Fréttir
Daði Benediktsson, snjóathugunarmaður í Neskaupstað, vinnur að uppsetningu SM4-snjómælis í brattri hlíð við Bræðslugjár. Mælirinn safnar upplýsingum um snjódýpt og hita í snjóþekjunni. Mynd: Hlynur Sveinsson

Nýir snjómælar styrkja vöktun við Norðfjarðarveg

18.9.2026

Síldarvinnslan gaf Veðurstofunni tvo SM4-snjómæla sem settir hafa verið upp í snjóflóðafarvegum ofan Norðfjarðarvegar. Stórt flygildi (dróni) var notað til að flytja búnaðinn upp í fjall.

Starfsmenn Veðurstofunnar í Neskaupstað hafa sett upp tvo nýja snjómæla í fjallinu innan við bæinn. Mælarnir eru staðsettir við Bræðslugjár og í Miðstrandargili, sem eru þekktir snjóflóðafarvegir ofan Norðfjarðarvegar.

Norðfjarðarvegur tengir þéttbýlið í Neskaupstað við fjölmennt atvinnusvæði innar í firðinum. Gögn frá mælunum auðvelda eftirlit og mat á snjóflóðaaðstæðum við veginn. Þau gefa einnig vísbendingar um aðstæður ofan atvinnusvæðisins.

Mælarnir styrkja þannig vöktun á svæðinu og skapa betri grundvöll fyrir ákvarðanir sem varða fólk sem ferðast um veginn eða starfar á svæðinu.

Síldarvinnslan keypti mælana og afhenti Veðurstofunni til uppsetningar og rekstrar.

Búnaðurinn fluttur með stóru flygildi

Við uppsetninguna var stórt flygildi björgunarsveitarinnar Brimrúnar á Eskifirði notað til að flytja búnaðinn upp í 500 til 550 metra hæð. Flygildið er með bæði spili og sleppibúnaði og getur borið allt að100 kíló en búnaðurinn sem fluttur var vó tæp 30 kíló. Flutningurinn gekk vel og sparaði bæði tíma og erfiða burðarvinnu í bröttu fjalllendi.

IMG_4632--1-

Flygildi björgunarsveitarinnar Brimrúnar lyftir búnaði fyrir nýjan SM4-snjómæli. Flygildið getur flutt allt að 100 kíló en búnaðurinn sem fluttur var upp í fjall vó tæp 30 kíló. Mynd: Hlynur Sveinsson

Hvernig virka SM4-snjómælar?

SM4-mælarnir eru hannaðir og smíðaðir af fyrirtækinu POLS á Ísafirði með þarfir snjóflóðavöktunar á Íslandi í huga. Veðurstofan og Vegagerðin eiga og reka samtals um 40 slíka mæla. Þeir nýtast við vöktun fyrir byggð og vegi og við gerð svæðisbundinna snjóflóðaspáa.

Í hverjum mæli er kapall með hitanemum á 20 sentimetra millibili. Hitastigið breytist mun hraðar í nemum sem eru í andrúmsloftinu en þeim sem eru huldir snjó. Þannig má reikna út snjódýptina og fylgjast með breytingum hennar í rauntíma.

Mælarnir sýna einnig hvernig hiti breytist niður í gegnum snjóþekjuna. Þær upplýsingar hjálpa sérfræðingum að greina aðstæður þar sem veik lög geta myndast í snjónum og fylgjast með því hversu langt hláka nær niður í hann.

Nánari upplýsingar um SM4-snjómæla og gögn frá slíkum mælum má finna á snowsense.is


https://youtu.be/QcdDH75rwEo?si=F1GE73eBtxlWZ_8Y

Undirstöður fyrir nýju snjómælana fluttar upp í fjall með stóru flygildi björgunarsveitarinnar Brimrúnar.


IMG_4636Stórt flygildi björgunarsveitarinnar Brimrúnar var notað til að flytja undirstöður fyrir nýju snjómælana upp í fjallið innan við Neskaupstað. Á myndinni eru Hlynur Sveinsson, Kristófer Máni Gunnarsson og Daði Benediktsson við flygildið. Mynd: Viktoría Kristín Viktorsdóttir









Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica