Aukin hætta á eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni gæti varað í nokkrar vikur
Slæmt veður næstu daga getur haft áhrif á næmni mælanets
Uppfært 4. febrúar kl. 13:15Slæmt veður á næstu dögum getur haft áhrif á næmni mælinga
Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram
Tímabilið þar sem hættan á eldgosi eykst getur staðið í allt að mánuð eða lengur.
Skjálftavirkni er áfram lítil
Hættumat óbreytt
Veðurspá næstu daga sýnir lægðagang yfir landinu, sem gerir ráð fyrir suðvestan og sunnan stormi og úrkomu. Þessi veðurskilyrði geta haft áhrif á mælingar sérstaklega hvað varðar skyggni og næmni jarðskjálfta- og rauntíma GPS-mælinga. Veðurstofan mun áfram fylgjast náið með þróuninni, en fólk er hvatt til að fylgjast með veðurviðvörunum og gæta aðgátar við ferðalög.
Aflögunarmælingar sýna áframhaldandi landris og kvikusöfnun undir Svartsengi. Eins og greint var frá í frétt í síðustu viku er magn kviku undir Svartsengi komið að neðri mörkum þess rúmmáls sem talið er að þurfi til þess að koma af stað næsta kvikuhlaupi. Ef horft er til síðustu eldgosa sem hafa orðið á Sundhnúksgígaröðinni hafa þau byrjað allt frá þremur dögum upp í fjórar vikur eftir að neðri mörkum er náð. Þetta þýðir þó ekki að það sé öruggt að næsti atburður hefjist innan mánaðar, heldur sýnir reynslan að það sé líklegasta sviðsmyndin.
Færslur á GPS-stöðinni HS02 á Svartsengissvæðinu síðan 11. nóvember 2023 í norður, austur og lóðrétt (efst, miðja, neðst). Neðsti ferillinn sýnir landris í millimetrum, og mælingin í gær (3. febrúar) er sýnd með grænum punkti. Rauðu línurnar eru tímasetningar á upphafi síðustu sjö eldgosa (18. desember 2023, 14. janúar, 8. febrúar, 16. mars, 29. maí, 22. ágúst og 20. nóvember 2024). Bláu línurnar tákna tímasetningar kvikuhlaupa sem hafa orðið án þess að hafi komið til eldgoss (10. nóvember 2023 og 2. mars 2024).
Skjálftavirkni við Sundhnúksgígaröðina hefur verið með minna móti síðan að síðasta gosi lauk 9. desember. Einungis mælast örfáir skjálftar á dag. Suma daga síðustu vikuna hefur verið slæmt veður sem hefur haft áhrif á næmni skjálftakerfisins, þannig að allra minnstu skjálftarnir hafa mögulega ekki mælst.
Hættumatið gildir til 11. febrúar að öllu óbreyttu.
Uppfært 31. janúar kl. 14:55
Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram
Magn kviku sem safnast hefur undir Svartsengi nálgast það magn sem kom upp í síðasta eldgosi
Líkur á nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi fara vaxandi
Það tímabil þar sem auknar líkur eru á eldgosi getur varað í allt að mánuð eða lengur
Möguleiki á að jarðskjálftavirkni verði ekki mikil fyrir næsta eldgos
Veður á næstu dögum getur haft áhrif á næmni mælinga
Slæmt veður var á öllum Reykjanesskaganum í gær. Miðað við veðurspár mun veðrið næstu daga hafa áhrif á vöktun jarðhræringa og viðbragðstíma ef kvikuhlaup eða eldgos verður. Sterkur vindur, slydda og snjókoma geta truflað jarðskjálftamælingar og dregið úr nákvæmni GPS-mælinga á landrisi.
Veðurstofan mun áfram fylgjast náið með þróuninni, en fólk er hvatt til að fylgjast með veðurviðvörunum og gæta aðgátar við ferðalög.
Það tímabil þar sem auknar líkur eru á eldgosi getur varað í allt að mánuð eða lengur
Líkanreikningar eru notaðir til að meta hversu mikið magn af kviku hefur safnast saman undir Svartsengi. Þetta mat er ekki nákvæm tala og rúmmálið af kviku í niðurstöðum líkanreikninganna liggur á ákveðnu bili sem hefur „neðri“ og „efri“ mörk.
Samkvæmt nýjustu líkanreikningum er magn kviku undir Svartsengi komið að neðri mörkum. Miðað við reynslu síðustu gosa hafa líkanreikningar sýnt að kvikuhlaup eða eldgos hafa orðið eftir að þessum neðri mörkum er náð.
Ef horft er til þeirra sex eldgosa sem hafa orðið á Sundhnúksgígaröðinni hafa eldgos byrjað allt frá þremur dögum upp í fjórar vikur eftir að neðri mörkum er náð. Þetta þýðir þó ekki að það sé öruggt að næsti atburður hefjist innan mánaðar, heldur sýnir reynslan að það sé líklegasta sviðsmyndin.
![Kvikusofnun_Timalina_Plot_30012025](/media/uncategorized/medium/Kvikusofnun_Timalina_Plot_30012025.png)
Grafið sýnir líkanreikninga á rúmmáli kviku sem safnast saman undir Svartsengi yfir tíma. Á y-ásnum má sjá rúmmál kviku, en á x-ásnum eru tímamörk. Tvö viðmið eru sett fram, „neðri mörk“ og „efri mörk“, sem tákna það bil sem líkur á kvikuhlaupi og eldgosi aukast. Frá því að neðri mörkum er náð fara líkur vaxandi.
Líkanreikningarnir byggja á mælingum á hraða landriss, sem fengnar eru úr GPS-gögnum og marka kvikusöfnunina undir Svartsengi. Ef hraði landrissins minnkar, þ.e. hraði kvikusöfnunar undir Svartsengi, gæti það haft áhrif á útreikningana og breytt tímasetningu neðri og efri marka.
Þegar litið er til fyrri atburða á Sundhnúksgígaröðinni segir sagan okkur að tímabilið frá því að neðri mörkum hefur verið náð þar til að eldgos hefst hefur verið frá nokkrum dögum upp í mánuð. Það tímabil þar sem auknar líkur eru á eldgosi getur varað í allt að mánuð eða lengur.
![Dagar_31012025](/media/uncategorized/medium/Dagar_31012025.png)
Grafið sýnir fjölda daga sem líða frá því að neðri mörkum kviku var náð þar til eldgos hófst á árinu 2024. Á y-ásnum eru dagsetningar eldgosa, en á x-ásnum er fjöldi daga sem liðu frá því að neðri mörkum var náð. Athugið að 29. maí var ekki tekinn með í þessari greiningu, þar sem talið er að breyting hafi orðið á kerfinu fyrir þann atburð.
Uppfært 28. janúar kl. 16:10
Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram
Magn kviku sem safnast hefur undir Svartsengi nálgast það magn sem fór þaðan í síðasta eldgosi
Líkur á nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi fara vaxandi
Möguleiki á að jarðskjálftavirkni verði ekki mikil fyrir næsta eldgos
Hættumat uppfært og gildir til 11. febrúar, að öllu óbreyttu.
Aflögunarmælingar sýna áframhaldandi landris og kvikusöfnun undir Svartsengi. Atburðarrásin heldur því áfram á svipaðan hátt og fyrir síðustu gos. Líkanreikningar sýna að magn kviku sem safnast hefur undir Svartsengi nálgast það magn sem fór þaðan í síðasta kvikuhlaupi og eldgosi.
Út frá greiningu fyrri atburða hafa vísindamenn metið sem svo að þegar jafn mikið magn af kviku hefur safnast undir Svartsengi og fór þaðan í síðasta atburði, aukast líkurnar á nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi.
Nýtt hættumat endurspeglar auknar líkur á eldgosi
Veðurstofan hefur uppfært hættumat og gildir það til 11. febrúar, að öllu óbreyttu. Ákveðið hefur verið að breyta hættustig á svæði 4 og 6 í úr „nokkur“ hætta (gult) yfir í „töluverða“ hættu (appelsínugult). Ástæðan fyrir breytingunum er að samkvæmt líkanreikningum hefur magn kviku sem safnast hefur undir Svartsengi nálagst það magn sem kom upp í síðasta eldgosi.
Samkvæmt veðurspá er von á umhleypingum út vikuna. Sunnan stormur með afgerandi hlýindum, rigningu og súld á sunnan- og vestanverðu landinu þegar líður á vikuna og um helgina. Slæm veðurspá gæti dregið úr næmni mælanetsins og þannig stytt viðbragðstíma vegna eldgoss.
(Smellið á kortið til að stækka)
Möguleiki að jarðskjálftavirkni verði ekki mikil fyrir næsta gos
Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni hefur aukist hægt frá goslokum 9.desember 2024 en virknin er enn lítil. Þróunin síðasta árið sýnir að jarðskjálftavirkni fyrir kvikuhlaup hefur farið minnkandi með hverjum atburði. Því er möguleiki á að jarðskjálftavirkni verði ekki mikil fyrir næsta eldgos.
![Jardskjalftar28012025_ISL](/media/uncategorized/medium/Jardskjalftar28012025_ISL.png)
Jarðskjálftavirkni við Sundhnúksgígaröðina. Grafið sýnir fjölda skjálfta á dag frá desember 2024.
Uppfært 21. janúar kl. 14:10
- Hraði landriss hefur minnkað örlítið síðustu vikur. Breytingin hefur ekki áhrif á fyrra mat um líklega atburðarás.
- Samkvæmt líkanreikningum má því gera ráð fyrir því að líkur á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni fari að aukast í lok janúar eða byrjun febrúar
- Jarðskjálftavirkni hefur verið lítil í kringum Sundhnúk og Svartsengi
- Hættumat gildir til 28. janúar, að óbreyttu.
GPS-mælingar sýna að hraði landriss hefur minnkað örlítið á síðustu vikum en varasamt getur verið að túlka einstaka GPS-punkta. Truflun á þessum árstíma veldur því að breytileiki milli daga er meiri vegna veðuraðstæðna. Í staðinn þarf að horfa á mælingar yfir lengri tíma, en þær sýna áframhaldandi landris.
Atburðarásin er því enn í fullum gangi og er að þróast mjög svipað og fyrir síðustu gos. Samkvæmt líkanreikningum mun rúmmál kviku undir Svartsengi ná neðri mörkum í lok janúar eða byrjun febrúar. Þetta þýðir að það má gera ráð fyrir því að líkur á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni fari að aukast frá þeim tíma.
Færslur á GPS-stöðinni SENG á Svartsengissvæðinu síðan 11. nóvember 2023 í norður, austur og lóðrétt (efst, miðja, neðst). Neðsti ferillinn sýnir landris í millimetrum, og mælingin í gær (20. janúar) er sýnd með grænum punkti. Rauðu línurnar eru tímasetningar á upphafi síðustu sjö eldgosa (18. desember 2023, 14. janúar, 8. febrúar, 16. mars, 29. maí, 22. ágúst og 20. nóvember 2024). Bláu línurnar tákna tímasetningar kvikuhlaupa sem hafa orðið án þess að hafi komið til eldgoss (10. nóvember 2023 og 2. mars 2024).
Jarðskjálftavirkni frá því að síðasta eldgosi lauk, 9. desember síðastliðinn, þar til dagsins í dag hefur verið mest áberandi í kringum Trölladyngju og aðeins í Fagradalsfjalli, en virknin hefur verið mjög lítil í kringum Sundhnúk og Svartsengi.
Hættumat verður uppfært 28. janúar, að öllu óbreyttu. Það mun taka mið af auknum líkum á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi samkvæmt fyrrnefndri tímalínu.
Uppfært 14. janúar kl: 15:00
- Skjálftavirkni áfram lítil
- Áætlað að rúmmál kviku undir Svartsengi nái neðri mörkum í lok janúar eða byrjun febrúar
- Hættumat uppfært og gildir til 28.janúar að öllu óbreyttu
Aflögunargögn sýna að landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram. Ef kvikusöfnun heldur áfram á svipuðum hraða munu 12 milljón rúmmetrar af kviku hafa safnast undir Svartsengi í lok janúar eða byrjun febrúar. Þá er talið, skv. líkanreikningum, að líkurnar á kvikuhlaupi og eldgosi fari að aukast. Líkönin byggja á áætluðu kvikuinnflæði á hverjum tíma en litlar breytingar á því innflæði geta haft áhrif á matið á mögulegum tímasetningum næsta eldgoss.
Eins og síðustu vikur hefur verið lítil jarðskjálftavirkni í kringum Svartsengi.
Hættumat Veðurstofunnar hefur verið uppfært og hafa engar breytingar verið gerðir. Það gildir til 28. Janúar, að öllu óbreyttu.
![Haettusvaedi_VI_14jan_2025](/media/uncategorized/medium/Haettusvaedi_VI_14jan_2025.png)
(Smellið á kortið til að stækka)
Uppfært 7. janúar kl: 15:00
- Landris heldur áfram á svipuðum hraða
- Áætlað að rúmmál kviku undir Svartsengi nái neðri mörkum í lok janúar
- Jarðskjálftavirkni áfram lítil
Þróun við Svartsengi og Sundhnúksgígaröðina heldur áfram með svipuðu móti. Í síðasta gosi er metið að um 12-15 milljón rúmmetrar af kviku hafi farið undan Svartsengi. Þegar því rúmmáli er náð eru taldar auknar líkur á að kvikuhlaup og/eða eldgos geti átt sér stað. Líkanreikningar gera ráð fyrir að 12 milljón mörkum verði náð í lok janúar.
Áfram er jarðskjálftavirkni við Svartsengi og Sundhnúksgígaröðina mjög lítil.
Hættumat Veðurstofunnar verður uppfært 14. janúar að öllu óbreyttu.
Færslur á GPS stöðinni SENG á Svartsengissvæðinu síðan 11. nóvember 2023 í norður, austur og lóðrétt (efst, miðja, neðst). Neðsti ferillinn sýnir landris í millimetrum, og mælingin í gær (7. janúar) er sýnd með grænum punkti. Rauðu línurnar eru tímasetningar á upphafi síðustu sjö eldgosa (18. desember 2023, 14. janúar, 8. febrúar, 16. mars, 29. maí, 22. Ágúst og 20. nóvember 2024). Bláu línurnar tákna tímasetningar kvikuhlaupa sem hafa orðið án þess að hafi komið til eldgoss (10. nóvember 2023 og 2. mars 2024).
Frétt 2. janúar
Hraði á kvikuinnflæði undir Svartsengi svipaður og fyrir síðasta eldgos
Nýjustu gögn benda til þess að líkur á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi aukist í lok janúar
- Uppfært hættumat gildir til 14. janúar að öllu óbreyttu
- Nýjasta hraunbreiðan hættuleg göngufólki
Aflögunargögn fram til 30. desember 2024 sýna að kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram.
Líkur eru taldar aukast á nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi þegar jafn mikið magn af kviku hefur safnast undir Svartsengi og fór þaðan í kvikuhlaupinu og eldgosinu 20. nóvember. Líkanreikningar sýna að þetta magn er á bilinu 12-15 milljónir rúmmetra.
Ef kvikusöfnun heldur áfram á svipuðum hraða og undanfarið má gera ráð fyrir því að rúmmál kviku undir Svartsengi nái 12 milljónum m3 í lok janúar, en í fyrstu vikunni í febrúar verði það orðið um 13.5 milljónir m3.
Samkvæmt líkanreikningum sem byggja á nýjustu aflögunargögnum er kvikuinnflæðið nú rétt rúmlega 3 m3/s, sem er svipaður hraði og fyrir síðasta eldgos. Miðað við þann hraða má því gera ráð fyrir því að líkur á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni fari að aukast í lok janúar.
Líkönin byggja á áætluðu kvikuinnflæði á hverjum tíma og litlar breytingar á því flæði hafa áhrif á matið á mögulegum tímasetningum næsta eldgoss.
Nýjasta hraunbreiðan hættuleg göngufólki
Hættumat Veðurstofunnar hefur verið uppfært og gildir að öllu óbreyttu til 14. janúar 2025.
Helsta breytingin er á svæði 6 þar sem heildarhætta er nú metin nokkur (gul) en var áður metin töluverð (appelsínugul). Heildarhætta á svæði 6 er nú metin minni vegna þess að hætta á hraunflæði á svæðinu hefur lækkað.
Þótt hætta á hraunflæði sé nú talin minni en áður er hraunbreiðan enn heit og hættuleg göngufólki.
Jarðskjálftahrinur nærri Eldey algengar undanfarin ár
Afar lítil jarðskjálftavirkni hefur verið á Sundhnúksgígaröðinni frá því að síðasta eldgosi lauk 8. desember 2024.
Á öðrum nærliggjandi svæðum hefur þó verið nokkur jarðskjálftavirkni, en um 200 jarðskjálftar, þar af tveir yfir M3 að stærð, mældust í hrinu dagana 29. – 31. desember 2024 nærri Eldey á Reykjaneshrygg. Jarðskjálftahrinur nærri Eldey hafa verið algengar undanfarin ár, en hátt í 60 jarðskjálftar yfir M3 að stærð hafa mælst þar síðustu 4 ár.
Áfram mælast stöku skjálftar þar en hrinunni er að mestu lokið. Áfram mælast reglulega jarðskjálftar í vestanverðu Fagradalsfjalli. Þar hafa rúmlega 60 smáskjálftar mælst síðasta mánuðinn, flestir á um 6-8 km dýpi.