Fréttir
Fjölmiðlaverðlaun veitt.
1 2
næsta

Verðlaunahafar á Degi íslenskrar náttúru

16.9.2015

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, veitti í dag þáttaröðinni „Lífríkið í sjónum við Ísland“ eftir þá Erlend Bogason og Pétur Halldórsson Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

Við sama tækifæri veitti hún Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti en hana hlutu annars vegar hjónin Björn Halldórsson og Elisabeth Hauge á Valþjófsstöðum í Öxarfirði og hins vegar Völundur Jóhannesson á Egilsstöðum.

Handhöfum voru veitt verðlaun sín og viðurkenningar í sal Veðurstofu Íslands á Bústaðavegi 7 með viðhöfn og að viðstöddu fjölmenni á Degi íslenskrar náttúru (sjá upptöku af athöfninni).

Í frétt á vef ráðuneytisins má lesa rökstuðning dómnefndar og rökstuðning ráðherra.

Vel unnin störf
""
Ómar Ragnarsson ræðir við hjónin á Valþjófsstöðum í Öxarfirði.
Viðurkenning
""
Árni Snorrason forstjóri (t.h.) ræðir við Völund Jóhannesson á Egilsstöðum (t.v.)





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica