Fréttir
Esjan með hvítan koll um miðjan nóvember.

Tíðarfar í nóvember 2020

Stutt yfirlit

2.12.2020


Tíð var nokkuð hagstæð í nóvember og samgöngur greiðar. Að tiltölu var hlýjast austanlands en að tiltölu kaldast sunnan- og vestanlands. Mjög kalt var á landinu dagana 18. til 19. Óveðrasamt var á landinu dagana 4. og 5. og aftur dagana 26. og 27.

Hiti

Meðalhiti í Reykjavík í nóvember var 1,9 stig og er það 0,7 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990, en -0,7 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn 1,0 stig, 1,4 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990, en 0,3 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var meðalhitinn 2,2 stig og 3,5 stig á Höfn í Hornafirði.

Meðalhita og vik á fleiri stöðvum má sjá í töflu.

stöð meðalhiti °C vik 1961-1990 °C röð af vik 2010-2019 °C
Reykjavík 1,9 0,7 64 150 -0,7
Stykkishólmur 2,1 1,2 48 175 0,0
Bolungarvík 1,4 0,6 48 123 -0,4
Grímsey 2,2 1,6 29 til 30 148 -0,2
Akureyri 1,0 1,4 42 140 0,3
Egilsstaðir 1,8 2,5 13 66 1,0
Dalatangi 4,3 2,5 12 83 0,9
Teigarhorn 3,6 2,3 20 148 0,7
Höfn í Hornaf. 3,5


0,7
Stórhöfði 3,6 1,2 40 144 -0,2
Hveravellir -3,6 1,2 23 56 -0,3
Árnes 0,3 0,6 67 141 -0,6

Meðalhiti og vik (°C) í nóvember 2020

Að tiltölu var hlýjast á Austurlandi en að tiltölu kaldast á suður- og vesturhluta landsins. Jákvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var mest 1,1 stig á Fáskrúðsfirði. Neikvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var mest -1,2 stig á Hvammi undir Eyjafjöllum.



Hitavik sjálfvirkra stöðva í nóvember miðað við síðustu tíu ár (2010–2019).

Meðalhiti mánaðarins var hæstur í Surtsey, 4,7 stig en lægstur -5,0 stig í Sandbúðum. Í byggð var meðalhitinn lægstur í Svartárkoti, -2,5 stig.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 20,4 stig á stöð Vegagerðarinnar á Kvískerjum þ. 4. Mest frost í mánuðinum mældist -21,3 stig á Grímsstöðum í Fjöllum þ. 18.

Úrkoma

Úrkoma í Reykjavík mældist 80,5 mm sem er 10% umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældist úrkoman 53,6 mm sem er rétt undir meðallagi áranna 1961 til 1990. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 56,8 mm og 134,4 mm á Höfn í Hornafirði.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri í Reykjavík voru 16, þrír fleiri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri 11 daga, jafnmargir og í meðalári.

Snjór

Alhvítt var einn morgunn í Reykjavík, 6 færri en að meðaltali 1971 til 2000. Á Akureyri voru alhvítir dagar 6, níu færri en í meðalári.

Sólskinsstundafjöldi

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 42,0 sem er 3,4 stundum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældust sólsinsstundirnar 15,6, sem er 1,3 stundum fleiri en í meðalári.

Vindur

Vindur á landsvísu var 0,3 m/s yfir meðallagi. Hvassast var á landinu dagana 4. og 5. (suðvestanátt) og dagana 26. og 27. nóvember (suðvestanátt).

Loftþrýstingur

Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist 997,9 hPa og er það -6,2 hPa undir meðallagi áranna 1961 til 1990. Hæsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 1025,1 hPa í Reykjavík-Víðidal þ.18. Lægstur mældist loftþrýstingurinn 959,6 hPa á Dalatanga þ. 20.

Fyrstu ellefu mánuðir ársins

Meðalhiti í Reykjavík fyrstu ellefu mánuði ársins var 5,4 stig sem er 0,7 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990 en -0,5 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn raðast í 40. sæti á lista 150 ára. Á Akureyri var meðalhiti mánaðanna ellefu 4,8 stig. Það er 1,1 stigi ofan meðallags áranna 1961 til 1990 en -0,2 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn þar raðast í 22. til 24. sæti sæti á lista 140 ára. Úrkoman hefur verið 13% umfram meðallag í Reykjavík, en 26% umfram meðallag á Akureyri.

Haustið (október og nóvember)

Meðalhiti haustsins í Reykjavík var 3,8 stig. Það er 1,1 stigi ofan meðalags áranna 1961 til 1990, en -0,1 stigi undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn raðast í 38.sæti á lista 150 ára. Á Akureyri var meðalhiti haustsins 2,6 stig, 1,3 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990, en 0,2 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhiti haustsins á Akureyri raðast í 30. til 32. sæti á lista 140 ára.

Samanlögð úrkoma október og nóvembermánaða í Reykjavík mældist 122,6 mm sem er um 80% af meðalhaustúrkomu áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældist úrkoma haustsins 131,2 mm sem eru um 20% umfram meðallag áranna 1961 til 1990.

Skjöl fyrir nóvember

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í nóvember 2020 (textaskjal).

Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur ákveðnumveðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.











Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica