Fréttir

Nýtt áhættumat vegna öryggis fólks í Grindavík á vefsíðu Grindavíkurbæjar

30.9.2026

Niðurstaða fyrsta hluta endurskoðaðs áhættumats vegna öryggis fólks í Grindavík liggur nú fyrir. Matið gildir fyrir byggð svæði í Grindavík innan varnargarða. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fer með gerð og útgáfu áhættumatsins í samstarfi við almannavarnanefnd Grindavíkur.

Niðurstöðurnar og gögn að baki þeim eru birt á vef almannavarna. Á vefsíðu á vegum Grindavíkurbæjar má fylgjast með núverandi stöðu áhættumatsins og þeirra aðgerða sem það byggir á.

„Niðurstaðan er sú að öryggi fólks í Grindavík sé sambærilegt við öryggi fólks í öðrum íslenskum byggðarlögum sem býr við langvarandi náttúruvá, að því gefnu að mikilvægar öryggisráðstafanir, vöktun og viðbúnaður haldist virkur. Þá er talið að daglegt öryggi fólks sem dvelur eða starfar í Grindavík sé ásættanlegt, sem og öryggi við rýmingar og endurkomu,“ segir í niðurstöðum endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík.

Áhættumatinu er ætlað að segja til um hversu öruggt er að vera innan Grindavíkur á hverjum tíma. Almannavarnir sjá um að uppfæra matið þegar aðstæður breytast. Hættumat Veðurstofunnar er ein af forsendum áhættumatsins og lýsir þeim hættum sem eru til staðar eða geta skapast vegna yfirstandandi kvikusöfnunar undir Svartsengi.

Áhættumatið byggir einnig á veðuraðstæðum hverju sinni. Slæmt veður getur haft áhrif á bæði flóttaleiðir og næmni mælanets Veðurstofunnar. Sú staða getur því komið upp að viðvörun berist með mjög litlum fyrirvara sem hefur áhrif á þann tíma sem gefst til rýmingar og þar með áhættumatið.

Hildigunnur-30-09-2026„Lifandi áhættumat fyrir Grindavík er mjög jákvætt skref og Veðurstofan fagnar þessari vinnu sem hefur farið fram. Við erum í samtali við Almannavarnir um að þróa verklagið til að tryggja virkni þess. Þetta er nauðsynleg viðbót við hættumatið sem Veðurstofan gefur út til að meta aðstæður í Grindavík,“ segir Hildigunnur H. H. Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofunnar.  

Sara Barsotti, deildarstjóri eldvirkni og eldfjallavár hjá Veðurstofunni, leggur áherslu á að endurskoða þurfi áhættumatið þegar aðstæður til vöktunar breytast.

Sara-30-09-„Það sem skiptir mestu máli er að þetta áhættumat er „lifandi“ sem þýðir að það er endurskoðað tildæmis ef veðuraðstæður eru slæmar sem gera vöktun erfiða. Það eru meðal annars slík atriði sem þarf að skoða vel og til hvaða mótvægisaðgerða verður gripið ef aðstæður eru þannig að ekki er hægt að gefa út viðvaranir tímanlega,“ segir Sara.

Hildigunnur bendir á að aðstæður í Grindavík séu ólíkar því sem þekkist víða annars staðar.

„Við erum sammála því sem stendur á nýjum vef um áhættumatið að í Grindavík er náttúruvá — eldsumbrot og jarðhræringar — yfirvofandi allan sólarhringinn, allt árið um kring og það gerir aðstæður í bænum ólíkar flestum öðrum byggðarlögum sem búa við náttúruvá tímabundið eða árstíðabundið. Þetta hefur skapað margvíslegar áskoranir. Við á Veðurstofunni höfum sagt að mikil þekking og reynsla hefur myndast í kringum rannsóknir, vöktun og viðbrögð vegna eldsumbrotanna á Reykjanesskaga síðustu ár og það er mikilvægt að nýta hana til að efla öryggi og áfallaþol samfélagsins – þannig að við séum betur í stakk búin til að búa við náttúruvá – hvar sem er á landinu,“ segir Hildigunnur.






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica