Tíðarfar í apríl 2026
Stutt yfirlit
Apríl var hlýr og var hiti yfir meðallagi áranna 1991 til
2020 á landinu öllu. Að tiltölu var hlýjast á Norðausturlandi en kaldara á
suðvesturhorninu. Vetrarveður var þó ríkjandi um páskana í upphafi mánaðar. Þá
var kalt og töluverð snjóþyngsli á landinu. Hvassviðri olli miklum
samgöngutruflunum um land allt á öðrum degi páska. Þá gekk líka mikið
eldingaveður yfir sunnanvert landið sem sló út rafmagni á stóru svæði. Fyrri
hluti mánaðarins var sérlega úrkomusamur, en seinni hlutinn þurrari. Óvenju
sólríkt var á Akureyri og þar hafa sólskinsstundir aldrei mælst fleiri í
aprílmánuði.
Hiti
Meðalhiti í Reykjavík mældist 4,4 stig í apríl. Það er 0,8 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 en 0,1 stigi undir meðallagi undanfarins áratugar. Á Akureyri mældist meðalhitinn 4,9 stig, eða 2,3 stigum yfir meðallagi 1991 til 2020 og 1,3 sigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn mældist 4,3 stig í Stykkishólmi og 5,3 stig á Höfn í Hornafirði. Meðalhita og vik frá fleiri stöðum má sjá í töflu 1.
Tafla 1: Meðalhiti og vik (°C) í apríl 2026.
| stöð | meðalhiti °C | vik m.v. 1991 til 2020 (°C) | röð | af | vik m.v. 2016 til 2025 (°C) |
| Reykjavík | 4,4 | 0,8 | 30 | 156 | -0,1 |
| Stykkishólmur | 4,3 | 1,6 | 8 | 181 | 0,7 |
| Bolungarvík | 3,8 | 2,3 | 5 | 129 | 1,2 |
| Grímsey | 3,8 | 2,7 | 4 | 153 | 1,8 |
| Akureyri | 4,9 | 2,3 | 8 | 145 | 1,3 |
| Egilsstaðir | 4,1 | 2,1 | 9 | 72 | 1,4 |
| Dalatangi | 4,5 | 2,3 | 3 | 88 | 1,9 |
| Teigarhorn | 4,4 | 1,5 | 13 | 154 | 1,2 |
| Höfn í Hornaf. | 5,3 | 1,2 | |||
| Stórhöfði | 5,1 | 1,2 | 18 | 149 | 0,7 |
| Hveravellir | -1,1 | 1,2 | 12 | 61 | 0,4 |
| Árnes | 3,9 | 1,0 | 19 | 146 | 0,2 |
Víðast hvar á landinu var apríl hlýrri en að meðaltali undanfarinn áratug (sjá mynd 1). Að tiltölu var hlýjast á Austur- og Norðausturlandi. Líkt og sjá má í töflu 1 raðast meðalhiti apríl á meðal tíu hlýjustu aprílmánaða frá upphafi mælinga á sumum veðurstöðvum. Á suðvesturhorninu var hitinn yfir meðallagi viðmiðunartímabilsins 1991 til 2020 en nærri meðallagi síðustu tíu ára.
Jákvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var mest 2,2 stig á Gagnheiði og mesta neikvæða hitavikið var 0,4 stig á Hólmsheiði.

Mynd 1: Hitavik (°C) sjálfvirkra stöðva í apríl miðað við síðustu tíu ár (2016 til 2025).
Meðalhiti mánaðarins var hæstur 6,5 stig á Steinum undir Eyjafjöllum, en lægstur -1,8 stig í Sandbúðum. Lægsti meðalhiti í byggð mældist 0,4 stig í Svartárkoti.
Hæsti hiti mánaðarins mældist 19,6 stig á Krossanesbraut á Akureyri þ. 22. Lægstur mældist hitinn -23,1 stig í Svartárkoti þ. 6.
Á mynd 2 má sjá landsmeðalhita hvers dags það sem af er ári 2026, sem vik frá meðalhita síðustu tíu ára. Þar má sjá að tiltölulega kalt var á landinu í upphafi mánaðar en síðan var landsmeðalhitinn yfir meðallagi síðustu tíu ára flesta daga það sem eftir lifði mánaðar.

Mynd 2: Landsmeðalhiti hvers dags það sem af er ári 2026, miðað við meðallandsmeðalhita hvers dags síðustu tíu ár (2016 til 2025).
Úrkoma
Fyrri hluti mánaðarins var sérlega úrkomusamur, en seinni hlutinn heldur þurrari.
Í Reykjavík mældist mánaðarúrkoman 99,6 mm sem er 70% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Úrkoma í Stykkishólmi mældist 61,0 mm sem er 36% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri var fyrri helmingur aprílmánaðar mjög úrkomusamur, en seinni hlutinn alveg þurr. Þar mældist heildarúrkoma mánaðarins 54,6 mm sem er meira en tvöföld meðalúrkoma áranna 1991 til 2020. Svo mikil á aprílúrkoma hefur ekki mælst á Akureyri síðan 1989. Á Dalatanga mældust 166,0 mm sem er 50% umfram meðallag áranna 1991 til 2020.
Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri voru 14 í Reykjavík, eða þremur fleiri en í meðalári. Í Stykkishólmi voru slíkir dagar 13 sem er fjórum fleiri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri 8 daga sem er tveimur fleiri en venjulega. Á Dalatanga voru úrkomudagarnir 12, sem eru jafnmargir og að meðaltali árin 1991 til 2020.
Snjór
Talsverður snjór var á landinu í apríl og það var alhvítt víðast hvar á láglendi fyrstu daga mánaðarins. Fannfergi og hvassviðri ollu töluverðum samgöngutruflunum yfir páskahátíðina í upphafi mánaðar.
Óvenjumikill snjór var í höfuðborginni, miðað við árstíma. Í Reykjavík voru skráðir 6 alhvítir dagar í apríl, fjórum fleiri en að meðaltali árin 1991 til 2020. Alhvítir dagar hafa ekki verið eins margir í Reykjavík í apríl síðan 1994. Í Stykkishólmi voru 2 alhvítir dagar, einum fleiri en í meðalári. Á Akureyri voru 7 alhvítir dagar í apríl, tveimur fleiri en að meðaltali árin 1991 til 2020. Alhvítir dagar voru 6 á Dalatanga, fjórum færri en í meðalári.
Sólskinsstundafjöldi
Í Reykjavík mældust 149,6 sólskinsstundir í apríl. Það er 15,9 stundum undir meðallagi aprílmánaða árin 1991 til 2020. Á Akureyri mældust 197,8 stundir, eða 70,3 sólskinsstundir umfram meðallag. Frá upphafi mælinga hafa aldrei mælst eins margar sólskinsstundir á Akureyri í apríl.
Vindur
Vindur á landsvísu var 0,3 m/s undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Hvassast var þ. 6. (austanátt) og 7. (sunnanátt). Einnig var hvasst á landinu 2. (suðaustanátt) og 27. til 29. (suðlægar áttir) daga mánaðarins.
Hvassviðrið sem gekk yfir landið þ. 6 og 7. olli miklum samgöngutruflunum á landinu öllu og settu páskaferðaáætlanir margra í uppnám. Á sunnanverðu landinu fylgdi veðurofsanum eldingaveður sem olli því að rafmagni sló út á stóru svæði.
Loftþrýstingur
Meðalloftþrýstingur var undir meðallagi um allt land í apríl. Í Reykjavík mældist meðalloftþrýstingur mánaðarins 1007,4 hPa, eða 1,9 hPa undir meðallagi áranna 1991 til 2020.
Hæsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 1042,2 hPa í Víðidal í Reykjavík þ. 21., en lægstur mældist loftþrýstingurinn 974,5 hPa á Gufuskálum þ. 9.
Fyrstu fjórir mánuðir ársins
Meðalhiti í Reykjavík fyrstu fjóra mánuði ársins mældist 1,1 stig sem er 0,4 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Í Reykjavík raðast meðalhitinn það sem af er ári í 54. til 55. hlýjasta sæti á lista 156 ára. Á Akureyri mældist meðalhitinn 0,2 stig sem er 0,1 stigi undir meðallagi 1991 til 2020. Þar raðast meðalhiti janúar til apríl í 39. hlýjasta sæti á lista 146 ára.
Janúar og febrúar voru þurrir en mars og apríl aftur á móti úrkomusamir bæði í Reykjavík og á Akureyri. Heildarúrkoma fyrstu fjögurra mánaða ársins mældist 285,7 mm í Reykjavík, sem er um 90% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist heildarúrkoma mánaðanna fjögurra 182,7 mm sem er nærri meðallagi áranna 1991 til 2020.
Skjöl fyrir apríl
Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í apríl 2026 (textaskjal).



