Fréttir
September var úrkomusamur. En úrkomu fylgir oft mikið sjónarspil eins og Njáll Fannar Reynisson starfsmaður Veðurstofunnar var vitni að í vinnuferð um Suðurland í september.

Tíðarfar í september 2020

Stutt yfirlit

2.10.2020


September var fremur svalur og hiti undir meðallagi síðustu tíu ára á landinu öllu. Úrkoma var í meira lagi og fyrsti snjór vetrarins féll víða norðanlands.

Hiti

Meðalhiti í Reykjavík í september var 7,4 stig og er það jafnt meðallagi áranna 1961 til 1990, en -1,4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn 6,9 stig, 0,6 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990, en -1,4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var meðalhitinn 6,9 stig og 7,9 stig á Höfn í Hornafirði.

Meðalhita og vik á fleiri stöðvum má sjá í töflu.

stöð meðalhiti °C vik 1961-1990 °C röð af vik 2010-2019 °C
Reykjavík 7,4 0,0 93 til 94 150 -1,4
Stykkishólmur 6,9 0,2 107 175 -1,5
Bolungarvík 5,7 -0,4 95 123 -2,0
Grímsey 5,9 0,6 74 147 -1,5
Akureyri 6,9 0,6 76 140 -1,4
Egilsstaðir 6,6 0,5 40 66 -1,6
Dalatangi 7,9 1,2 30 83 -0,5
Teigarhorn 7,7 0,8 59 148 -0,8
Höfn í Hornaf. 7,9


-0,9
Stórhöfði 7,7 0,4 70 144 -0,9
Hveravellir 2,3 -0,1 38 til 39 56 -1,8
Árnes 6,7 -0,2 94 141 -1,4

Meðalhiti og vik (°C) í september 2020

September var fremur svalur og hiti undir meðallagi síðustu tíu ára á landinu öllu. Að tiltölu var kaldast á Vestfjörðum en hlýjast á annesjum austanlands. Neikvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var mest -2,3 stig á Þverfjalli en minnst -0,3 stig í Seley.


Hitavik sjálfvirkra stöðva í september miðað við síðustu tíu ár (2010–2019).

Meðalhiti mánaðarins var hæstur í Surtsey 8,7 stig. Lægstur var hann á Þverfjalli 0,1 stig. Í byggð var meðalhitinn lægstur í Möðrudal 3,9 stig.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 18,5 stig á Skjaldþingsstöðum þ. 6. Mest frost í mánuðinum mældist -9,8 stig í Veiðivatnahrauni þ. 25. Mest frost í byggð mældist -9,5 stig stig á Þingvöllum þ. 25.

Úrkoma

September var úrkomusamur og mældist úrkoman vel yfir meðallagi á flestum stöðum.

Úrkoma í Reykjavík mældist 105,1 mm sem er um 60% umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældist úrkoman 61,6 mm sem er um 55% umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 85,2 mm og 195,2 mm á Höfn í Hornafirði.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri í Reykjavík voru 19, sjö fleiri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri 10 daga sem er tveimur fleiri en í meðalári.

Sólskinsstundafjöldi

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 110,1 sem er 14,7 stundum undir meðallagi áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 87,7, sem er 2,3 stundum fleiri en að meðaltali 1961 til 1990.

Vindur

Vindur á landsvísu var 0,6 m/s yfir meðallagi. Hvassast var dagana 3. til 4. (norðanátt) og þ. 19 (suðvestanátt).

Loftþrýstingur

Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist 1001,3 hPa og er það -4,2 hPa undir meðallagi áranna 1961 til 1990. Hæsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 1025,9 hPa á Teigarhorni þ. 16. Lægstur mældist loftþrýstingurinn 974,7 hPa á Raufarhöfn þ. 20.

Sumarið (júní til september)

Meðalhiti í Reykjavík var 9,9 stig sem er 0,6 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990, en -0,6 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhiti sumarsins er í 54. til 55. sæti á lista 150 ára. Á Akureyri var meðalhitinn 10,0 stig, 1,0 stigi yfir meðallagi áranna 1961 til 1990 en jafnt meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn þar raðast í 31. sæti á lista 140 ára.

Úrkoma í Reykjavík mældist 292,4 mm sem er 27% umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældist úrkoman 160,9 mm sem er 20% umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri voru 10 fleiri en í meðalári í Reykjavík en 3 fleiri en í meðalári á Akureyri.

Sólskinsstundir mældust 636,5 í Reykjavík, 24 fleiri en að meðaltali 1961 til 1990 en 46 stundum færri en að meðaltali síðustu tíu ár. Sumarið var sólríkt á Akureyri mældust sólskinsstundirnar í sumar 674,2 og er það 118 stundum fleiri en að meðaltali 1961 til 1990 og 117 stundum fleiri en að meðaltali síðustu tíu ára.

Fyrstu níu mánuðir ársins

Meðalhiti í Reykjavík fyrstu níu mánuði ársins var 5,7 stig sem er 0,6 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990 en -0,6 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn raðast í 42. til 43. sæti á lista 150 ára. Á Akureyri var meðalhiti mánaðanna níu 5,3 stig. Það er 1,1 stigi ofan meðallags áranna 1961 til 1990 en -0,3 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn þar raðast í 25. til 26. sæti á lista 140 ára. Úrkoman hefur verið 23% umfram meðallag í Reykjavík, en 29% umfram meðallag á Akureyri.

Skjöl fyrir september

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í september 2020 (textaskjal).

Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur ákveðnum veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.







Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica