Fréttir
Þekktastur horfinna jökla hér á landi er líklega Ok sem var afskráður sem jökull haustið 2014 þegar ljóst var hann væri hættur að skríða undan eigin þunga. Hér er mynd af jöklinum 2. nóvember 1990. Um 24 árum síðar var hann afskráður sem jökull. ((Ljósmynd: Veðurstofa Íslands/Oddur Sigurðsson)

Árið 2025 verður alþjóðaár jökla

Tónninn fyrir næsta ár sleginn með viðburðum í Reykjavík, á Seltjarnarnesi og við minningarskjöld um Okjökul 17.–18. ágúst 2024. Jöklagrafreitur reistur við Gróttu á Seltjarnarnesi

13.8.2024

Sameinuðu þjóðirnar hafa nýlega ákveðið að árið 2025 verði helgað jöklum á hverfanda hveli og að 21. mars ár hvert verði dagur jökla. 

Alþjóðaárið verður nýtt til að vekja athygli á mikilvægi jökla, snævar og íss í vatnafræðilegu og veðurfarslegu samhengi og ekki síður efnahagslegu, samfélagslegu og umhverfislegu tilliti.

Í aðdraganda jöklaársins standa ýmsar stofnanir, háskólar og alþjóðasamtök fyrir nokkrum viðburðum til þess að beina athygli að jöklabreytingum og mikilvægi þeirra.

Jöklagrafreitur reistur í Gróttu

Laugardaginn 17. ágúst kl. 13–16 verður haldinn viðburður á vegum Rice háskóla, Jöklarannsóknafélags Íslands, Náttúruminjasafns Íslands, Veðurstofu Íslands, Háskóla Íslands, Alþjóðlegu jöklabreytingasamtanna (World Glacier Monitoring Service, WGMS) og Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO), þar sem vakin verður athygli á jöklum sem eru að hverfa eða eru horfnir.

Viðburðurinn hefst á Fiskislóð 31d í rými Marvaða þar sem opnaður verður alþjóðlegur listi yfir 15 valda jökla sem eru horfnir eða eiga stutt eftir, en hann má finna á vefsíðunni Global Glacier Casualty List

Þaðan verður haldið út á Seltjarnarnes þar sem reistur verður tímabundinn grafreitur með legsteinum úr ís í námunda við hús Náttúruminjasafns Íslands nærri Gróttu. Þar verða lesin upp eftirmæli um alla jöklana á listanum og mun Hildigunnur H. H. Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofu Íslands lesa ein af eftirmælunum.

Tugþúsundir jökla hafa horfið á undanförnum áratugum um allan heim og hugmyndin er að bæta við listann jafnóðum og jöklar hverfa. Á dagskránni verða stutt innlegg frá jöklafræðingum ásamt fleiri ræðumönnum.

Sjá nánar viðburð á Facebook

Gönguferð á Ok í tilefni þess að fimm ár eru liðin síðan reistur var minningarskjöldur um jökulinn

Jöklar landsins voru kortlagðir um aldamótin síðustu og reyndust þeir rúmlega 300 talsins. Þegar jöklarnir voru kortlagðir að nýju 2017 og 2019 höfðu tugir þeirra horfið.

Þekktastur horfinna jökla hér á landi er líklega Ok sem var afskráður sem jökull haustið 2014 þegar ljóst var hann væri  hættur að skríða undan eigin þunga.

Fimm ár eru nú liðin síðan reistur var minningarskjöldur um Okjökul og gefin út dánartilkynning í ágúst 2014. Af því tilefni verður efnt til göngu á fjallið sunnudaginn 18. ágúst í samstarfi Jöklarannsóknafélags Íslands, Ferðafélags Íslands og Rice háskóla í Texas.

Boðið verður upp á rútuferð frá Menntaskólanum við Sund inn á Kaldadal, en einnig getur fólk mætt á eigin bíl og tekið þátt í göngunni. Lagt verður af stað frá Reykjavík kl. 9.00.

Sjá nánar á viðburð á Facebook

Einnig er hægt að lesa um viðburðina á eftir farandi síðu Rice háskóla:

Rice researchers behind world's first glacier memorial to unveil first Global Glacier Casualty List and Glacier Graveyard Aug. 17 | Rice News | News and Media Relations | Rice University

Leifar af Okjökli 21. ágúst 2014. Hann er ekki lengur kúptur heldur aðeins slitróttur ísfláki. (Ljósmynd: Veðurstofa Íslands/Oddur Sigurðsson)

Alþjóðajöklaárið 2025: Jöklar á hverfanda hveli

Alþjóðajöklaárið 2025 verður notað til þess að beina athygli almennings og fjölmiðla að rýrnun jökla og efla vöktun og rannsóknir á jöklabreytingum. Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna eru hvött til þess að skiptast á gögnum, þekkingu og aðferðum til þess að sporna við rýrnun jökla og skipuleggja aðlögun að þeim breytingum sem hörfun þeirra veldur.

Hugmyndin að baki ári jöklanna 2025 kom frá Tadsíkistan og hefur verið útfærð á vegum Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO), Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO), Alþjóðlegu jöklabreytingasamtakanna (WGMS) og fleiri alþjóðastofnana.

Efnt verður til margvíslegra viðburða á næsta ári á alþjóðavettvangi í tilefni af ári jöklanna og einnig hér á landi.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica