Fréttir
Góuþing Veðurfræðifélagsins 2016
Opið öllum
Góuþing Veðurfræðifélagsins verður haldið næstkomandi þriðjudag, 23.febrúar. Þingið verður haldið í matsal Veðurstofu Íslands að Bústaðavegi 7 og hefst kl. 13:45. Að þingi loknu heldur félagið aðalfund sinn.
Dagskrá
- 13:45 - Þing sett
- 13:50 - Þórður Arason: Samanburður á eldingagögnum úr ATDnet og WWLLN mælikerfunum
- 14:10 - Björn Erlingsson: Hafís í Norður-Íshafi, – bráðnun og brotahreyfingar
- 14:30 - Hermann Arngrímsson: Radar radar – hvað er að gerast í veðursjáamálum á Íslandi?
14:50 - Kaffihlé
- 15:10 - Guðrún Nína Petersen: Lofthjúpur og haf mælt – tvær mæliherferðir kynntar til leiks
- 15:25 - Trausti Jónsson: Áttavísar
Veðurfræðifélagið og þing þess eru opin öllum sem áhuga hafa á veðri og veðurfari.