Fréttir

Tíðarfar í desember 2024

Stutt yfirlit

2.1.2025


Desember var tiltölulega kaldur um allt land. Úrkoma var um eða yfir meðallag á sunnan- og vestanverðu landinu, en það var þurrara á Norður- og Austurlandi. Það var hvasst og umhleypingasamt veður yfir jólahátíðina og töluvert var um samgöngutruflanir.

Hiti

Meðalhiti í Reykjavík mældist -0,6 stig. Það er 1,4 stigum undir meðallagi 1991 til 2020 og 1,0 stigi undir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri mældist meðalhitinn -2,3 stig sem er 1,6 stigum undir meðallagi 1991 til 2020 og 0,9 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn mældist -1,1 stig í Stykkishólmi og -0,6 stig á Höfn í Hornafirði.

Meðalhita og vik frá fleiri stöðum má sjá í eftirfarandi töflu.

stöð meðalhiti °C vik 1991-2020 °C röð af vik 2014-2023 °C
Reykjavík -0,6 -1,4 99 154 -1,0
Stykkishólmur -1,1 -1,5 117 til 118 179 -1,1
Bolungarvík -1,4 -1,5 94 127 -1,4
Grímsey -1,1 -1,8 107 151 -1,7
Akureyri -2,3 -1,6 99 144 -0,9
Egilsstaðir -2,6 -1,5 50 70 -1,1
Dalatangi 1,0 -0,8 52 til 54 87 -0,9
Teigarhorn 0,0 -1,0 93 152 -1,0
Höfn í Hornaf. -0,6


-1,5
Stórhöfði 1,3 -1,1 87 147 -0,9
Hveravellir -6,3 -1,2 37 60 -0,6
Árnes -2,4 -1,6 99 145 -1,2

Meðalhiti og vik (°C) í desember 2024.

Desember var kaldur um allt land, en þó ekki eins kaldur eins og undanfarin tvö ár. Meðalhiti desembermánaðar var undir meðallagi síðustu tíu ára á nær öllum veðurstöðvum landsins. Að tiltölu var kaldast á Vestfjörðum, annesjum norðanlands og við suðausturströnd landsins. Það var tiltölulega hlýrra inn til landsins. Neikvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var mest -1,9 stig á Raufarhöfn, en jákvætt hitavik var mest 0,1 stig á Sauðárkróksflugvelli.


Hitavik (°C) sjálfvirkra stöðva í desember miðað við síðustu tíu ár (2014 til 2023).

Meðalhiti mánaðarins var hæstur í Surtsey, 2,5 stig. Lægstur mældist meðalhitinn -7,4 stig í Sandbúðum. Í byggð var meðalhitinn lægstur -6,1 stig í Möðrudal.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 17,6 stig á Siglufirði og Sauðanesvita þ. 8. Það er hæsti hiti sem mælst hefur í desember frá upphafi sjálfvirkra hitamælinga á Siglufirði árið 1995. Mesta frost mánaðarins mældist í Svartárkoti þ. 31., en þá fór hitinn niður í -28,6 stig. Það var jafnframt lægsti hiti mánaðarins í byggð.

Úrkoma

Úrkoma var um eða yfir meðallag á sunnan- og vestanverðu landinu, en það var tiltölulega þurrt á Norður- og Austurlandi. Mikið rigndi á sunnanverðu landinu dagana 8. og 9. Töluverðir vatnavextir voru í Öræfum og undir Eyjafjöllum. Vatn flæddi yfir vegi og bilanir urðu á rafmagnstreng við Vík í Mýrdal vegna vatnavaxtanna.

Úrkoma í Reykjavík mældist 89,3 mm sem er 95% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Það var fremur þurrt á Akureyri í desember og mældist úrkoman 28,4 mm sem er aðeins 40% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Í Stykkishólmi mældist úrkoman í desember 118,4 mm og 111,6 mm á Höfn í Hornafirði.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri í Reykjavík voru 19 sem fimm dögum fleiri en í meðalári.  Á Akureyri mældist úrkoma 1,0 mm eða meiri 7 daga sem er fimm færri en í meðalári.

Snjór

Alhvítir dagar í Reykjavík voru 15 í desember, eða þremur fleiri en að meðaltali árin 1991 til 2020. Á Akureyri voru 19 alhvítir dagar í mánuðinum, einum fleiri en í meðalári.

Sólskinsstundafjöldi

Sólskinsstundir mældust 12,9 í Reykjavík sem er 0,3 stundum yfir meðallagi 1991 til 2020. Á Akureyri var sólarlaust eins og oft í desembermánuði.

Vindur

Vindur á landsvísu var nærri meðallagi. Það var hvasst og umhleypingasamt veður yfir jólahátíðina og töluvert var um samgöngutruflanir. Hvassast var þ. 8 (sunnanátt) og dagana 23.- 27. (suðvestanáttir).

Loftþrýstingur

Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist 1003,1 hPa sem er 3,9 hPa yfir meðallagi desembermánaða 1991 til 2020.

Hæsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 1037,4 hPa á Egilsstaðaflugvelli og Höfn í Hornafirði þ. 8. Lægsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 955,4 hPa í Víðidalnum í Reykjavík þ. 19.

Skjöl fyrir desember

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í desember 2024 (textaskjal).
Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica