Tíðarfar í janúar 2024
Stutt yfirlit
Janúar var tiltölulega kaldur og hiti var undir meðallagi á mest öllu landinu. Umhleypingasamt veður einkenndi síðasta hluta mánaðarins. Samgöngur riðluðust talsvert vegna hríðarveðurs og einhvað var um rafmagnstruflanir vegna eldinga.Hiti
Meðalhiti í Reykjavík í janúar var -0,1 stig. Það er 0,8 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020 en 0,5 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn -1,5 stig, 1 stigi undir meðallagi áranna 1991 til 2020 en 0,7 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var meðalhiti mánaðarins -0,2 stig og 0,1 stig á Höfn í Hornafirði.
Meðalhita
og vik frá fleiri stöðum má sjá í eftirfarandi töflu.
stöð | meðalhiti °C | vik 1991-2020 °C | röð | af | vik 2014-2023 °C |
Reykjavík | -0,1 | -0,8 | 70 til 71 | 154 | -0,5 |
Stykkishólmur | -0,2 | -0,4 | 66 | 179 | -0,1 |
Bolungarvík | -0,3 | -0,1 | 50 | 127 | 0,1 |
Grímsey | -0,1 | -0,6 | 56 til 57 | 151 | -0,6 |
Akureyri | -1,5 | -1,0 | 70 til 71 | 144 | -0,7 |
Egilsstaðir | -2,5 | -1,5 | 42 | 70 | -1,6 |
Dalatangi | 1,0 | -0,7 | 46 | 86 | -0,8 |
Teigarhorn | -0,2 | -1,2 | 88 til 89 | 152 | -1,3 |
Höfn í Hornaf. | 0,1 | -1,0 | |||
Stórhöfði | 1,9 | -0,4 | 60 til 61 | 147 | -0,1 |
Hveravellir | -6,1 | -1,1 | 33 | 60 | -0,6 |
Árnes | -1,7 | -0,8 | 70 | 145 | -0,5 |
Meðalhiti og vik (°C) í janúar 2024
Janúar var tiltölulega kaldur
og hiti var undir meðallagi á mest öllu landinu. Að tiltölu var
kaldast á Austurlandi en hlýrra á vestari hluta landsins. Jákvætt
hitavik miðað við síðustu tíu ár var mest 0,2 stig á
Skarðsheiði en neikvætt hitavik var mest -1,9 stig á Eskifirði.
Hitavik (°C) sjálfvirkra stöðva í janúar miðað við síðustu tíu ár (2014 til 2023).
Meðalhiti mánaðarins var hæstur í Surtsey, 3,0 stig. Lægstur var meðalhitinn við Sátu norðan Hofsjökuls, -7,2 stig. Í byggð var meðalhitinn lægstur í Möðrudal, -6,2 stig.
Hæsti hiti mánaðarins mældist 14,1 stig á Sauðanesvita þ. 8. Mest frost í mánuðinum mældist -24,9 stig á Sauðárkróksflugvelli.
Úrkoma
Úrkoma í Reykjavík mældist 92,7 mm sem er um 5% umfram meðallag áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist úrkoman 36,4 mm sem er um 60% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Í Stykkishólmi mældist úrkoman í janúar 102,2 mm og 130,6 mm á Höfn í Hornafirði.
Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri í Reykjavík voru 18 sem eru 3 fleiri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoma 1,0 mm eða meiri 11 daga sem eru jafn margir og í meðalári.
Snjór
Það voru 15 alhvítir dagar í Reykjavík í janúar, sem er 3 dögum fleiri en að meðaltali 1991 til 2020. Alhvítir dagar á Akureyri voru 19, þremur færri en að meðaltali 1991 til 2020.
Sólskinsstundafjöldi
Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 15,6, sem er 6,9 stundum undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 5,7 sem er tæpri einni stund undir meðallagi áranna 1991 til 2020.
Vindur
Vindur á landsvísu var 0,3 m/s undir meðallagi. Hvassast var þ. 16. (norðanátt) og þ. 25. (suðvestanátt).
Loftþrýstingur
Meðalloftþrýstingur mánaðarins var 1000,5 hPa hPa í Reykjavík. Það er 3,2 hPa yfir meðallagi áranna 1991 til 2020.
Hæstur mældist loftþrýstingurinn 1041,7 hPa á Fagurhólsmýri þ. 10 og í Skaftafelli þ. 11. Lægsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 957,2 hPa á Ísafirði þ. 25.
Skjöl fyrir janúar
Meðalhiti
á sjálfvirkum veðurstöðvum í janúar 2024 (textaskjal).
Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.