Viðvörun vegna illviðris og leysinga
Reiknað er með asahláku
Viðvörun
Mjög slæmu veðri er spáð í dag um allt land og veðrinu fylgir talsverð rigning á sunnan-, vestan- og norðvestanverðu landinu samhliða auknum hlýindum. Því er reiknað með fyrstu asahláku ársins um nánast allt landið, sem ágerist er líður á kvöldið/nóttina.
Mest verður afrennsli á Snæfellsnesi, Hvítársvæðinu (bæði vestan og sunnan við Langjökul), á Norðurlandi vestra, Vestfjörðum, sem og á vatnasviði Norðurár í Borgarfirði, kringum Eyjafjalla- og Mýrdalsjökul og við sunnanverðan Vatnajökul.
- Athugið að rennsli í ám og vatnsföllum getur aukist verulega sem eykur hættu á flóðum.
- Þá er viðbúið að aukið álag verði á afrennsliskerfi bæja.
- Mælst er til þess að hreinsa vel frá niðurföllum og útidyrum kjallara.
- Aukin hætta á aur- og krapaflóðum mun skapast í fjalllendi.
Meðfylgjandi mynd sýnir nýjasta spálíkan okkar Harmonie (frá kl.12 á hádegi) en þar er spáð fyrir um uppsafnað afrennsli kl 00:00 á miðnætti aðfaranótt mánudags.
Fólki er bent á að fylgjast vel með veðurspám og færð á vegum.
13.03.2015
Einar Hjörleifsson, náttúruvársérfræðingur
Þorsteinn Jónsson, veðurfræðingur
Helga Ívarsdóttir, veðurfræðingur
Bryndís Ýr Gísladóttir, náttúruvársérfræðingur