Veðurhorfur um verslunarmannahelgina
Horfur eftir landshlutum og ráð til ferðafólks um verslunarmannahelgina
Útlit er fyrir nokkuð misskipt veður um verslunarmannahelgina. Bjartast og hlýjast á Suður- og Vesturlandi og á Vestfjörðum, þar sem útlit er fyrir bjartviðri og hita að 19 stigum mestalla helgina. Vætusamara og svalara norðan- og austanlands, en þar styttir að mestu upp á laugardag.
Norðlægar og norðvestlægar áttir ríkjandi og fremur stífur vindur á föstudag og laugardag. Búast má við hvössum vindhviðum við fjöll suðaustan- og austantil, einkum austan Öræfa. Ferðafólk er hvatt til að skoða vindaspár fyrir alla ferðaleiðina og haga ferðum sínum eftir veðri og aðstæðum. Þetta á sérstaklega við um þá sem ferðast á húsbílum eða með hjólhýsi, fellihýsi og aðra aftanívagna.
Gott að hafa í huga um helgina
- Skoðið vindaspár fyrir alla ferðaleiðina, ekki aðeins veðrið á áfangastað.
- Hugið sérstaklega að vindhviðum við fjöll sunnan- og austantil á landinu. Hviður geta þar orðið mun sterkari en meðalvindur gefur til kynna.
- Sýnið sérstaka aðgát ef ferðast er á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Þeir sem ferðast á húsbílum eða með hjólhýsi, fellihýsi og aðra aftanívagna gætu þurft að breyta ferðatíma eða gera hlé á ferð sinni ef vindur reynist mikill.
- Festið tjöld og annan búnað vel, sérstaklega á austanverðu landinu og í Vestmannaeyjum.
- Farið varlega með eld. Á Suður- og Vesturlandi er gróður víða þurr. Sýnið sérstaka aðgát við notkun grilla, gastækja, vindlinga og annars sem getur valdið íkveikju.
- Fylgist með nýjustu upplýsingum. Veðurhorfur geta tekið breytingum. Skoðið nýjustu spár og viðvaranir Veðurstofu Íslands fyrir brottför og meðan á ferðalagi stendur.
- Og njótið helgarinnar. Takið bæði með regnföt og sólarvörn og verið viðbúin fjölbreyttu íslensku sumarveðri.
Horfur um verslunarmannahelgina
Fyrir austan land er þaulsetið lægðasvæði. Einnig er hæð yfir Grænlandi og önnur suðaustur af Hvarfi. Norðlægar áttir eru því ráðandi næstu daga.
Á morgun (föstudag) er spáð norðvestanátt 8-18 m/s, hvassast suðaustantil. Súld eða rigning norðaustan- og austanlands. Annars yfirleitt þurrt og bjart, en lítilsháttar rigning á Norðvesturlandi annað kvöld. Hiti 7 til 18 stig að deginum, hlýjast á Suður- og Vesturlandi.
Norðvestan 8-15 m/s á laugardag, hvassast austantil á landinu. Þurrt og bjart á Suður- og Vesturlandi. Súld eða rigning norðan- og austanlands, en dregur úr úrkomu þegar líður á daginn. Hiti breytist lítið.
Norðvestan 5-13 m/s á sunnudag, víða léttskýjað sunnan- og vestanlands, en annars skýjað með köflum og úrkomulítið. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast á Suðurlandi.
Hægari vindur á mánudag, skýjað með köflum og skúrir á stöku stað. Milt í veðri.
Veðurhorfur eftir landshlutum
Suðurland
Norðvestlæg átt, 5-10 m/s, en 8-13 syðst á föstudag og laugardag. Léttskýjað að mestu og hiti 12 til 19 stig að deginum. Hægari vindur á mánudag og líkur á stöku skúrum í uppsveitum.
Vestmannaeyjar
Á Þjóðhátíð má búast við norðan- og norðvestanátt, 8 til 13 m/s, á föstudag og laugardag, en síðan hægari vindur. Léttskýjað að mestu og hiti 10 til 15 stig. Vindur getur verið meiri í hviðum og því er mikilvægt að festa tjöld, fortjöld og annan búnað vel.
Vesturland
Norðlæg átt, 5-10 m/s og bjart að mestu, en hægari á mánudag og líkur á stöku skúrum í uppsveitum síðdegis. Hiti 12 til 19 stig yfir daginn.
Vestfirðir
Norðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Yfirleitt léttskýjað og hiti 10 til 17 stig að deginum. Hægari vindur á mánudag og skýjað með köflum.
Norðurland
Norðlæg átt, yfirleitt 5-10 m/s og dálítil væta, einkum austantil. Styttir upp á laugardag. Heldur hægari vindur á sunnudag og mánudag, skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 7 til 13 stig að deginum.
Austurland
Norðvestlæg átt 5-10, en 8-15 m/s úti við sjóinn. Vætusamt og fremur svalt, en styttir smám saman upp á laugardag. Hægari vindur, skýjað með köflum og úrkomulítið á sunnudag og mánudag og hlýnar heldur.
Miðhálendið
Á hálendinu og til fjalla er vindur oft meiri og hiti lægri en á láglendi. Þar má einnig oft búast við þokulofti, einkum að næturlagi. Norðvestlæg átt 8-15 m/s á föstudag og laugardag og má búast við hvössum vindhviðum staðbundið við fjöll. Súld eða rigning með köflum austantil, en lengst af þurrt vestantil. Hægari vindur og þurrt og bjart að mestu á sunnudag, en fremur hæg breytileg átt, skýjað með köflum og sums staðar skúrir á mánudag. Hiti 5 til 13 stig að deginum.
Gagnlegir hlekkir fyrir ferðalagið
- Veðurspár Veðurstofu Íslands fyrir einstaka landshluta og áfangastaði.
- Viðvaranir Veðurstofu Íslands vegna veðurs.
- Umferðin fyrir upplýsingar um færð, lokanir, vind og aðstæður á vegum.
- SafeTravel fyrir ferðaviðvaranir og öryggisupplýsingar.
- Upplýsingar Almannavarna um eldhættu og meðferð elds þar sem gróður er þurr.
Í neyð skal hringja í 112.





