Fréttir
Myndin sýnir hitaspá um miðnætti á gamlárskvöld. Frost yfirleitt 8 til 18 stig, og enn kaldara inn til landsins og upp til fjalla.

Áramót með vetrarbrag - kalt og víða lítill vindur

30.12.2024

  • Hægur vindur og líkur á slæmum loftgæðum víða um land á gamlárskvöld
  • Víða léttskýjað um kvöldið, en dálítil él norðaustanlands
  • Snjókoma og skafrenningur sunnanlands að morgni gamlársdags
  • Bjart að mestu á nýársdag
  • Kalt í veðri, 5 til 18 stiga frost á landinu

Veður um áramótin 2024-2025 verður kalt og yfirleitt rólegt. Snemma á gamlársdag verður norðaustanátt sunnanlands með snjókomu og skafrenningi, en léttir til og lægir þegar líður á daginn. Á gamlárskvöld verður hægur vindur og léttskýjað sunnan- og vestanlands, en dálítil él norðaustanlands. Þar sem vindur verður hægur geta loftgæði orðið slæm, sérstaklega á þéttbýlum svæðum. Á nýársdag verður bjart að mestu með stöku éljum norðaustantil. Frost verður 5 til 18 stig, kaldast inn til landsins.

Nánari veðurspá


Gamlársdagur: Ákveðin norðaustanátt sunnanlands snemma um morguninn og snjókoma með köflum og skafrenningur, en lægir smám saman og léttir þegar líður á daginn. Hægari vindur og lítils háttar él á Norður- og Austurlandi. Talsvert frost.

Gamlárskvöld: Fremur hægur vindur og léttskýjað sunnan- og vestanlands, en áfram dálítil él um landið norðaustanvert. Þó mun eitthvað blása suðaustantil á landinu.

Þar sem vindur verður mjög hægur, t.d. á höfuðborgarsvæðinu og einnig víða á þéttbýlum stöðum á Suður-, Vestur- og Norðurlandi, eru því líkur á að loftgæði verði slæm um kvöldið og fram á nótt.

Nýársdagur: Norðvestlæg eða breytileg átt 5-13 m/s og bjart að mestu, en stöku él norðaustantil. Frost 4 til 18 stig, kaldast inn til landsins. Vestlægari vestanlands undir kvöld og þykknar upp með dálitlum éljum.

Aramot_vedur2024

Myndin sýnir hitaspá um miðnætti á gamlárskvöld. Frost yfirleitt 8 til 18 stig, og enn kaldara inn til landsins og upp til fjalla.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica