangi í evrópsku veðurfræðisamstarfi. Þau sýndu fram á að samstarf á evrópskum vettvangi gæti skilað betri þekju athugana, gögnum af meiri gæðum, samevrópskum afurðum byggðum á innlendum gögnum og, síðast en ekki síst, nákvæmari veðurspám með minni tilkostnaði. 

Á grundvelli þessa árangurs bættust smám saman við fleiri tegundir athugana, þar á meðal veðurathuganir á hafi og mælingar á ástandi lofthjúpsins í mismunandi hæð, svo sem á vindi, hita, raka og loftbornum ögnum. Nýverið hefur einnig bæst við vöktun frjókorna í lofti. Á sama tíma hefur samstarfið þróast út fyrir mælingar og nær nú einnig til veðurspáa, loftslagsþjónustu, flugveðurþjónustu, menntunar og þjálfunar, gagnastefnu og aðgengis að gögnum, auk sameiginlegrar hagsmunagæslu gagnvart mikilvægum evrópskum og alþjóðlegum stofnunum. 

Á sviði veðurspáa er MeteoAlarm eitt sýnilegasta verkefni EUMETNET. MeteoAlarm er samevrópskt viðvörunarkerfi fyrir margvíslega veðurvá, þar sem viðvörunarupplýsingum frá veðurstofum víða um Evrópu er safnað saman, þær samræmdar og gerðar aðgengilegar á einum sameiginlegum vettvangi. 

Skjamynd-2026-05-26-162406
MeteoAlarm safnar saman veðurviðvörunum frá evrópskum veðurstofum og birtir þær á sameiginlegum vettvangi. Lituðu svæðin á kortinu sýna hvar veðurvá er til staðar og hversu alvarleg hún er.

Vegna vaxandi eftirspurnar eftir gögnum og örra tæknibreytinga hefur EUMETNET þróað MeteoGate sem samtengdan evrópskan gagnainnvið. Markmiðið er að auðvelda aðildarstofnunum og utanaðkomandi notendum að finna og nálgast veðurgögn. Samhliða þessu hefur EUMETNET hrundið af stað fjölbreyttum verkefnum til að nýta gervigreind og vélanám í þágu veðurfræði, loftslagsþjónustu og umhverfistengdra verkefna. 

Saman sýnir þessi þróun hvernig EUMETNET hefur á þremur áratugum þróast í samtök sem mótast af þátttöku aðildarstofnana og byggja upp samþætta evrópska getu á sviði athugana, veðurspáa, loftslagsþjónustu, flugveðurþjónustu, gagnamiðlunar og nýsköpunar. 

Veðurstofa Íslands og EUMETNET 

Sameiginlegur árangur EUMETNET byggir á framlagi og þátttöku aðildarstofnananna, sem leggja samstarfinu lið með ólíkum en jafn mikilvægum hætti. Sumar stofnanir taka að sér að leiða sameiginleg verkefni fyrir hönd allra aðildarstofnana, á meðan aðrar leggja til gögn, þekkingu og sérfræðiþekkingu sem nýtist samfélaginu öllu. 

Veðurstofa Íslands hefur um árabil tekið virkan þátt í samstarfi EUMETNET og nýtir þennan sameiginlega evrópska vettvang til að styrkja veðurþjónustu, vöktun og miðlun upplýsinga til samfélagsins. Lega Íslands á Norður-Atlantshafi, nálægð við norðurslóðir og hraðar veðurbreytingar gera alþjóðlegt samstarf um mælingar, spár, viðvaranir og aðgengi að gögnum sérstaklega mikilvægt.  

Með þátttöku sinni leggur Veðurstofan sitt af mörkum til sameiginlegs þekkingargrunns evrópskra veðurstofa, meðal annars með gögnum, sérfræðiþekkingu og þátttöku í sameiginlegum verkefnum. Jafnframt nýtur stofnunin góðs af samræmdum aðferðum, sameiginlegum innviðum, tæknilausnum og miðlun þekkingar innan samstarfsins. Slíkt samstarf styður við markmið Veðurstofunnar um að veita áreiðanlega og tímanlega þjónustu vegna veðurs, loftslags og náttúruvár.  

Á komandi árum verður mikilvægt að efla evrópskt samstarf, ekki síst vegna aukinna samfélagslegra krafna um nákvæmar upplýsingar, skýrar viðvaranir og traustan undirbúning gagnvart áhrifum veðurs og loftslagsbreytinga. 

A36
Þátttakendur á fundi EUMETNET í tengslum við 30 ára afmæli samstarfs evrópskra veðurstofa. Myndin var tekin á A36 fundinum í Osló í maí 2026.

Horft til framtíðar 

Um leið og EUMETNET fagnar 30 ára afmæli sínu er sjónum ekki aðeins beint að árangri liðinna ára heldur einnig að þeim áskorunum sem fram undan eru. Kröfurnar sem gerðar eru til veðurstofa taka stöðugum breytingum og áframhaldandi samstarf er lykilatriði til að mæta þeim með árangursríkum hætti. 

Á grunni þriggja áratuga sameiginlegrar reynslu mun EUMETNET halda áfram að styðja aðildarstofnanir sínar með því að efla samstarf, hvetja til nýsköpunar og styrkja evrópskt veðurfræðisamfélag. Með því móti verða veðurstofur áfram vel í stakk búnar til að miðla vönduðum og áreiðanlegum upplýsingum og þjónustu í þágu samfélagsins um ókomin ár. 

 

Skjamynd-2026-05-26-163157

Afmælisbæklingur EUMETNET 

Kynningarbæklingur um 30 ára samstarf evrópskra veðurstofa innan EUMETNET, helstu verkefni samstarfsins og ávinning þess fyrir veður- og loftslagsþjónustu í Evrópu.


Vefur EUMETNET 








Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica