Fréttir

Tíðarfar í janúar 2026

Stutt yfirlit

5.2.2026


Tíðarfar í janúar var óvenjulega gott. Það var hægviðrasamt, bjart, óvenjuþurrt og snjór var með minnsta móti bæði á láglendi og til fjalla. Sérlega þurrt og snjólétt var á sunnan- og vestanverðu landinu og þar var mánuðurinn á meðal þurrustu janúarmánaða frá upphafi mælinga. Hitafar mánaðarins var tvískipt, fyrri hlutinn var kaldur en seinni hlutinn hlýr.

Hiti

Meðalhiti janúarmánaðar mældist 0,8 stig í Reykjavík. Það er 0,1 stigi yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 og 0,7 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri mældist meðalhiti mánaðarins -1,2 stig, eða 0,7 stigum undir meðallagi janúarmánaða 1991 til 2020 en 0,1 stigi yfir meðallagi undanfarins áratugar. Í Stykkishólmi var meðalhitinn 0,3 stig og á Höfn í Hornafirði mældist hann 1,6 stig. Meðalhita og vik frá fleiri stöðvum má sjá í eftirfarandi töflu.

Tafla 1: Meðalhiti og vik (°C) í janúar 2026.

stöð meðalhiti (°C) vik m.v. 1991 til 2020 (°C) röð af vik m.v. 2016 til 2025 (°C)
Reykjavík 0,8 0,1 40 156 0,7
Stykkishólmur 0,3 0,1 42 til 45 181 0,6
Bolungarvík 0,9 1,0 22 129 1,4
Grímsey 0,9 0,4 29 153 0,8
Akureyri -1,2 -0,7 60 145 0,1
Egilsstaðir -0,9 0,0 26 72 0,6
Dalatangi 1,7 0,1 33 88 0,4
Teigarhorn 1,4 0,4 41 154 0,8
Höfn í Hornaf. 1,6


1,0
Stórhöfði 2,7 0,4 32 149 0,8
Hveravellir -5,9 -0,9 32 61 0,0
Árnes -0,5 0,5 48 147 1,1

Janúar var tiltölulega hlýr um mestallt land. Þó var janúar kaldari en undanfarinn áratug sums staðar á Norðurlandi. Að tiltölu var kaldast á Norðurlandi vestra en hlýjast á Vestfjörðum. Jákvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár mældist mest 1,6 stig á Lambavatni. Neikvætt hitavik var mest -1,6 stig á Sauðárkróksflugvelli.


Mynd 1: Hitavik (°C) sjálfvirkra stöðva í janúar miðað við síðustu tíu ár (2016 til 2025).

Meðalhiti mánaðarins var hæstur 3,9 stig á Steinum undir Eyjafjöllum. Lægstur mældist meðalhitinn -6,7 stig á Sátu. Lægsti meðalhiti í byggð mældist -4,5 stig í Svartárkoti.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 12,2 stig undir Hafnarfjalli þ. 22. og hitinn mældist lægstur -20,4 stig á Löngumýri í Skagafirði þ. 15.

Yfirlit yfir landsmeðalhita hvers dags janúarmánaðar miðað við síðustu tíu ár má sjá á mynd 2. Þar sést að mánuðurinn var tvískiptur hvað hitastig varðar. Á landsvísu var hitinn undir meðallagi undanfarins áratugar fyrri hluta mánaðar en yfir því síðari hluta mánaðarins, að einum degi í hvorum hluta mánaðar undanskildum. Þá daga var hitinn þó nærri meðallagi.


Mynd 2: Landsmeðalhiti hvers dags það sem af er ári 2026, miðað við meðallandsmeðalhita hvers dags síðustu tíu ár (2016 til 2025).

Úrkoma

Janúar var óvenjulega þurr, þá sérstaklega á vestanverðu landinu. Þar var mánuðurinn á meðal þurrustu janúarmánaða frá upphafi mælinga á meðan úrkoma var nær meðallagi allra austast á landinu. Á nokkrum veðurstöðvum á Vestur- og Norðvesturlandi mældist heildarúrkoma mánaðarins einungis nokkrir millimetrar.

Úrkoma í Reykjavík mældist 26,5 mm sem er aðeins 30% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Þar hefur aðeins einu sinni mælst minni úrkoma í janúarmánuði en það var árið 1936 þegar úrkoman mældist einungis 2,4 mm. Álíka lítil úrkoma mældist í Reykjavík í janúar 1977 og nú (27,5 mm). Janúarúrkoman var sérstaklega lítil í Stykkishólmi, eða aðeins 5,5 mm í heildina sem er 7% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Þetta er næstþurrasti janúarmánuður í Stykkishólmi frá upphafi úrkomumælinga þar (mælt frá 1857). Þar var líkt og í Reykjavík þurrara í janúar 1936 þegar úrkoman mældist 3,1 mm. Á Akureyri mældist úrkoman 28,5 mm sem er 47% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020.  Þar hefur janúarúrkoman ekki verið eins lítil síðan 2010 en þá var miklu þurrara. Á Dalatanga mældist úrkoman 145,5 mm sem er um 95% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020.

Fjöldi úrkomudaga var langt undir meðallagi í flestum landshlutum. Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri í Reykjavík voru 4 sem eru 11 færri en í meðalári. Í Stykkishólmi voru slíkir dagar aðeins 2 sem er 12 færri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri 6 daga sem er 5 færri en venjulega. Á Dalatanga voru úrkomudagarnir 19, þremur fleiri en að meðaltali árin 1991 til 2020.

Snjór

Mánuðurinn var mjög snjóléttur, bæði á láglendi og á hálendinu. Lítill snjór var á landinu í upphafi árs eftir hlýindin í lok desember. Úrkomuleysið í janúar gerði það svo að verkum að lítill snjór bættist við, nema þá einna helst á Austurlandi. Þar snjóaði talsvert dagana 11. og 12., sem ásamt hvassviðri olli miklum samgöngutruflunum í þeim landshluta.

Alhvítir dagar í Reykjavík voru 2 í janúar, tíu færri en að meðaltali árin 1991 til 2020. Í Stykkishólmi voru 9 alhvítir dagar, einum færri en í meðalári. Snjódýptin bæði í Reykjavík og Stykkishólmi var á bilinu 0 til 1 cm þá daga sem alhvítt var. Það sama á við um flestar veðurstöðvar á sunnan- og vestanverðu landinu sem mæla snjódýpt. Á Akureyri voru 15 alhvítir dagar, sjö færri en að meðaltali árin 1991 til 2020. Alhvítir dagar voru 17 á Dalatanga, fjórum fleiri en í meðalári.  

Sólskinsstundafjöldi

Mánuðurinn var einkar sólríkur í Reykjavík. Þar mældust 58,4 sólskinsstundir í mánuðinum, sem er 35,9 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Aðeins tvisvar sinnum hafa mælst fleiri sólskinsstundir í janúarmánuði í Reykjavík, árin 1971 og 1977 þegar þær mældust 64,5 og 60,4.

Það var einnig sólríkt á Akureyri í mánuðinum miðað við árstíma. Þar mældust 12,8 sólskinsstundir í janúar, eða 6,8 stundir umfram meðallag.

Vindur

Mánuðurinn var hægviðrasamur um mest allt land. Vindhraði var vel undir meðallagi á öllu landinu nema við suðausturströndina. Austan- og norðaustanáttir voru ríkjandi. Hvassast var þ. 12. (norðanátt).

Loftþrýstingur

Meðalloftþrýstingur mánaðarins var 1004,5 hPa í Reykjavík. Það er 7,1 hPa yfir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Hæstur mældist loftþrýstingurinn 1032,1 hPa á Siglufirði þ. 2. Lægsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 978,2 hPa á Kambanesi þ. 12.

Skjöl fyrir janúar

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðum í janúar 2026 (textaskjal).

Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstakatöflu.






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica