Fréttir
Staðarspár fyrir sólmyrkvaslóðir

Sérstök spásíða vegna sólmyrkvans á gottvedur.is

Staðarspár fyrir sólmyrkvaslóðir, skýjahuluspá og nýjustu veðurupplýsingar á einum stað

7.8.2026

Veðurstofa Íslands hefur opnað sérstaka spásíðu vegna sólmyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst á gottvedur.is, þróunarvef stofnunarinnar. Þar má nálgast staðarspár fyrir sólmyrkvaslóðir, skoða veðurspár á korti og fylgjast með nýjustu tilkynningum frá veðurvakt.

Á yfirlitskorti efst á síðunni má sjá almyrkvaslóðina og helstu veðurupplýsingar fyrir valda staði. Ný kortaþekja sýnir hvernig heildarskýjahula dreifist yfir landið samkvæmt spá fyrir þann tíma sem valinn er. Á kortinu má einnig skoða spár fyrir vind, hita og úrkomu og fletta á milli spátíma.

Neðar á síðunni eru ítarlegar staðarspár fyrir fjölda staða á sólmyrkvaslóðum. Þar má meðal annars skoða spár um skýjafar, úrkomu, hita og vind fyrir einstaka staði og fletta á milli daga og spátíma.


Staðarspár á sólmyrkvasvæðum

Skjamynd-2026-08-07-152751

Ný þekja fyrir skýjahulu

Ný þekja fyrir skýjahulu er nú aðgengileg á kortinu. Hún sýnir hvernig heildarskýjahula dreifist yfir landið samkvæmt spá fyrir þann tíma sem valinn er. Á kortinu má einnig skoða spár fyrir vind, hita og úrkomu og fletta á milli spátíma.

Í sérstakri leiðbeiningafrétt er farið yfir hvernig skýjahuluspáin er opnuð og kortið notað.

Leiðbeiningar um notkun skýjahuluspárinnar

Skyjahula2

Allar upplýsingar um almyrkvann á einum stað

Jafnframt hefur verið sett upp yfirlitssíða þar sem upplýsingum vegna almyrkvans á sólu miðvikudaginn 12. ágúst er safnað saman á einum stað.

Á síðunni birtast nýjustu færslur frá veðurvakt og fræðsluefni Veðurstofunnar um sólmyrkva. Þar má einnig finna kort og ítarefni ásamt mikilvægum upplýsingum frá samstarfsaðilum um meðal annars öryggi, ferðalög og umferð.

Veðurspár geta breyst og því er mikilvægt að fylgjast reglulega með nýjustu upplýsingum eftir því sem nær dregur sólmyrkvanum.

Skoða yfirlitssíðuna um almyrkvann

Skjamynd-2026-08-07-155330








Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica