Nýtt rit um nýjustu rannsóknir í Surtsey
Surtseyjarfélagið hefur nú gefið út ritið Surtsey Research 16. Í ritinu eru níu greinar eftir 24 höfunda frá sex þjóðlöndum. Þar á meðal eru starfsmenn, Veðurstofu Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskóla Íslands, Náttúrufræðistofnunar og Grasagarðsins.
Surtsey Research birtir greinar á ensku um rannsóknir í Surtsey og um tengd efni frá öðrum eldfjallasvæðum. Nú eru liðin 60 ár frá því fyrsta ritið kom út. Framan af voru ritin prentuð en síðustu þrjú hafa eingöngu verið gefin út á rafrænu formi.
Efni ritsins
Meðal efnis í nýja heftinu eru:
Tvær greinar um jarðfræði Surtseyjar, þar sem fjallað er um yfirborðsbreytingar í eldfjallinu og landsig sem alls hefur verið um 9 cm frá árinu 2000.
Grein um jarðvegsmyndun í eynni og önnur um veðurfar, en sjálfvirk veðurstöð var sett þar upp árið 2009.
Fjöldi greina um þróun lífríkis í Surtsey á síðari árum, þar á meðal:
Vöktun á smádýralífi eyjarinnar á árunum 2007 til 2021
Yfirlit yfir landnám sveppategunda til dagsins í dag
Rannsókn á fuglalífi eyjarinnar á seinni árum
Mælingar á blaðgrænu í tengslum við breytileika í framboði á vatni og næringarefnum innan eyjarinnar
Einnig er í ritinu grein um plöntutegundina tunguskollakamb sem einungis er þekkt á einum stað í heiminum, við Deildartunguhver í Borgarfirði.
Aðgengi að ritinu
Ritið Surtsey Research 16 og einstakar greinar þess má nálgast á vef Surtseyjarfélagsins:
Þar má einnig finna eldri útgáfur í ritröðinni Surtsey Research:





