Ný uppfærsla á sprungukortum fyrir jökla landsins
Á Alþjóðlegum degi jökla, sem haldinn er árlega 21. mars, er ánægulegt að segja frá því að nýlega hafa verið gefin út uppfærð sprungukort sem sýna sprungusvæði á jöklum landsins.
Gefin hafa verið út uppfærð kort sem sýna sprungusvæði á jöklum landsins. Á kortunum er jöklum skipt í þrjá flokka af sprungusvæðum:
- Lítið sprunginn jökull
- Mjög sprunginn jökull
- Breiðar sprungur og mjög hættuleg svæði.
Frá árinu 2010 hafa sprungukort verið gefin út í samstarfi við Slysavarnafélagið Landsbjörg með það að markmiði að auka öryggi ferðafólks á jöklum.
Uppfærsla á sprungukortum hefur að jafnaði verið á nokkurra ára fresti. Veðurstofa Íslands hefur nú umsjón með uppfærslunum í samstarfi við jöklahóp Jarðvísindastofnunar Háskólans, Náttúrufræðistofnun, Náttúrustofu Suðausturlands og fleiri aðila. Sprungukortin eru teiknuð eftir haustmyndum þegar sprungusvæði eru sýnilegri.
Sprungusvæði á Öræfajökli eins og þau birtast í sprungukortum, þar sem litaflokkun sýnir umfang og hættustig sprungna.
Í þessari uppfærslu eru útlínur jöklanna miðaðar við haustið 2025 og jökulsker einnig sýnd. Kortlagning
sprungusvæða byggir á fjölbreyttum fjarkönnunargögnum, svo sem gervitunglamyndum, loftmyndum og hæðarlíkönum. Þá er einnig tekið mið af þekktum ferðaleiðum ökutækja og leiðarferlum. Síðastliðnir tveir vetur hafa verið frekar snjóléttir og mikil leysing sumarið 2025 hefur leitt til þess að sum sprungusvæði eru greinilegri en oft áður. Í uppfærðri útgáfu hefur jafnframt verið bætt við nokkrum minni jöklum, þar á meðal Tindfjallajökli, Snæfelli, Hrútfelli og Þórisjökli.
Á vefsíðunni Safetravel.is verða hlekkir á sprungukortin á mismunandi sniði. Gögnin eru einnig aðgengileg á kortasjá Náttúrufræðistofnunar https://kort.gis.is/ Þekjan heitir Sprungukort 2025.
Tekið er á móti upplýsingum um nýjar sprungur á netfanginu jokulsprungur@vedur.is
Sprungukortin eru aðeins ætluð til hliðsjónar fyrir jöklaferðalanga en ábyrgð liggur ætíð í höndum þeirra sem ferðast á jökli þar sem aðstæður geta breyst fyrirvaralaust.
- Veðurstofa Íslands
- Slysavarnarfélagið Landsbjörg
- Jöklahópur Jarðvísindastofnun Háskólans
- Náttúrufræðistofnun
- Náttúrustofa Suðausturlands
Á myndunum má sjá Hrafnhildi Hannesdóttur, fagstjóra jöklarannsókna og Ragnar Heiðar Þrastarson, fagstjóra landfræðilegra upplýsingakerfa, sem höfðu umsjón með verkinu hjá Veðurstofu Íslands.
Alþjóðlegir dagar helgaðir jöklum, vatni og veðurfræði
Alþjóðlegur dagur jökla er haldinn 21. mars og er ætlað að vekja athygli á mikilvægi jökla og hraðri rýrnun þeirra. Daginn eftir, 22. mars, er Alþjóðlegur dagur vatns og 23. mars er Alþjóðlegi veðurfræðidagurinn, sem Alþjóðaveðurfræðistofnunin (WMO), sérstofnun Sameinuðu þjóðanna, stendur fyrir. Með þessum dögum vilja Sameinuðu þjóðirnar og tengdar stofnanir þeirra vekja athygli á mikilvægi jökla, vatns og veðurfars og samspili þeirra í náttúru og samfélag






