Tíðarfar í september 2026
Stutt yfirlit
Hiti í september var rétt yfir meðallagi áranna 1991 til
2020. Loftþrýstingur var óvenjulágur. Meðalloftþrýstingur hefur aðeins einu
sinni mælst lægri í septembermánuði í Reykjavík frá upphafi mælinga. Úrkoma var
yfir meðallagi í flestum landshlutum, nema á suðvesturhorninu. Seinni hluti
mánaðarins var mjög úrkomusamur, þá sérstaklega á Vestfjörðum, Austfjörðum, Suður-
og Suðausturlandi. Eitthvað var um skriðuföll og grjóthrun í þessum landshlutum.
Hiti
Meðalhiti í Reykjavík mældist 8,6 stig í september sem er 0,1 stigi yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri var meðalhitinn í september einnig 8,6 stig sem er 0,6 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Í Stykkishólmi var meðalhiti mánaðarins 8,4 stig og 9,1 stig á Höfn í Hornafirði. Meðalhiti á landsvísu var 8,0 stig sem er 0,3 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020.
Meðalhita og vik frá fleiri stöðum má sjá í töflu 1.
Tafla 1: Meðalhiti og vik (°C) í september 2026.
| stöð | meðalhiti (°C) | vik m.v. 1991 til 2020 (°C) | röð | af | vik m.v. 2016 til 2025 (°C) |
| Reykjavík | 8,6 | 0,1 | 46 | 156 | 0,1 |
| Stykkishólmur | 8,4 | 0,3 | 37 | 181 | 0,3 |
| Bolungarvík | 7,4 | 0,1 | 50 | 130 | 0,1 |
| Grímsey | 7,3 | 0,4 | 33 | 153 | 0,2 |
| Akureyri | 8,6 | 0,6 | 30 | 146 | 0,6 |
| Egilsstaðir | 8,0 | 0,2 | 22 | 72 | -0,1 |
| Dalatangi | 8,5 | 0,5 | 18 | 89 | 0,2 |
| Teigarhorn | 8,6 | 0,4 | 26 til 27 | 154 | 0,3 |
| Höfn í Hornaf. | 9,1 | 0,3 | |||
| Stórhöfði | 9,0 | 0,6 | 24 | 150 | 0,5 |
| Hveravellir | 4,3 | 0,4 | 18 | 62 | 0,5 |
| Árnes | 8,3 | 0,3 | 41 | 147 | 0,4 |
Hiti var rétt yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 og síðustu tíu ára um allt land nema á fáeinum stöðum á Norðausturlandi þar sem mánaðarmeðalhitinn var lítillega undir meðallagi (sjá mynd 1). Jákvætt hitavik var mest 1,0 stig á Staðarhóli en neikvætt hitavik var mest -0,3 stig á Seyðisfirði.

Mynd 1: Hitavik (°C) sjálfvirkra stöðva í september miðað við síðustu tíu ár (2016 til 2025).
Meðalhiti mánaðarins var hæstur 10,2 stig á Steinum undir Eyjafjöllum. Lægstur var meðalhitinn 2,2 stig á Þverfjalli. Í byggð var meðalhitinn lægstur 5,6 stig í Möðrudal.
Hæsti hiti mánaðarins mældist 22,5 stig í Bakkagerði á Borgarfirði eystra þ. 8. Mest frost í mánuðinum mældist -5,6 stig á Brú í Jökuldal þ. 2.
Á mynd 2 má sjá landsmeðalhita hvers dags það sem af er ári 2026, sem vik frá meðalhita síðustu tíu ára. Að tiltölu var kaldara fyrri part mánaðar þegar hiti var undir meðallagi flesta daga, á meðan seinni hluti mánaðarins var hlýrri og hiti var þá að mestu yfir meðallagi.

Mynd 2: Landsmeðalhiti hvers dags það sem af er ári 2026, miðað við meðallandsmeðalhita hvers dags síðustu tíu ár (2016 til 2025).
Úrkoma
Meðalúrkoma mánaðarins mældist yfir meðallagi í flestum landshlutum nema á suðvesturhorninu. Seinni hluti mánaðarins var úrkomusamur, og þá sérstaklega síðasta vikan. Mjög úrkomusamt var t.a.m. á Vestfjörðum, Austfjörðum, Suðausturlandi, Suðurlandi og á Miðhálendinu. Eitthvað var um skriðuföll og grjóthrun í þessum landshlutum.
Í Reykjavík mældist mánaðarúrkoman 65,3 mm sem er 75% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Í Stykkishólmi mældust 99,7 mm sem er 28% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist heildarúrkoma mánaðarins 56,5 sem er 6% umfram meðalúrkomu. Á Dalatanga mældist mánaðarúrkoman 281,6 mm sem er 68% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020.
Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meira voru 16 í Reykjavík, eða einum fleiri en að meðaltali árin 1991 til 2020. Í Stykkishólmi voru slíkir dagar 17 talsins, sem er 5 fleiri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri 13 daga sem er fjórum fleiri en í meðalári. Á Dalatanga voru úrkomudagarnir 19 sem eru sex fleiri en að meðaltali árin 1991 til 2020.
Sólskinsstundafjöldi
Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 123,9 sem er 5,6 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 94,3 sem er 3,8 stundum yfir meðallagi.
Vindur
Vindur á landsvísu var 0,3 m/s undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Hvassast var þ. 21. (A-átt) og þ. 24. (A-átt).
Loftþrýstingur
Loftþrýstingur var óvenju lágur í september. Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist 995,5 hPa sem er 9,5 hPa undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Aðeins einu sinni hefur meðalloftþrýstingur septembermánaðar mælst lægri en nú, en það var í september 2011 þegar hann mældist örlítið lægri eða 995,0 hPa. Loftþrýstingur hefur verið mældur frá árinu 1820 eða í rúm 200 ár.
Hæstur mældist loftþrýstingurinn 1017,4 hPa í Húsavík þ. 15. Lægsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 961,3 hPa í Surtsey þ. 24.
Fyrstu níu mánuðir ársins
Meðalhiti í Reykjavík fyrstu níu mánuði ársins mældist 5,8 stig sem er 0,2 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020, en 0,4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhiti mánaðanna níu raðast í 46. hlýjasta sæti á lista 156 ára. Á Akureyri mældist meðalhitinn 5,4 stig sem er 0,2 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 en 0,2 stigum undir meðallagi síðustu ára. Þar raðast hitinn í 29.hlýjasta sæti á lista 146 ára.
Heildarúrkoma fyrstu níu mánuði ársins mældist 625,4 mm í Reykjavík sem er rétt yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist heildarúrkoma janúar til september 360,5 mm sem er í meðallagi.
Sumarið (júní til september)
Meðalhiti sumarsins í Reykjavík var 10,2 stig sem er 0,1 stigi undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Meðalhiti sumarmánaðanna fjögurra er í 41. til 42. hlýjasta sæti á lista 156 ára. Meðalhiti sumarsins var 9,7 stig í Stykkishólmi sem er 0,1 stigi yfir meðallagi. Þar raðast sumarhitinn í 29. til 30. hlýjasta sæti á lista 181 ára. Á Akureyri var meðalhitinn 10,4 stig sem er 0,5 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Meðalhiti sumarsins þar raðast í 19. hlýjasta sæti á lista 146 ára. Á Dalatanga var meðalhiti sumarmánaðanna fjögurra 9,1 stig sem er 1,0 stigi yfir meðallagi. Þar er sumarið það 3. hlýjasta á lista 87 ára (sumarið 2021 var hlýrra og sumarið 2014 var álíka hlýtt og nú).
Úrkoma í Reykjavík mældist 311,5 mm sem er um 30% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Í Stykkishólmi mældist heildarúrkoma sumarsins 290,1 sem er 50% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist úrkoma sumarmánaðanna fjögurra 158,3 mm sem er 5% umfram meðallag. Á Dalatanga mældist sumarúrkoman 557,8 mm sem er 10% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Júlí var óvenjuþurr bæði á Akureyri og á Dalatanga.
Fjöldi úrkomudaga í sumar var yfir meðallagi á öllum þessum 4 fjórum stöðum. Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri voru 52 í Reykjavík, eða 7 fleiri en í meðalári. Á Akureyri voru slíkir dagar 37 sem er 9 fleiri en í meðalári. Í Stykkishólmi voru slíkir dagar 48 (12 fleiri en í meðalári) og 46 á Dalatanga (3 fleiri en í meðalári).
Sólskinsstundir mældust 663,8 í Reykjavík sem er 8 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældust sólskinsstundir sumarsins 659,2 sem er 88 stundum yfir meðallagi.
Skjöl fyrir september
Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í september 2026 (textaskjal).
Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.



