Fréttir
Michelle Parks, sérfræðingur í aflögunarmælingum og eldfjallavöktun á Veðurstofu Íslands

Sérfræðingur Veðurstofunnar leiðir alþjóðlegt samstarf um náttúruvá

12.5.2026

Michelle Parks, sérfræðingur í aflögunarmælingum og eldfjallavöktun á Veðurstofu Íslands, hefur verið kjörin formaður GEO-GSNL, Geohazard Supersites and Natural Laboratories. Michelle hefur starfað á Veðurstofunni frá árinu 2017 og tók formlega við formennsku GSNL 7. maí 2026.
GSNL er alþjóðlegt samstarfsnet á sviði jarðvár, meðal annars eldgosa, jarðskjálfta, jarðskorpuhreyfinga og annarrar náttúruvár. Samstarfið byggir á opinni miðlun gagna, nýtingu gervitunglamælinga og samvinnu vísindastofnana, geimstofnana, vöktunarstofnana og almannavarna. Markmiðið er að efla rannsóknir, vöktun og áhættumat svo ný þekking nýtist betur við ákvarðanatöku og viðbrögð við náttúruvá.
Michelle hefur um árabil unnið að rannsóknum á íslenskum eldfjöllum, meðal annars með InSAR-gervitunglamælingum sem sýna aflögun jarðskorpunnar. Slíkar mælingar eru mikilvægar til að greina breytingar í eldstöðvakerfum, meta kvikuhreyfingar og styðja við vöktun virkra eldfjalla. Hún hefur meðal annars komið að rannsóknum á Bárðarbungu, Öskju, Heklu, Kötlu, Eyjafjallajökli, Fagradalsfjalli og Santorini í Grikklandi.
Kjör Michelle er ánægjuleg viðurkenning á framlagi hennar til vísinda og alþjóðlegs samstarfs á þessu sviði. Það endurspeglar jafnframt þá sérfræðiþekkingu sem byggst hefur upp á Veðurstofu Íslands og mikilvægi samvinnu við rannsóknir og vöktun náttúruvár.
PHOTO-2026-05-12-11-22-43
Frá fundi Geohazard Supersites and Natural Laboratories. Myndir: Elisa Trasatti




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica