Tíðarfar í apríl 2024
Stutt yfirlit
Apríl var kaldur um allt land, einkum á Norður- og Austurlandi. Óvenjuþurrt var í mánuðinum víða um land að undanskildu norðausturhorni landsins. Þar var tiltölulega snjóþungt fram eftir mánuði og töluvert um samgöngutruflanir. Mjög sólríkt var í Reykjavík.
Hiti
Apríl var kaldur um allt land. Meðalhiti mánaðarins í Reykjavík var 3,1 stig. Það er hálfu stigi undir meðallagi áranna 1991 til 2020 og 1,3 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn 0,8 stig sem er 1,8 stigum undir meðallagi tímabilsins 1991 til 2020 og 2,9 stigum undir meðallagi undanfarins áratugar.
Meðalhita og vik frá fleiri stöðum má sjá í eftirfarandi töflu
stöð | meðalhiti °C | vik 1991-2020 °C | röð | af | vik 2013-2022 °C |
Reykjavík | 3,1 | -0,5 | 73 | 154 | -1,3 |
Stykkishólmur | 1,7 | -1,0 | 87 | 179 | -1,8 |
Bolungarvík | 1,0 | -0,6 | 63 | 127 | -1,6 |
Grímsey | 0,3 | -0,8 | 67 til 69 | 151 | -1,7 |
Akureyri | 0,8 | -1,8 | 91 | 144 | -2,9 |
Egilsstaðir | 0,1 | -1,8 | 54 | 70 | -2,8 |
Dalatangi | 1,3 | -0,8 | 51 til 52 | 86 | -1,5 |
Teigarhorn | 2,0 | -0,9 | 81 | 152 | -1,4 |
Höfn í Hornaf. | 2,8 | -1,5 | |||
Stórhöfði | 3,7 | -0,2 | 70 til 71 | 147 | -0,6 |
Hveravellir | -4,1 | -1,8 | 48 | 60 | -2,7 |
Árnes | 2,2 | -0,8 | 76 | 145 | -1,4 |
Meðalhiti og vik (°C) í apríl 2024
Meðalhiti mánaðarins var undir meðallagi aprílmánaðar síðustu tíu ára um allt land. Einkum var kalt inn til landsins á Norðaustur- og Austurlandi en að tiltölu var hlýrra við suðurströndina. Víða á Austurlandi var meðalhitinn í apríl lægri en meðalhiti marsmánaðar. Neikvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var minnst -0,5 stig á Steinum undir Eyjafjöllum. Mest var neikvæða hitavikið -3,5 stig í Svartárkoti.
Hitavik (°C) sjálfvirkra stöðva í apríl miðað við síðustu tíu ár (2014 til 2023)
Meðalhiti mánaðarins var hæstur 4,7 stig í Surtsey og lægstur -5,1 stig á Gagnheiði. Í byggð var meðalhitinn lægstur -3,6 stig í Svartárkoti.
Hæsti hiti mánaðarins mældist 16,5 stig í Kröflu þ. 23. Lægstur mældist hitinn -22,3 stig í Svartárkoti þ. 5. Það var mjög kalt fyrri hluta mánaðarins. Lágmarkshitamet féllu á ýmsum sjálfvirkum stöðvum á norður- og austurhluta landsins í mánuðinum. Hlýrra var í veðri síðari hluta mánaðar.
Úrkoma
Apríl var úrkomusamur í Norðausturfjórðungnum en þurr annars staðar á landinu.
Mánaðarúrkoman mældist 21,5 mm í Reykjavík, eða um 36% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Aðeins sjö sinnum hefur mælst minni aprílúrkoma í Reykjavík frá upphafi samfelldra úrkomumælinga þar. Á Akureyri mældist mánaðarúrkoman hins vegar 46,1 mm sem er um 80% umfram meðalúrkomu aprílmánaðar áranna 1991 til 2020. Í Stykkishólmi mældust 30,9 mm og 35,8 mm mældust á Höfn í Hornafirði.
Fjöldi daga þar sem úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri var 5 í Reykjavík, en það er sex dögum lægri fjöldi en í meðalári. Þurrir dagar voru óvenjumargir í Reykjavík í mánuðinum. Úrkoman var 1,0 mm eða meiri 9 daga mánaðarins á Akureyri, eða þremur dögum umfram meðalfjölda.
Snjór
Það var snjóþungt á norðan- og austanverðu landinu fram eftir mánuði. Töluvert var um samgöngutruflanir í þeim landshlutum vegna hríðarveðurs og fannfergis.
Jörð var flekkótt einn dag mánaðarins í Reykjavík en aðra daga var hún auð. Aftur á móti var mánuðurinn snjóþungur á Akureyri, en þar voru alhvítir dagar 17 og jörð var ekki alauð neinn morgun mánaðarins. Að jafnaði er jörð alhvít fimm daga í apríl á Akureyri.
Sólskinsstundafjöldi
Mánuðurinn var fjórði sólríkasti aprílmánuður í Reykjavík frá upphafi mælinga árið 1911. Þar mældist 226,1 sólskinsstund sem er 61 stund yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri voru sólskinsstundirnar 146,2, eða 18,7 stundum yfir meðallagi.
Vindur
Vindur á landsvísu var 0,2 m/s yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Norðaustlægar áttir voru ríkjandi í mánuðinum. Hvassast var þ. 7. (norðnorðaustanátt).
Loftþrýstingur
Meðalloftþrýstingur mældist 1012,0 hPa í Reykjavík, en það er 2,7 hPa yfir meðallagi aprílmánaðar árin 1991 til 2020.Hæsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 1035,8 hPa í Grundarfirði þ. 22. Lægstur mældist hann 977,1 hPa á Fagurhólsmýri.
Fyrstu fjórir mánuðir ársins
Meðalhiti í Reykjavík fyrstu fjóra mánuði ársins var 1,0 stig. Það er 0,6 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020 og 0,8 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn í Reykjavík í janúar til apríl raðast í 67. hlýjasta sæti á lista 154 ára. Á Akureyri var meðalhiti fyrstu fjögurra mánaða ársins -1,0 stig sem er 1,3 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020 og 1,7 stigum undir meðallagi undanfarins áratugar. Þar raðast meðalhiti ársins hingað til í 80. hlýjasta sæti á lista 144 ára.
Þurrt hefur verið í Reykjavík það sem af er ári. Heildarúrkoman fyrstu fjóra mánuði ársins mældist 220,8 mm sem eru 70% af meðalheildarúrkomu janúar til apríl 1991 til 2020. Á Akureyri mældist heildarúrkoma mánaðanna fjögurra 228,8 mm sem er 20% yfir meðallagi áranna 1991 til 2020.
Það hefur verið óvenjulega sólríkt í Reykjavík það sem af er ári. Sólskinsstundirnar fyrstu fjóra mánuði ársins mældust 512,1 og hafa aðeins einu sinni mælst fleiri í Reykjavík yfir þessa mánuði, en það var árið 1947.
Skjöl fyrir apríl
Meðalhiti á sjálfvirkum
veðurstöðvum í apríl 2024 (textaskjal).
Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.