Fréttir
breytingar á stofnanaskipulagi
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ásamt ráðuneytisstjóra, skrifstofustjórum og forstöðumönnum stofnana ráðuneytisins.

Stofnanaskipulag umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytisins til skoðunar

11.7.2022

Umhverfis- orku og loftslagsráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, hefur ákveðið að taka til skoðunar stofnanaskipulag ráðuneytisins með það að leiðarljósi að efla og stykrja starfsemi stofnana.

Þetta var kynnt á ríkisstjórnarfundi 5. Júlí síðastliðinn. Vinna er hafin við að greina umbótatækifæri og áskoranir sem felast í núverandi stofnanakerfi ráðuneytisins.

Alls eru þetta 13 stofanir talsins en þær eru: Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR), Landmælingar Íslands, Minjastofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Náttúrurannsóknarstöðin við Mývatn, Orkustofnun, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Umhverfisstofnun, Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, Úrvinnslusjóður, Vatnajökulsþjóðgarður, Veðurstofa Íslands, Þjóðgarðurinn á Þingvöllum. Hjá þeim starfa 600 starfsmenn á 40 starfstöðum víðsvegar um landið. Lögð er áhersla á gott samstarf við stjórnendur og starfsmenn við þessa vinnu og eins verður náið samstarf við önnur ráðuneyti sem vinna að sambærilegum verkefnum.

„Verkefni stofnana umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytisins eru afar mikilvæg og tryggja þarf að stofnanir geti sinnt kjarnahlutverki sínu samhliða því að takast á við margvíslegar áskoranir,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. „Með því að stækka skipulagseiningarnar er hægt að efla, styrkja og samræma betur starf stofnana ráðuneytisins og þannig auka slagkraft þeirra, auk þess sem ýmis tækifæri liggja í auknu samstarfi opinberra aðila við að byggja upp sameiginlegar starfsstöðvar. Þá þarf einnig að horfa til þess að opinber störf séu ekki staðbundin, nema eðli starfsins krefjist þess sérstaklega og þannig er hægt að  styðja við byggðaþróun og valfrelsi í búsetu.“

Gert er ráð fyrir að fyrir niðurstöður greiningarinnar liggi fyrir í lok þessa árs. 

Nánar í frétt hjá Stjórnarráði Íslands hér.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica