Þingað um jarðhræringar - NORSEM í október
Skráningu lýkur í lok ágúst
Þing norrænna jarðskjálftarannsókna verður haldið í dagana 11. - 13. okt. á Grand Hótel Reykjavík. Þingið er hið 47. í þessari röð jarðskjálftaþinga en síðast var það haldið á Íslandi fyrir fimm árum.
Þingið hefst á þriðjudegi og varir út fimmtudag. Fyrirlestrar og umræður fara fram á ensku.
Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér efnið með þátttöku í huga. Skráning er hafin og stendur út ágúst. Útdráttum erinda skal skila fyrir 15. september.
Margvísleg viðfangsefni
Þessi þing taka til skoðunar marvíslegar norrænar rannsóknir í jarðskjálftafræðum:
jarðskjálftafræði neðanjarðarsprenginga
- mælingar út af banni við prófun kjarnorkuvopna
- aðferðafræði gagnagreininga
- áhættumat og jarðskjálftaverkfræði
- rannsóknir á jarðskorpunni og efri möttli
- jarðskjálftar, jarðhræringar, eldfjöll, höggun og hnik
- skrásetning jarðskjálfta og skipulag jarðhræringavöktunar
Vettvangsferð
Síðasta daginn verður farið um Reykjanesskagann til að skoða misgengi á skástígu gliðnunarsvæði skagans. Einnig Kleifarvatn, jarðvarma í Seltúni, Gunnuhver og svo bólstraberg á sjálfu Reykjanesinu.