Fréttir

Skjálfti af stærð 4,6 norðvestur af Húsavík

Ekki hægt að útiloka stærri skjálfta

17.9.2020

Uppfært 17.09., kl. 14.45

Þó nokkuð hefur dregið úr virkninni SA við Flatey. Það sem af er degi hafa mælst rúmlega 40 skjálftar, samanborið við 330 í gær og 420 á þriðjudaginn. Flestir skjálftarnir sem mælst hafa í gær og dag eru um eða undir 1,0 að stærð, flestir á svipuðum slóðum og M4.6 og M4.0 skjálftarnir á þriðjudaginn.

Þó dregið hafi úr virkninni við Flatey er þessari hrinu ekki lokið og ekki hægt að útiloka að fleiri og stærri skjálftar verði á næstunni.


Yfirlit úr sjálfvirku kerfi Veðurstofunnar sem sýnir stærð skjálfta síðan á þriðjudag. 


Frétt birt 15.09., kl. 15.15

Í dag, 15. september kl. 14:52 varð jarðskjálfti 4,6 að stærð, um 20 km NV af Húsavík. Fjöldi tillkynninga um að skjálftinn hafi fundist á Norðurlandi hafa borist Veðurstofunni. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt.

Skjálftinn er framhald af jarðskjálftahrinu sem hófst fyrir norðan land þann 19. júní í sumar. Hrinan er sú öflugasta á Tjörnesbrotabeltinu í ríflega 40 ár. Þrír skjálftar af stærð 5-6 mældust á fyrstu dögum hrinunnar sem hefur verið kröftugust hingað til á tveimur stöðum, annarsvegar í Eyjafjarðarálnum um 25-45 km norðnorðaustur af Siglufirði og hinsvegar vestast á Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu um 20 km norðaustur af Siglufirði.

Ekki hægt að útiloka stærri skjálfta

„Með skjálftanum í dag aukast líkurnar á því að virknin færist austar eftir Húsavíkur-Flateyjar misgenginu og við förum að sjá fleiri skjálfta nær Húsavík en áður“, segir Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvár á Veðurstofu Íslands. „Rannsóknir á misgenginu benda til að enn sé innistæða fyrir stærri skjálfta allt að stærð 7 á þessu svæði og meðan að hrinan er í gangi eru auknar líkur á stærri skjálftum. Það er því full ástæða til þess að íbúar á svæðinu hafi varan á, til dæmis með því að tryggja lausamuni í húsum“, segir Kristín.

Ef að kæmi til slíkst skjálfta er hugsanlegt að hann valdi grjóthruni og skriðum auk þess sem þekkt er að sumir stærri skjálftar valdi flóðbylgjum. Hættan á skriðuföllum er ekki einungis bundin við norðanverðan Tröllaskaga og Flateyjarskaga eins og áður hefur verið greint frá heldur einnig austur á Melrakkasléttu.

mynd

Á meðfylgjandi mynd má sjá þau svæði sem skriðuföll geta átt sér stað í stórum skjálftum á brotabeltinu norðan við land. Mikilvægt er að fólk á svæðinu kynni sér leiðbeiningar Almannavarna um viðbrögð í jarðskjálftum og tryggi innanstokksmuni eins og hægt er. 

Vill Veðurstofan í samráði við Almannavarnir koma almennum tilmælum til fólks um þessa hættur:

  • Almenn tilmæli og upplýsingar til almennings verði jarðskjálfti >6 í nágrenni við Flatey/Húsavík
  • Halda kyrru fyrir meðan að jarðskjálftinn ríður yfir
  • Halda sig frá byggingum sem hafa skemmst
  • Halda sig frá skriðuhlíðum
  • Halda sig frá höfninni og strönd vegna hugsanlegrar flóðbylgju af hafi næstu klukkustundir
  • Búast má við að tugir eftirskjálfta finnist í nærumhverfi skjálftaupptakanna næstu 24 tímana





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica