Fréttir
Nýju vefsíðurnar eru hluti af áframhaldandi endurnýjun á vef Veðurstofunnar.

Nýjar vefsíður fyrir skriðuviðvaranir komnar í loftið

Mikilvæg viðbót til að miðla ítarlegri upplýsingum vegna skriðuhættu

23.9.2026

Veðurstofan hefur hafið birtingu á viðvörunum vegna skriðufalla á nýju vefsvæði. Nýju skriðusíðurnar eru hluti af áframhaldandi endurnýjun á vef Veðurstofunnar.

Nú hafa verið gefnar út gular skriðuviðvaranir fyrir Suðurland og innsveitir Suðurlands, Suðausturland, sunnanverða Austfirði og Miðhálendið vegna úrkomu fimmtudaginn 24. september og fram á föstudag. Á nýju skriðusíðunum má sjá gildistíma viðvarananna og nánari upplýsingar um aðstæður á hverju svæði.

Helstu atriðin sem birtast á vefsíðunum:

  • Skriðuviðvaranir settar fram á sambærilegan hátt og veðurviðvaranir
  • Landinu öllu er skipt upp í 15 skriðusvæði
  • Vikulegt yfirlit yfir veðuraðstæður á landinu öllu með tilliti til skriðuhættu
  • Upplýsingar um ný skriðföll, skriðuhættu og fréttir af skriðuvöktun

Nýju skriðusíðurnar eru miðlægur vettvangur fyrir allar upplýsingar frá skriðuvakt Veðurstofunnar til að mæta aukinni þörf á ítarlegri og skýrri framsetningu á upplýsingum um skriðuhættu á landinu.

Fyrir utan viðvaranir eru fréttir frá skriðuvakt Veðurstofunnar mikilvægur hluti síðunnar og með þeim verður einfaldara fyrir almenning, fagaðila og fjölmiðla að fylgjast með þróun aðstæðna í rauntíma á einum og sama stað.

„Við gefum út viðvaranir fyrir stór svæði, en eins og við vitum þá hlýðir náttúran ekki landamærum og skriðuhætta getur verið mjög staðbundin innan sama svæðis,“ segir Jón Kristinn Helgason, fagstjóri skriðufalla á Veðurstofu Íslands. „Við munum reyna að miðla slíkum upplýsingum með ítarlegum tilkynningum frá vaktinni,“ segir Jón Kristinn

Litakóðaðar viðvaranir líkt og fyrir veður

Viðvaranir um skriðuhættu eru gefnar út þegar veður, einkum úrkoma og/eða leysingar, eða aðrar aðstæður auka líkur á skriðuföllum á tilteknum svæðum. Skriðuviðvaranir Veðurstofunnar byggja á alþjóðlegu kerfi – CAP (Common Alert Protocol) sem notendur þekkja í tengslum við veðurviðvaranir sem byggir á litakóðum og endurspeglar möguleg samfélagsleg áhrif út frá tilteknum aðstæðum. Í einstaka tilvikum eru viðvaranir einnig gefnar út ef líkur eru á að jarðskjálftavirkni valdi skriðuhættu.

„Viðvaranir um skriðuhættu byggja á bestu tiltæku gögnum og mati á veðri, svo sem úrkomu, leysingum og öðrum aðstæðum sem auka líkur á skriðuföllum, en auðvitað er óvissa alltaf hluti af slíku mati,“ segir Jón Kristinn.

Skjamynd-2026-09-23-134003

Myndin sýnir viðvörun sem er núna í gildi. Þarna birtast allar lykilupplýsingar vegna skriðuhættu á svæðinu.

Skjamynd-2026-09-23-134324

Á skriðusíðunum birtast einnig fréttir frá skriðuvakt Veðurstofunnar. Þar birtast meðal annars nánari upplýsingar um veðuraðstæður, skriðuhættu og þróun atburða á tilteknu viðvörunarsvæði, til viðbótar við CAP-viðvaranir eða vikulegt mat. Einnig um vettvangsferðir starfsmanna eða uppsetningu og flutning mælitækja.

Mikilvæg viðbót við þjónustu Veðurstofunnar

Veðurstofan hefur rekið skriðuvakt frá árinu 2010 og eru nýju síðurnar mikilvæg viðbót til að bæta þjónustuna á því sviði. „Við viljum miðla upplýsingum um náttúruvá á þann hátt að það gagnist fólki í daglegu amstri við að taka upplýstar ákvarðanir um ferðir, vinnu eða annað,“ segir Hildigunnur H. H. Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofunnar. „Með loftslagsbreytingum sjáum við að skriðuhætta fer vaxandi og nýju síðurnar miða við að upplýsingar um hana séu aðgengilegar, notendavænar og í takti við aðrar nýjar síður hjá okkur,“ segir Hildigunnur.

Nýju skriðusíðurnar eru enn í þróun og hvetjum við notendur til að kynna sér nýju síðurnar og

senda Veðurstofunni ábendingar um hvað virkar vel og hvað mætti betur fara í framsetningu og notendaupplifun.






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica